Explore every episode of the podcast Svörtu tungurnar
| Title | Pub. Date | Duration | |
|---|---|---|---|
| #2.4 Fallistarnir - Bjór og rækjur | 03 févr. 2026 | 00:49:32 | |
Malbygg, Malbygg! Konungsríki mitt fyrir Malbygg.
Við höldum ævintýrinu áfram, ásamt því að finna Shakespeare tengd slagorð fyrir Malbygg. Nú eru tossarnir okkar hinsvegar týndir. En samt ekki svo illilega að þeir hafi ekki tíma fyrir bjór og rækjur. Og hver veit nema þeir hendi í eina sósíalíska spunatónleika á Kristals svölunum.
Mættir eru: Tryggvi, Hilmir Bjarni, Hannes og Lúlli. Tónlist: Crown of Madness Flytjandi: Scorching Ray Taylor
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ | |||
| #0104 Tvær Tungur: Og skammastu þín svo! | 29 janv. 2026 | 01:21:02 | |
Þátturinn er í boði Malbygg
Og við höldum áfram með seríuna okkar sem við höfum ákveðið að nefna „Tvær Tungur“ héðanaf, þar sem Bjössi og Hjörtur ræða lífsins lystisemdir og mannskepnunnar misbresti, á misgáfulegan hátt. Stundum tengt spunaspilum… Þeim tókst að taka upp þátt um daginn og stroka hann svo gjörsamlega út og því var tilvalið að ræða um skömmina í þessum þætti. Hver er munurinn á heilbrigðri og óheilbrigðri skömm? Hvað gerir maður til að rífa sig aftur upp eftir að hafa gert einhver skammarstrik? Og er ekki bara nauðsynlegt að kunna að skammast sín? Þeim tekst þó líka að ræða áframhaldandi framþróun tölvuleiksins „Skoplegur blær“ sem þeir vinna hörðum höndum að og kom fram í síðasta innslagi þeirra, þeir ræða skipulagða erótík ráðsetta fullorðna fólksins, meðvirkni, og gríðarlega flókið víddar- og tímaflakk síðasta ævintýris sem Svörtu Tungunum tókst loksins að klára um daginn, fjórum árum eftir að spilið hófst.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Bjössi og Hjörtur
– Tónlist: Borrowed Knowledge – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #2.3 Fallistarnir - Dullarfullir atburðir | 22 janv. 2026 | 01:00:20 | |
Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað.
Þá er komið að þriðja þætti af Fallistunum, heimabrugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú koma allir spilarar saman og sameina krafta sína og reyna að komast að því hvað er eiginlega að gerast innan veggja Taskíu.
Þátturinn er í boði Malbygg.
Mættir eru: Tryggvi, Hilmir, Lúlli, Bjarni og Hannes Tónlist: Gust of Wind Flytjandi: Scorching Ray Taylor
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ | |||
| #0103 Tvær Tungur: Skoplegur blær | 13 janv. 2026 | 01:15:02 | |
Þátturinn er í boði Malbygg Bjössi og Hjörtur eru aftur komnir saman tveir til að leysa ráðgátur lífsins og greiða úr flækjum manneskjunnar. En fyrst og fremst ræða þeir um tölvuleiki. Ok. Kannski ekki fyrst og fremst. En það var allavega hugmyndin og þeir svo sannarlega gera það þegar þeir loksins koma sér að efninu. Hvers konar tölvuleik myndu ÞEIR vilja búa til? Er þetta enn einn "open world" leikurinn á borð við Fallout 3 eða Read Dead Redemption? Eða kannski skotleikur? Eða jafnvel ævintýraleikur í ætt við Monkey Island og Day of the Tentacle? Hvað er málið með gagnrýni á poppkúltúr á internetinu? Hvernig nær maður sér á strik eftir langt jólafrí? Hvað í fjandanum gerðist eiginlega í covid? Og hvað ætlar ógæfusami rannsóknarlögreglumaðurinn Brjánn Brjánsson til bragðs að taka þegar hann kemur fram á hrottalegan glæp sem framinn var á bryggjusvæðinu í Reykjavík árið 1960?Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Bjössi og Hjörtur
– Tónlist: Dissonant Whispers – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #2.2 Fallistarnir - Hinir tossarnir | 23 déc. 2025 | 01:00:24 | |
Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Það er komið að öðrum þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú fylgjumvið Tossunum Þórði Nikulási og Vilhjálmi Elíasi eftir á vaktinni í Akademíunni. Þetta er seinni hluti af fyrsta þætti.
