Back

Explore every episode of the podcast Úti

Dive into the complete episode list for Úti. Each episode is cataloged with detailed descriptions, making it easy to find and explore specific topics. Keep track of all episodes from your favorite podcast and never miss a moment of insightful content.

Rows per page:

1–50 of 72

TitlePub. DateDuration
Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára24 Jun 202601:04:50

Í þetta sinn er gestur þáttarins Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru.Frænkurnar Kristín og Sigga Bára ræða saman reynslu sína af því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl sem þær geta ekki hugsað sér að vera án í dag.

Þær tækla spurningar eins og hvernig megi komast yfir óttann við vera hægastur, hvaða námskeið skal velja, hvernig maður öðlast sjálfstraust til að byrja og gefast ekki upp, hvernig maður heldur sér við eftir barnsburð og margt fleira.Takk fyrir komuna Sigga Bára.


Peloton ⁠er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu.

Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip

90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir10 Jun 202601:06:53

Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum, endurstillingu gagnvart hreyfingu og talar mikið og fallega um kajak ástundun.


Peloton er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu.


Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip

62. Hafsteinn Ægir og vetrarhjólerí10 Dec 202500:48:55

Í þessum þætti veltum við upp áskorunum vetrarhjólreiða. Við ræðum hvernig best sé að laga sig að breyttum aðstæðum þegar myrkrið lengist og göturnar verða hálar. Gestur þáttarins er Hafsteinn Ægir Geirsson deilir reynslu sinni af búnaði, vetrardekkjum, lýsingu og viðhaldi sem gera hjólið traustara yfir köldustu mánuðina. Einnig förum við yfir hvernig hægt er að halda hvatningunni gangandi, skipuleggja æfingar yfir veturinn og nýta hjólreiðar allt árið um kring. Reynum líka aðeins yfir nýjustu vendingar í malarhjólreiðunum en í næsta þætti ætlum við að heyra meira af því.

Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is.


61. Efni26 Nov 202500:34:01

Í þætti dagsins förum við yfir helstu efnin sem eru í reiðhjólum. Stál, ál og koltrefjar - vonandi lærum við eitthvað á þessum þætti.


Hjólavarpið er í boði Pelaton, hjólreiða- og útivistarverslun í Klettagörðum. Þar má finna frábær hjól og vörur tengdar hjólreiðum.

60. „Það voru mistök að taka þessi lyf“ - afbrigðilegar niðurstöður Þorsteins Bárðarsonar05 Nov 202501:09:26

Í þessum þætti ræðum við umtalaðasta íslenska hjólamál þessa árs, Þorsteinn Bárðarson hefur verið úrskurðaður í bráðabirgðabann eftir að lyfjapróf sýndi tilvist fjögurra efna sem öll eru á bannlista WADA – þar á meðal Ligandrol, Ostarine og RAD140. Eins hefur Þorsteinn sjálfur gefið út yfirlýsingu þar sem hann gengst við því að hafa notið þessi efni.

Gestur þáttarins er lyfjafræðingurinn Ingimar Jónsson, sem útskýrir hvernig þessi efni virka, af hverju þau eru bönnuð, og lyfjaeftirliti í íþróttum. Við köfum aðeins í þetta mál og tölum líka almennt um viðfangsefnið.

Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is .

59. „Ógeðslega gott að næstum því missa eitthvað“ með B-boy Hot Take @Reynisson22 Oct 202501:25:53

Í þætti dagsins kemur enginn annar en Böðvar Tandri Reynisson, hann hefur verið virkur í hreyfingu, þjálfun og næringafræði og við förum yfir þessi viðfangsefni í þættinum.

Böddi hefur verið virkur í athugasemdum um næringu og hreyfingu á samfélagsmiðlum og við förum dálítið yfir stemninguna í þessu.

Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is @pelotoniceland

Hjólavarpið er líka í boði Fors.is, þið fáið 15% afslátt með því að nota HJOLAVARPID15

58. Viku á undan Tour de France07 Oct 202501:06:07

Félagarnir Magnús Fjalar Guðmundsson og Bjarni Birgisson, eigendur hjólreiðaverslunarinnar Peloton, létu drauminn rætast og hjóluðu þvert yfir Frakkland – sömu leið og farin er í Tour de France.

