Gestur okkar í þessum þætti er Auður Ösp Ólafsdóttir. Auður miðlar af miklum krafti óteljandi ráðum og reynslusögum til fylgjenda sinna á LinkedIn á sama tíma og hún byggir upp eigið fyrirtæki og stundar MBA nám í Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur áralanga reynslu að vefstjórnun og efnissköpun og byggði m.a. upp ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavik. Hún starfar nú sem ráðgjafi þar sem hún hjálpar fyrirtækjum að fóta sig í stafrænum heimi.
Í þættinum ræða Hildur og Auður meðal annars:
- Ævintýralegt ferðalag að stúdentsprófi
- Hvernig forvitni hefur leitt hana áfram í gegnum lífið
- Hvernig áhugi hennar á leitarvélabestun varð til þess að hún stofnaði ferðaþjónustufyrirtæki út frá bloggi
- Hvernig örlögin gripu í taumana og urðu til þess að hún stundar nú MBA nám í HR
- Þegar hún áttaði sig á því eftir að hafa dvalist á Spáni að hún vildi stjórna vinnutíma sínum sjálf
- Hvað hún tengdi ekki við að vera frumkvöðull (þó að hún sé það!)
- Praktísk ráð um hvernig hún notar gervigreind til að vinna mikið magn gagna og spara tíma!
- Mennskan vs. gervigreind og hvernig við dílum við meðalmennskumoð
- Impostor syndrome og geðheilbrigðismál
- Hvað LinkedIn er öflugur miðill til að byggja upp tengslanet
- Hvað það að ferðast ein til útlanda gefur henni orku
Í þættinum minnist Auður á bæði gervigreindina Claude ásamt ChatGPT. Hún minnist einnig á Chrome viðbótina Glasp (ChatGPT and YouTube Summary) og Notion
Auður mælir með bókinni Alchemy: The Dark Art and Curious Science of Creating Magic in Brands, Business, and Life eftir Rory Sutherland. Og hlaðvörpin Better Offline og Marketing Against the Grain
-------------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
-------------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar: Advania og Sýn 🙌