Þátturinn er í boði Malbygg.
Mættir eru: Tryggvi, Hilmir og Lúlli. Tónlist: Silvery Barbs Flytjandi: Scorching Ray Taylor
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ | |||
| #2.1 Fallistarnir - Tossarnir í Taskíu | 16 déc. 2025 | 00:53:12 | |
Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Það er komið að fyrsta þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Það er eitthvað stórt í uppsiglingu í undirheimum Taskíu. Á meðan varðsveitir Batterísins reyna að komast að því hvað það er, er verkefni Fallistanna einfalt: Ekki vera fyrir og ekki klúðra þessu (eins og þeir gera alltaf). Þetta er fyrri hluti af fyrsta þætti.
Þátturinn er í boði Malbygg.
Mættir eru: Tryggvi, Hannes og Bjarni. Tónlist: Wish Flytjandi: Scorching Ray
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ | |||
| #0102 Prepp og pepp - partur tvö | 09 déc. 2025 | 00:51:02 | |
Seinni þáttur í undirbúningi fyrir upptöku á spili. Nú búum við til tvo fyrstu karakterana, sósíalíska þjóðlagaskáldið Virginíu Fönix og fyrrum undrabarnið Orfeus Killdaar.
Svo köstum við uppá tölur og reiknum... ...sem er frábært podcast efni!
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Tryggvi, Bjarni og Hannes
– Tónlist: Zephyr strike – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0101 Tvær Tungur: Sagan af Kristjáni Kristjánssyni handboltaþjálfa | 02 déc. 2025 | 01:09:34 | |
Þátturinn er í boði Malbygg Aftur eru tveir spilatossar sestir niður til að mana sig upp í spil. En nú er það á næsta leiti! Það stefnir í ægilega sjóræningjasögu fljótlega. Og þá spyr maður sig. Hvaða þráhyggja er þetta að vera að segja endalausar sögur af hlutunum? Spila spunaspil, leika leikrit, gera hlaðvörp, skrifa ævintýri, handrit, bækur? Er þetta ein af grunnþörfum manneskjunnar? Eða erum við bara ólæknandi kjaftatuskur? Og hver var þessi dularfulli maður sem veittist að Birni Stefánssyni í Hagkaup í Garðabæ? Hver er hans saga?Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Bjössi og Hjörtur
– Tónlist: Weird – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0100 Tvær Tungur: Verðlagning tímans eða Hreint eldhús - betra líf | 22 nov. 2025 | 00:59:08 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Hundraðasti þáttur! Og við vissum ekki einusinni af því þegar við tókum hann upp. Þetta hefur nú verið meira ævintýrið elsku hlustendur og hjartans ástarþakkir til ykkar sem hafið lagt á hlustir! Í þetta skiptið setjast tveir týndir synir niður og ræða málin. Bjössi og Hjörtur hafa verið fjarverandi bæði þáttum og spilum alltof alltof lengi. Afhverju í ósköpunum? Hvers vegna dettur maður úr takti við eitthvað sem maður elskar? Hvað er það sem fær mann til að vanrækja hluti sem maður veit að eru mikilvægir? Þegar forgangsröðun hversdagsins tekur alltsaman yfir, hvernig kemur maður sér aftur á vagninn? Og hvenær í fjandanum náum við aftur að spila!?Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Bjössi og Hjörtur
– Tónlist: Ravenous Void – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0099 Prepp og pepp | 13 nov. 2025 | 01:43:20 | |
#0099
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.