Í þættinum fjöllum við um þetta ævintýri, hvernig þeir undirbjuggu sig fyrir 3.338 kílómetra og 51.550 metra hækkun á þremur vikum, áskoranirnar sem fylgdu – og einnig um rekstur á hjólaverslun og hjólastemninguna á Íslandi og hvernig hún er að þróast.

Hjólavarpið er í boði Peloton reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is.

Eins mæli ég með að chékka á Fors þau eru með geggjuð gel og allskonar bætiefnakruðerí sem er vert að gluða í sig, 15% afsláttur ef þú notar: HJOLAVARPID15


57. Fjallahjólin kalla - RIFT MTB yfirferðin24 Sep 202501:28:40

Í þessum þætti förum ég og Erlingur nágranni, vinur og hjólafélagi yfir þetta 5 daga hjólaævintýri sem Rift MTB er. Fjallahjólakeppni sem fer fram í og í kringum Akureyri. Keppnin er skipulögð af Lauf. Í þættinum förum við yfir alla dagana, hvernig okkur gekk og svo svona hvað okkur fannst stand uppúr.

Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem þú færð allt fyrir hjólreiðarnar.

Eins mæli ég með Fors þar getur þú fengið 15% afslátt ef þú slærð inn HJOLVARPID15

56. RIFT MTB SPECIAL with Starla Teddergreen and Lauren Zimmer10 Sep 202500:51:57

We’re heading into the rugged landscapes of The Rift MTB 5 day stage race. I sat down at the end of Day 4 with two riders who were leading the race. By the close of Day 5, they had claimed every single stage and the overall victory: Starla Teddergreen and Lauren Zimmer.

Starla is the co-owner of Distance to Empty, a not-for-profit dedicated to getting more women in Colorado onto gravel bikes. Living with MS, she’s turned cycling into both a personal fightback and a platform to empower others. She’s also no stranger to the podium and will represent Team USA at the upcoming MTB Marathon World Championships.

Lauren is an elite mountain bike racer who’s represented Team USA in both 2024 and 2025. Off the bike, she coaches through Distance to Empty, guiding more women into the sport. Known for her speed, strength, and generosity, she’s a force on and off the trail.

In this conversation, we dig into the race, their teamwork, the journey that brought them here, and what it really takes to not just win—but to lead, inspire, and lift others along the way.

55. Súlur Vertical - nýjasta útspil norðursins27 Aug 202500:34:07

Umfjöllun um þessa nýjustu viðbót malarheimsins. Talað við góðkunningja þáttarins Hafdísi Sigurðardóttur og eins mótastjórann knáa Rögnvald Má Helgason.


Þessi þáttur er unninn í samstarfi við Fors.is sem selur úrvals vítamín og fæðubótaefni. Þau eru með Kinetica orkugelin sem bragðast sjúllað vel, myndi prófa. Þú færð 15% afslátt af heildarkaupum á vefsíðunni hjá þeim ef þú notar kóðann: HJOLAVARPID15

54. Grefillinn yfirferð13 Aug 202500:39:15

Smá yfirferð frá frábærri keppni, ný leið og allskyns snilld í gangi. Hafdís Sig. tók þetta kvennamegin í 200 km og hún kíkti í viðtal, heyrðum líka í Jóhönnu Bárðard. og mótastjóranum Mæju Sæm.


Þátturinn er styrkur af Stillingu og snillingunum hjá Pedal.is.


53. Le Tour de France Special með Snorra Björns og Auðunn Eiríks25 Jul 202501:21:35

Að þessu sinni fékk ég hlaðvarpsfrömuðinn Snorra Björnsson og hjólaköttinn Auðunn Eiríksson til mín og við fórum aðeins yfir helstu stærðirnar í þessari keppni frönsku hjólakeppni. Í þættinum förum við aðeins yfir tengsl viðmælenda við hjóla síðan rennum við yfir helstu eigindir í þessari keppni og ástæður þess að öll ættu að horfa. Til viðbótar komum við að helstu keppendum þetta árið og þeim vendingum sem hafa átt sér stað í ár.