Hér kemur langur og góður þáttur, þetta er fyrsti undirbúnings þátturinn komandi ævintýrinu okkar. Í þessum fyrsta þætti ræðum við um ævintýrið og búum í sameiningu til borgina og samfélagið sem verður sögusvið ævintýrisins. Hér má sjá kortið borginni.
Mættir voru
Hilmir Tryggvi Bjarni
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0098 Ævintýri í vændum | 28 oct. 2025 | 00:42:00 | |
#0098
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.
Í þessari viku settust strákarnir niður og ræddu hvað væri framundan í hlaðvarpinu okkar.
Mættir voru
Hilmir Hannes Tryggvi Bjarni
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0097 Gestur | Mike Pohjola | 14 oct. 2025 | 01:15:18 | |
#0097
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.
Það var okkur heiður að fá hinn Finnska meistara Mike Pohjola í heimsókn til okkar. Mike er rithöfundur, handritshöfundur, leikjahönnuður, frumkvöðull, aktívisti og menningarfræðingur, svo eitthvað sé nefnt. En hann er líka mikill spunaspilari, LARP-ari og maðurinn á bakvið The Turku School.
Mættir voru
Hlynur Tryggvi Lúlli Mike
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0096 Allt og ekkert | 07 oct. 2025 | 00:40:08 | |
#0096
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.
Í þessari viku mættu strákarnir algjörlega óundirbúnir í upptöku og töluðu um allt og ekkert.
Mættir voru
Hilmir Hlynur Tryggvi Bjarni
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0095 Stebbebbi lítur dagsins ljós | 30 sept. 2025 | 00:56:22 | |
#0095
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.
Það er spilakvöld í kvöld, það átti að spila Strahd en forföll gerðu það að verkum að það var ekki hægt. Þá grípum við oft í ævintýri sem við köllum Týnda borgin, nú ætlar Bibbi að vera með okkur í því, en þar sem hann hefur ekki verið með í því áður þá vantar honum nýjann karakter! Þá er ekkert annað að gera nema búa hann til og er ekki tilvalið að gera það með ykkur. Hér er karakter sköpun með Bibba og strákunum, verði ykkur að góðu.
Mættir voru
Bibbi Hannes Hilmir Lúlli
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0094 Þrjár tungur, tvær húsreglur | 20 sept. 2025 | 01:00:56 | |
#0094
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.
Tungurnar ræða um húsreglur, húðflúr og fleirra í þætti vikunnar.
Mættir voru
Lúlli Hlynur Hilmir
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0093 Fáum okkur tattú | 13 sept. 2025 | 00:53:20 | |
#0093
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg.
Svörtu tungurnar koma úr sumarfríi! Hvað gerðu þær í fríinu, hvernig leggst Daggerheart í menn og hvað ætlum við að gera 15. sept? Haust þýðir mikið af spilum og gleði!
Mættir voru
Lúlli Tryggvi Hilmir
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #RK02 Rafkindur | Some Desperate Glory eftir Emily Tesh | 16 août 2025 | 01:29:25 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Fyrsta bókin sem tekin verður almennilega fyrir er Some Desperate Glory eftir Emily Tesh. Bókin kemur út árið 2023 og vann Hugo verðlaunin 2024. En þau eru einmitt ein virtustu verðlaun á sviði vísindaskáldsagna og fantasíubókmennta í heiminum. Sagan gerist í fjarlægri framtíð þar sem mannkynið hefur nánast verið þurrkað út. En þó tórir enn lítill hluti uppreisnarseggja sem gleyma ekki ósigrunum sem þau hafa mátt þola og hafa lengi undirbúið sig undir þann tíma þegar mannkynið nær fram hefndum...Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
OG! Við teygjum anga okkar yfir breiðan völl internetsins, því nú erum við komin með vefsíðu OG instagram síðu. Þar munum við henda inn allskonar uppfærslum og rugli. Klikkið endilega við! Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Hjörtur, Hannes, Hlynur, Hilmir og Snæbjörn
– Tónlist: Forbidden Planet – Flytjandi: Ursula K. Le Guin | |||
| #0092 Age of Vikings - Lifandi upptaka 2 | Live play 2 | 09 août 2025 | 01:05:30 | |
#0092
Þátturinn er í boði Quest Portal, Malbygg og Chaosium Inc.
Svörtu tungurnar spiluðu Age of Vikings, nýjasta spunaspil Chaosium Inc. fyrir áhorfendur í Malbygg Taproom þann 16. maí. Hér kemur seinni hluti þessa stórskemmtilega kvölds, njótið vel!
The episode is brought to you by Quest Portal, Malbygg, and Chaosium Inc.
The Black Tongues played Age of Vikings, Chaosium Inc.'s latest role-playing game, in front of an audience at Malbygg Taproom on May 16th. Here is the second part of this fantastic evening—enjoy!
Stjórnandi | GM – Lúlli Þrymur Sörlason – Hannes Birna Flosadóttir – Aðalbjörg Njáll Þórólfsson – Hlynur Ísgerður Halldórsdóttir – Bryndís Sigmundur Gunnarsson – Hilmir
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: Join the discussions and share your opinions in our Facebook group: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
| |||
| #RK01 Rafkindur | Bókaklúbbur! | 12 juil. 2025 | 01:01:10 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Fyrir langa löngu í póstnúmeri langt langt í burtu settust nokkrir nördar niður og stofnuðu bókaklúbb. Þar voru ræddar fantasíur og vísindaskáldsögur, þeim gefnar einkunnir og innihald bókanna greint í þaula. Þessi félagskapur kallaði sig "Rafkindurnar". Við höfum nú ákveðið að blása lífi í þennan klúbb að nýju og leyfum ykkur kæru hlustendur að gæjast inn hvað fer þar fram! Í hverjum þætti tökum við fyrir eina bók sem allir í hópnum hafa lesið og greinum niður eftir þartilgerðu kerfi. Við gefum stig frá 1-10 fyrir heimssköpun, persónusköpun, stíl, sögu og skemmtanagildi. Í þessum fyrsta þætti er engin eiginleg bók tekin fyrir heldur kynnum við hugmyndina og byggingu þáttarins, förum yfir hvað við höfum lesið nýlega og hvað er í vændum.Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
OG! Við teygjum anga okkar yfir breiðan völl internetsins, því nú erum við komin með vefsíðu OG instagram síðu. Þar munum við henda inn allskonar uppfærslum og rugli. Klikkið endilega við! Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Hjörtur, Hannes, Hlynur, Hilmir og Snæbjörn
– Tónlist: Attack of the 50 Foot Woman – Flytjandi: Isaac Asimov | |||
| #0091 Age of Vikings - Lifandi upptaka 1 | Live play 1 | 05 juil. 2025 | 01:12:00 | |
#0091
Þátturinn er í boði Quest Portal, Malbygg og Chaosium Inc.
Svörtu tungurnar spiluðu Age of Vikings, nýjasta spunaspil Chaosium Inc. fyrir áhorfendur í Malbygg Taproom þann 16. maí. Hér kemur fyrri hluti þessa stórskemmtilega kvölds, njótið vel!
The episode is brought to you by Quest Portal, Malbygg, and Chaosium Inc.
The Black Tongues played Age of Vikings, Chaosium Inc.'s latest role-playing game, in front of an audience at Malbygg Taproom on May 16th. Here is the first part of this fantastic evening—enjoy!
Stjórnandi | GM – Lúlli Þrymur Sörlason – Hannes Birna Flosadóttir – Aðalbjörg Njáll Þórólfsson – Hlynur Ísgerður Halldórsdóttir – Bryndís Sigmundur Gunnarsson – Hilmir
Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: Join the discussions and share your opinions in our Facebook group: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
| |||
| #KD014 Spil | Köldudyr – Seta 12: Hilmir í Auschwitz | 14 juin 2025 | 01:10:12 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Stjórnandi – Björn Ágúst Ólafur Stefánsson – Hilmir Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi
| |||
| #0090 Gestur | Daði Einars | 07 juin 2025 | 01:06:52 | |
#0090
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Það hefur verið mikill gestagangur hjá okkur undanfarið og að þessu sinni fengum við til okkar í spjall, eilífðarstjórnandann, sögumanninn, YouTube stjörnuna og tölvuleikjahönnuðinn Daða Einars.