Endilega hlustið ef þið viljið vita meira um Tour de France.

Hjólavarpið fær stuðning frá Stillingu sem getur græjað hjól á hvaða bíl sem er, Happy Hydrate sem getur selt þér vörur sem bæta upp steinefnaskort og Pedal.is sem selur hjólavarning sem hentar við öll tilefni.

Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi27 May 202601:02:46

ÚTI er nýtt hlaðvarp um útivist í öllum sínum myndum — fjallamennska, ferðalög, hjólreiðar, ævintýri og allt sem fær okkur af stað og í útið.

Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal sem kafa ofan í sögur, fólk og upplifanir úr íslenskri útivistarmenningu.

Úti er í boði Peloton þar sem hægt er að versla frábæran ævintýraútbúnað.


52. The Rift uppgjörið23 Jul 202501:11:08

Í þættinum er farið yfir aðdraganda og undirbúning minn fyrir Riftið, eins tók ég upp mjög skrautlegt efni í brautinni sjálfri og er síðan með smá play-by-play brautarlýsingu. Eins er í þættinum viðtal við Dönu Rún Hákonard. markaðsstjóra Lauf eins heyrum við aðeins í Ingvari Ó. nýkríndum íslandsmeistara í malarhjólreiðum.

Eftirfarandi aðilar stiðja við Hjólavarpið:

Stilling - allt hjólatengt fyrir bílinn

Pedal.is - næs hjóladót

Happy Hidrate - steinefni og sölt


Bestu þakkir til Lauf sem hefur staðið þétt að baki Hjólavarpinu og verið mér innan handar í ýmsu baxi.

Hjólavarpið er líka á insta endilega fylgiði því þar.


51. Nú er það gult - Rynkeby ævintýrið02 Jul 202500:58:51

Við fáum Elvar Jóns. sem kemur og segir okkur frá Rynkeby. En á hverju ári fer galvaskur hópur fólks frá Íslandi á gulum hjólum og ferðast frá Danmörku til Parísar. Verkefnið snýr þó ekki bara að hreyfingu og heilsueflingu heldur er líka góðgerðarbatterí og eitthvað miklu meira.

Hópurinn fer út núna á næstu dögum og hægt að fylgjast með þeim víða, eins er opið fyrir umsóknir og um að gera að henda sér á þetta tækifæri.

https://www.team-rynkeby.is/

https://www.instagram.com/teamrynkebyisland/

Hjólavarpið er styrkt af Stillingu sem selur allskonar hjólafestingar á bíla, tilvalið til hjólaflutninga.

50. Götuhjól á þingvöllum > Bríet, Ingvar og Daninn (Alfred Grenaae))18 Jun 202500:18:38

Í þættinum renni ég aðeins aftur yfir þennan árekstur og ég renni aðeins yfir umfjöllun sem tengist því, en síðan hendi ég mér bara beint í stutta yfirferð frá götuhjólamóti síðustu helgar og fæ smá viðbrögð frá þátttakendum í elite karla og kvenna. Það var Ingvar Ó. sem varð í öðru sæti, næst hann Alfred Grenaae sem vann og síðan Bríet K. Gunnarsdóttir eins ræddi ég við Martein mótastjóra.

Þessi þáttur var styrktur af Stillingu þar sem er hægt að fá úrvals þakboga og hjólafestingar.

49. Fokkin jeppi sem klessti á mig og ferð yfir alpana11 Jun 202501:18:47

Í þessum þætti deili ég fyrst hrakförum úr eigin lífi áður en ég fer yfir 10 daga ævintýraferð yfir Alpana, frá Þýskalandi til Ítalíu, með Brynjari vini mínum. Við ræðum útsýni, mat, áskoranir – og veltum fyrir okkur því helsta sem stóð uppúr ferðinni. Síðan erum við með hagnýtar pælingar fyrir þau sem dreyma um svipaða ferð.

Þátturinn er í boði Stillingar – fyrir þá sem vilja sniðuga hluti fyrir hjól og bíla.