– Mættir eru: Bjössi, Hlynyr og Daði Einars
– Tónlist: Raulothim's Psychic Lance
– Flytjandi: Scorching Ray Taylor
| |||
| #0089 Þrjár tungur, lifandi spil og Daggerheart | 31 mai 2025 | 00:49:10 | |
#0089
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Við strákarnir settumst niður fyrir spil og tókum bara létt spjall um lifandi spilið okkar á Malbygg, Daggerheart og fleirra.
– Mættir eru: Hilmir, Lúlli og Bjarni
– Tónlist: Raulothim's Psychic Lance
– Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| Aukaþáttur | Age of Vikings | 14 mai 2025 | 00:34:46 | |
Föstudaginn, 16. maí kl 20:00 (húsið opnar kl 19), verða Svörtu tungurnar með lifandi spil í glænýju spilakerfi Chaosium, Age of Vikings. Af því tilefni settust Hilmir og Lúlli niður og tóku upp aukaþátt þar sem farið er yfir herlegheitin. Í fyrsta skipti var þátturinn tekinn upp í mynd, kíkið á Svörtu tungurnar rásina á Youtube til þess að berja drengina augum
Við hlökkum til að sjá ykkur á föstudaginn!
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
– Mættir eru: Hilmir og Lúlli
– Tónlist: Storm of Vengeance
– Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0088 Tveir úr Tungunum | 09 mai 2025 | 00:45:31 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Já þá erum við bara tveir. Hjörtur og Snæbjörn setjast niður og ræða málin. Það er hátíð í bæ því Svörtu Tungurnar ætla að dusta rykið af D&D ævintýrinu Descent into Avernus, sem við spiluðum síðast fyrir sirka einu og hálfu ári. Af því tilefni ræðum við um öll þessi ókláruðu spil og lausa enda. Hvaða hluti verður maður hreinlega að klára og hvenær á bara að gefast upp? Hvernig veit maður þegar eitthvað er bara búið spil, eða hvað er þess virði að berjast fyrir? Erum við ennþá að tala um spunaspil, eða bara lífið? Vorum við eitthvað að tala um spunaspil yfirhöfuð? Ég veit það ekki!Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
OG! Við teygjum anga okkar yfir breiðan völl internetsins, því nú erum við komin með vefsíðu OG instagram síðu. Þar munum við henda inn allskonar uppfærslum og rugli. Klikkið endilega við! Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Hjörtur og Bibbi
– Tónlist: Power Word: Kill – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0087 Gestur | Aðalbjörg Árnadóttir | 03 mai 2025 | 00:49:10 | |
#0087 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Við höldum áfram að taka á móti góðum gestum í aðdraganda Age of Vikings útgáfunnar. Leikkonan, leikstjórinn, handritshöfundurinn og næstum óreyndi spilarinn Aðalbjörg kom í heimsókn og ræddi við okkur um spil, spunaleik, nördinn á heimilinu hennar, Age of vikings spilið okkar og ýmislegt annað skemmtilegt.
– Mættir eru: Lúlli, Hjörtur, Hlynur og Aðalbjörg – Tónlist: Unseen Servant – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0086 Gestur | Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir | 26 avr. 2025 | 01:08:22 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Þvílík gleði og hamingja, það kom til okkar gestur. Leikskáldið, leikstjórinn, sviðslistakonan, spunaspilarinn, larparinn og snillingurinn Bryndís kíkti til okkar og ræddi við okkur um spil, að vera stelpa í spunaspili, Age of vikings spilið okkar og fleirra.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Lúlli, Bjarni, Hilmir og Bryndís
– Tónlist: Psychic Scream – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0085 Guest | Pedro Ziviani | 19 avr. 2025 | 00:51:35 | |
This episode is brought to you by Quest Portal and Malbygg Our second ENGLISH episode! And what a very special guest we have for you this week. Pedro Ziviani of Chaosium Inc. fame paid us a visit and told us a little bit about himself, his awesome upcoming game Age of Vikings, and more. What brings a Brazillian game designer to the freezing coasts of Iceland? What is it about Scandinavian folklore that makes it so spooky? And how in the seven hells do you start designing a whole roleplaying system from scratch? The Black Tongues will be hosting a live-play session of Age of Vikings at Malbygg the 16th of May, be sure to attend for some great drinks and bad jokes: https://fb.me/e/HDmjInY56 Please feel free to check out our chatroom on Facebook and pitch in on the latest topics:www.facebook.com/groups/svortutungurnar
AND! Stretching across the web of social media, we now have a website and an Instagram page. We´ll be throwing in all sorts of updates and nonsense over there, have a click! Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Website: www.svortutungurnar.is/
– In attendance: Hlynur, Hjörtur & Lúlli – Special guest: Pedro Ziviani
– Music: Dream of the Blue Veil – Performed by: Scorching Ray Taylor | |||
| #0084 Gestir | Askur afhentur | 11 avr. 2025 | 00:37:52 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Í þessum sérstaka þætti afhenda Svörtu tungurnar sérlegan dýrgrip. Tungurnar stóðu nýverið fyrir uppboði í tilefni Mottumars, í samfloti með Davíð Inga Snorrasyni, og nú hefur sigurvegarinn stigið fram. Það er enginn annar en öðlingurinn Hrafnkell Fjalar Ingjaldsson! Við afhentum Ask Yggdrasils við hátíðlega athöfn og tókum af því tilefni viðtal við snillinginn sem keypti hann, og snillinginn sem gaf hann.Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
OG! Við teygjum anga okkar yfir breiðan völl internetsins, því nú erum við komin með vefsíðu OG instagram síðu. Þar munum við henda inn allskonar uppfærslum og rugli. Klikkið endilega við! Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Hlynur og Tryggvi – Sérstakir gestir: Davíð Ingi Snorrason og Hrafnkell Fjalar Ingjaldsson
– Tónlist: Shillelagh – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0083 Þreyta eða þrautseigja | 05 avr. 2025 | 00:58:02 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Í þætti vikunnar ræða Tungurnar spilaþreytu. Er málið bara að bíta á jaxlinn og þrauka langhleypu sem engum finnst skemmtileg eða á að kasta öllu uppí loft? Hvað geta spilarar gert til þess að endurlífga upp á persónurnar sína? Við förum á djúpið og köfum eftir glingri.Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
OG! Við teygjum anga okkar yfir breiðan völl internetsins, því nú erum við komin með vefsíðu OG instagram síðu. Þar munum við henda inn allskonar uppfærslum og rugli. Klikkið endilega við! Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Hannes, Hilmir, Lúlli og Tryggvi
– Tónlist: Ray of Enfeeblement – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0082 Hitt eða þetta | 29 mars 2025 | 01:02:52 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Við strákarnir settumst niður í hádeginu á föstudaginn, stefnulausir en glaðir og kátir og út kom þessi líka frábæri þáttur. Njótið vel elsku vinir. Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Bjarni, Lúlli og Tryggvi
– Tónlist: Ego Whip – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0081 Gestur | Gunnar Hólmsteinn í Quest Portal | 22 mars 2025 | 01:13:04 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Það kíkti til okkar gestur! Sá mikli meistari, Gunnar Hólmsteinn framkvæmdastjóri, meðstofnendi og vinur okkar í Quest Portal kíkti til okkar í gott spjall.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Hlynur, Lúlli og Tryggvi
– Tónlist: Heroes' Feast – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0080 S.V.I.K | 17 mars 2025 | 00:56:56 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Afsakið að þátturinn sé örlítið seinn í loftið, klippidrýsilinn var ekki að standa sig.