48. Tyler Wacker and the Westfjords Way28 May 202501:07:08

Ath. þessi þáttur er að mestu á ensku / this episode is mostly in english.

Tyler Wacker er ævintýrahjólari sem hefur komið víða við, eins og stendur er hann potturinn og pannan í hjólauppbyggingu á vestfjörðum og kemur að skipulagi og undirbúningi Westfjords Way Challenge. Í þættinum förum við yfir það hvernig strákur frá Texas fer að reka hjólabúð á Vestfjörðum margt þar á milli.

Tyler Wacker is an adventure cyclist who has been around quite a bit; currently, he is the driving force behind bike development in the Westfjords and is involved in organizing and preparing the Westfjords Way Challenge. In the episode, we go over how a guy from Texas ends up running a bike shop in the Westfjords — and a lot in between.


Skráning í Westfjords Way er í fullum gangi og líka hægt að finna upplýsingar um hjól og Vestfirði.



47. Afrek og almenningur, samtal við ÍSÍ07 May 202501:08:35

Í þættinum förum við yfir starfsemi ÍSÍ, íþrótta og ólympíusambands íslands, þó fyrst og fremst það sem snýr að almenningsíþróttum og því hvernig er hægt að koma lýðnum af sófanum. Eins förum við yfir átaksverkefni sambandsins og stöldrum aðeins við hjólað í vinnuna.

46. Hjólasumarið með Mæju Sæm30 Apr 202500:48:16

Við kynnumst María Sæm Bjarkardóttir og því hvernig hún flæktist í hjólreiðum. Eins förum við yfir hjólasumarið hjá henni þar sem standa upp úr fararstjórn fyrir hönd Íslands samhliða mótastjórn fyrir hönd Breiðabliks. Þar eyðum við mestum tíma í Grefilinn en hann fer fram 9. ágúst næstkomandi.

45. Buying Your First Bike in Iceland09 Apr 202501:18:24

In this episode, I’m joined by Matthew Kanaly to break down what you need to know before buying your first bike in Iceland—from where to shop and what’s available, to price points, maintenance, bike types, and that all-important question: What are you actually going to use your bike for? Whether you're cruising downtown or dreaming of gravel trails.

If you know of someone that is thinking about buying there first bike, please share this episode with them.

Brought to you by Tri – your local bike experts.

44. Hjól vs. bíll - sjálfbærar samgöngur?26 Mar 202501:17:00

Þessi þáttur er samstarfsverkefni með Hannesarholti sem heldur utan um metnaðarfulla dagskrá tengda sjálfbærnimarkmiðum sameinuðu þjóðanna. Þar var haldið pallborð nýlega og rætt um sjálfbærar samgöngur.

43. Ákall eftir róttækum hugmyndum - Spjall við Gísla Martein Baldursson05 Mar 202501:16:47

Gísli settist með mér og við fórum yfir hans framlag í borgarpólitík og þeim framgangi og breytingum sem þar hafa orðið.

69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig07 May 202600:34:37

Jæja, þá er komið að þessu síðasti þátturinn. Þakka öllum ofboðslega vel fyrir þessa vegferð, þeim sem hlustuðu og þeim sem komu í þáttinn. Ég er búinn að eignast góða vini á þessari vegferð og verð hjólasamfélaginu ævinlega þakklátur.

Eins er ég þákklátur öllum styrktaraðilinum sem hafa komið að þessu verkefni, Pelaton er þar efst á blaði sem hefur staðið baki þáttunum núna í að verða ár, en þar má versla ýmiskonar ævintýraútbúnað.


Það er annað ævintýri fram undan, endilega fylgist með.

42. Röggi og Súlur Vertical19 Feb 202500:45:10

Frábærar fréttir að norðan, ný hjólakeppni bætist við og tilheyrir núna Súlum Vertical sem fer frá því að vera hlaupaviðburður í hlaup, hjól og gönguskíði. Rögnvaldur Már fer aðeins yfir sína vegferð í hjóleríi og lýsir síðan aðeins þessari viðbót við hjólasenuna.

https://www.sulurvertical.is/

Svo er #gefaljós í fullum gangi endilega senda mér línu ef ykkur langar að taka þátt og dreifa ljósum - þá eru ljós aðgengileg hjá Reiðhjólabændum Sævarhöfða 31. Bakhjarl verkefnisins er Sjóvá.

41. Enduro Börkur05 Feb 202501:01:48

Fórum yfir vegferðina inní hjólreiðar og það hvernig er að reka fjöllu, vinna og sinna draumi.

Börkur Smári ætlar að hjóla á fullu inní 2025 eins og eflaust margir hjólarar.

40. Gull Special - Hafdís Sigurðardóttir22 Jan 202500:30:14

Í tilefni af veitingu Gullhjálmsins tók ég stöðuna á Hafdísi Sigurðardóttur fyrsta mótttakanda hjálmsins. Gullhjálmurinn er veittur í samstarfi við Hjólreiðasamband Íslands og Tri reiðhjólaverslun. Kann þeim bestu þakkir fyrir stuðningin og óska Hafdísi innilega til hamingju.

39. Gull, póstkort og ljós á nýju ári08 Jan 202500:16:11

Stuttur og laggóður þáttur, fór til Portugal að hjóla segi aðeins frá því, óska Hafdísi til ham með Gullhjálminn og eitt og annað. Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur.

38. Mælingar og Siggi í Greenfit25 Dec 202400:59:53

Í þættinum fer ég aftur til Greenfit og við tökum stöðuna á gamla. Eins ræðum við aðeins hvað þessar tölur standa fyrir og hvernig þær geta aðstoðað okkur. Siggi er líka kominn úr risa ólympíu verkefni með Guðlaugu Eddu og við fórum aðeins yfir það og hvað er framundan hjá Sigga.

Ath kostning til Gullhjálmsins í fullu fjöri endilega kjósa. Ath. introið í þættinum var tekið upp í flugvél af ýmsum ástæðum en restin af þættinum er í góðu standi.

37. Hjólaárið 202411 Dec 202401:14:43

Í þættinum förum við yfir hjólakeppnir og viðburði sem áttu sér stað á árinu. Viðmælendur í þættinum voru Hafsteinn Ægir, Ása Guðný og Magne Kvam.

36. Fundur um bíllausan lífsstíl26 Nov 202400:40:59

Í þættinum fáum við innsýn í fund sem var haldinn á Loft hostel um bíllausan lífstíll. Við heyrum nokkrar klippur frá frambjóðendum og svo yfirferð eftir fundinn þar sem ég og Björn Teitsson rennum yfir þetta.

35. Á hjóli sögunnar13 Nov 202400:20:46

Nýr taktur í þessum þætti, hverfum aftur til tímans rétt fyrir aldamótin 1900 og rennum aðeins yfir tilurð og fyrstu skrefin í þróun reiðhjólsins. Eins set ég mér nýtt markmið en það er að klára Rift MTB næsta sumar, sjáum hvernig það fer.

34. „Mikilvægi styrktarþjálfunar vanmetið“ Hildur Guðný30 Oct 202400:40:31

Í þættinum kemur hún Hildur Guðný Káradóttir til okkar og fer yfir sína vegferð í hreyfingu og íþróttum. Ferðalagið úr fimleikum og yfir í ultrahlaup. Hún er þjálfari hjá Mjölni og MFL kvenna hjá KR. Hildur hefur staðið sig flenni vel í hlaupum og tók núna síðast þátt í landsliðs bakgarðshlaupi í Elliðaárdal þar sem hún fór 30 hringi sem gerir litla 201 kílómetra. Eins förum við yfir styrktarþjálfun í seinni hluta þáttar.


Hjólavarpið er í boði Hreysti

Hjólavarpið er styrkt af Reykjavíkurborg

33. „Shit! Við erum með hugmynd“ - samtal við Benna og Berg hjá Lauf16 Oct 202400:52:06

Í þessum þætti fáum við að heyra frá þróun innan Lauf, aðeins hvernig þetta hefur verið keyrt áfram og síðan hvernig staðan er á þeim. Farið yfir nýjustu viðbótina í Lauf hjólafjölskylduna hana Elju sem er fulldempað fjallahjól með pláss fyrir stór dekk. Eins fáum við að heyra um nýja fjallahjólakeppni RIFT MTB sem verður á Akureyri og eins um nýja leið í RIFT og meira til. Þetta er þáttur stúttfullur af kruðeríi. Skráning í Rift opnar fimmtudaginn 17 okt.

Hjólavarpið er í boði Hreysti - 10% af ef þú notar Hjolavarpid sem afsláttarkóða

Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg


68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf01 Apr 202600:49:39

Í þættinum kemur Benedikt Skúlason stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf og lýsir vendingum sem hafa átt sér stað síðustu vikur og segir frá nýju rafmagnsfjallahjóli sem var sett á markað núna á dögunum.


Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á https://www.peloton.is/

32. Hætti að kenna og fór að hjóla - samtal við Hafdísi Sigurðardóttir10 Oct 202400:57:13

Hafdís Sigurðardóttir er ein af fremstu götuhjólurum á Íslandi og hefur tekið þátt í fjölda landsliðsverkefna ásamt því að hafa gert mjög gott mót á Íslandi, margfaldur Íslandsmeistari. Hún er nýlega byrjuð að éta möl og tók þátt í HM í gravel núna síðastliðna helgi. Förum yfir þetta og stöðuna Hafdísi.

Hjólavarpið er í boði Hreysti

Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg.

31. Íslandsmeistarar í downhill - Sól og Jóhann02 Oct 202400:41:12

Fékk til mín frábæra viðmælendur sem bæði urðu Íslandsmeistarar í downhill/fjallabruni núna í sumar. Í þættinum er farið yfir sportið og síðan svona stöðuna á Íslandi. Óskað er eftir fleiri þátttakendum og miklu fjármagni til að gera besta og flottasta náttúru bikepark í heimi.


Hjólavarpið er styrkt af Hreysti

Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg vegna gerð þessara þátta.

30. Hjólafélagið Víkingur25 Sep 202400:19:02

Í þættinum kynnumst heyrum við örlítið um hjólafélagið Víking og dagskránna hjá þeim. Þetta er fyrsti þátturinn þar sem hjólafélögin verða kynnt eitt af öðru og er hugsað fyrir fólk sem er áhugasamt um að byrja að æfa með einhverju þeirra. Endilega sendið mér línu ef þið viljið að ykkar hjólafélag fái umfjöllun.


Hjólavarpið er styrkt af Hreysti

Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg

29. Fyrsta HM í Enduro og EM í götuhjólerí - Jonni og Silja18 Sep 202401:03:21

Förum yfir þáttöku Íslands á HM í enduro fjallahjólreiðum og EM í götuhjólreiðum. Í þáttinn komu Jónas Stefánsson og Silja Jóhannesdóttir og fóru yfir þetta með mér.


Hjólavarpið er í boði Hreysti

Hjólavarpið er styrkt af Reykjavíkurborg

28. Glöð að ég hætti ekki - Guðlaug Edda11 Sep 202401:00:12

Guðlaug Edda er þríþrautarkona og ólympíufari. Hún kom í þáttinn og ræddi vegferðina að þríþrautinni, mótlætið sem hefur þurft að klást við og framtíðina.

Hjólavarpið er styrkt af Hreysti.

Hjólavarpið hefur fengið styrk frá Reykjavíkurborg.

27. Grasrótin - Sesselja Traustadóttir04 Sep 202400:48:45

Sesselja Traustadóttir kíkti í þáttinn og við fórum yfir aðkomu hennar að hjólreiðum. Sesselja hefur komið að mímörgum verkefnum og staðið fyrir frábæru grasrótarstarfi sem fólst meðal annars í kynningum á hjólafærni, hjólavottunum, kortlagningu á hjólastígum um allt land o.s.frv. o.s.frv.

Sesselja er alveg frábær og hefur skilað miklu inní hjólasamfélagið og bestu þakkir fyrir það skilið.

Tenglar:

www.hjolafaerni.is

www.cyclingiceland.is

www.publictransport.is

www.hjolavottun.is 

www.hjoladohadaldri.is


Hjólavarpið er styrkt af Hreysti

26. Hjólalandið Ísland21 Aug 202400:42:22

Í þættinum er farið yfir möguleika um aukna uppbyggingu hjólreiða á landsvísu með það fyrir augum að gera Ísland að áhugaverðari áfangastað fyrir hjólreiðafólk. Björn Teitsson kom í þáttinn og spjallaði við mig um þetta mál.


Hjólavarpið er í boði Arnarins.

25. Grefillinn uppgjör og viðtöl14 Aug 202401:06:06

Í þessum þætti er farið yfir Grefilinn, brautinalýsing, smá uppgjör og hugleiðingar. Við förum svo í viðtöl við nokkra keppendur:

Natalía Reynisdóttir sem var sjöunda konan í mark

Valborgu Hlín Guðlaugsdóttir sem varð þriðja overall og vann 45+ flokkinn

Ingvar Ómarsson sem vann pro/elite

Við heyrum líka í Andra Má Helga. sem er mótastjóri Grefilsins ásamt henni Maríu Sæm fyrir hönd Breiðabliks.

Hjólavarpið er í boði Arnarins.

24. Ólympíuleikar13 Aug 202400:17:29

Farið yfir keppnisgreinar í hjólreiðum sem keppt er í á ólympíuleikum, farið yfir sigurvegara og nokkrar áhugaverðar staðreyndir um leikana.

23. Það tókst - Rift uppgjör, viðtöl og fleira24 Jul 202401:10:31

Í þessum þætti er farið yfir aðdragandann að Rift undirbúning og uppgjör á því hvernig gekk og hugleiðingar tengdar því. Við förum svo í viðtöl við nokkra þátttakendur Cecily Decker sigurvegar 200k Pro/Elite, Kötu Páls. sigurvegara í opnum flokki, Natalíu Reynis., Bergi Lauf og svo í Óla mótastjóra.

Ps. það er skúbb í þessum þætti.

Hjólavarpið er í boði Arnarins.

67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur18 Mar 202601:09:16

Í þessum þætti ræðum við tengsl milli holdafars og heilsu eða öllu heldur skortin á tengslum milli holdafars og heilsu. Á dögunum voru sett fram drög að aðgerðaráætlun um málefni offitu. Í umsögnum eru mörg sem fagna þessum drögum en önnur sem benda á vankanta þess, þar á meðal er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir sem er viðmælandi í þætti dagsins. Í þættinum ræðum við þessi drög ásamt örðu þeim tengdum; fitufordóma og þyngdarhlutlausa nálgun.


Hjólavarpið er í boði Peloton hjólreiða og útivistarverslun sem staðsett er í Klettagörðum 23. Þar má finna frábæran fatnað til að takast á við ævintýri við íslenskar aðstæður.

22. Tour de France17 Jul 202400:21:49

Smá yfirferð og útskýring á Tour de France og samtal við Hjalta G. Hjartarson varaformann Hjólreiðasambands Íslands. Núna fer keppnin alveg að klárast í ár og um að gera að horfa á síðustu dagleiðirnar.

21. „Leyfa sér að vera amatör“ Natalía Reynis10 Jul 202400:36:23

Natalía Reynis hefur verið virk í hreyfingu en fann sig í utanvegahjólreiðum á síðastliðnum tveimur árum. Hún hefur tekið það með trukki og klárað stórar keppnir á góðum tíma. Við förum aðeins yfir þessa vegferð úr háskóla fótbolta í USA yfir í 200 km hjólaævintýri.

20. Póstkort frá Toskana03 Jul 202400:25:51

Í þessum þætti lýsi ég aðeins hjólaferðalagi mínu um Toskana, bara einhver svona smá tilraun. Endilega sendið mér línu ef þið voruð að fíla þetta eða ef þetta er allveg ómöguleg pæling.

19. „Það þarf að sinna þörfum hjólsins“ María Ögn26 Jun 202401:14:06

Gestur hjólavarpsins er María Ögn hjóla legend. Hún hefur keppt, þjálfað og allskonar tengt hjólreiðum í langan tíma. Í þættinum förum við yfir það hjólreiðar í hversdeginum og framtíðina og stöðuna á klakanum.

© My Podcast Data