Í þættinum tökum við fyrir SVIK - Stóra Vonda Illa Kalla eða það sem er kallað á ensku BBEG - Big Bad Evil Guy í ævintýrum sem við spilum.
Við tölum líka um uppboð sem við erum að fara að setja í loftið til styrktar Mottumars. Þar verður meðal annars verður algjörlega ónotað eintak af Ask Yggrasil boðið upp, endilega fylgist með!
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Hilmir, Bjarni, Lúlli og Tryggvi
– Tónlist: Magic Mouth – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0079 Topplisti: Partýspil | 08 mars 2025 | 00:55:50 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Topplistinn snýr aftur, í þetta skipti förum við yfir topp 3 partýspil hvers og eins.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Hlynur, Lúlli og Tryggvi
– Tónlist: Heroes' Feast – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0078 Eilífðar DM anonymous | 01 mars 2025 | 00:47:46 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Ert þú eilífðar DM, fastur/föst/fast í stjórnendahlutverkinu? Eða er hópurinn þinn duglegur að skiptast á að stjórna eða viltu það kannski ekki og fílar bara stjórna en ekki spila?
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Hlynur, Lúlli og Tryggvi
– Tónlist: Hunger of Hadar – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0077 Gestur | Unnur Helga Larpari | 22 févr. 2025 | 01:14:10 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Loksins, loksins, loksins þá fá Svörtu tungurnar til sig alvöru larpara til þess að fræða okkur um hið æðislega en pínu ógnvekjandi form spunaspila, sem larpið er. Til okkar kíkti Unnur Helga, sem veit meira um larp en flestir og opnaði augu okkar um heima larpsins.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Hilmir, Lúlli, Tryggvi og Unnur Helga
– Tónlist: There Is No Escape – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0076 Morð í hjólhýsagarðinum | 15 févr. 2025 | 00:49:24 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Við í Svörtu tungunum fengum til okkar Valda og Tinnu frá Morðgátufélaginu í heimsókn og buðu þau uppá mikla veislu! Við og makar okkar mættum í okkar mestu hvítarusls klæðum og héldum geggjað kvöld með kjúklingavængjum, bud light bjórum, nascar og morðum. Ef ykkur langar til þess að endurtaka leikinn þá getiði haft samband við snillingana i Morðgátufélaginu í gegnum mordingi@gmail.com
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Bjarni, Lúlli, Hilmir og Tryggvi
– Tónlist: Wither and bloom – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0075 Siðareglur spunaspila | 08 févr. 2025 | 00:56:28 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Hvernig á að haga sér við spilaborðið? Hver eru mörkin milli frjáls spuna og siðahafta? Er allt í boði? Eða eru einhverjar óskrifaðar reglur sem verður að fylgja svo spilakvöldið leysist ekki upp í grát og gnístan tanna? Í þessu innslagi ræða Svörtu Tungurnar um hvaða lögmál eru í gildi þegar spila skal spunaspil, utan regluverks spilsins sjálfs. Hvað ber að varast í samskiptum milli spilara og hvað er boðlegt fyrir persónu þína að gera, eða ekki gera, í heimi spilsins.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Hilmir, Hjörtur og Lúlli
– Tónlist: Moonbeam – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0074 Tækniklikk eða ekki | 02 févr. 2025 | 00:40:48 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Í þættinum í dag er rætt um ævintýri sem hafa af einhverjum ástæðum horfið út í kosmósið. Eru langhleypur sem við höfum spilað sem við hættum að spila af einhverri ástæðu og við söknum, spiluðum við einhleypur sem hefðu átt skilið að verða að langhleypu. Við ræðum þetta allt og fleirra. ps. eins og titilinn gefur til kynna þá voru smá tæknileg vandamál í upptöku þáttarins en ég held að ég hafi náð að bjarga því fyrir horn. kv, Klippidrýsilinn.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Tryggvi, Hlynur, Hilmir og Lúlli
– Tónlist: Technomagic – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0073 Tónlist eða ekki tónlist | 19 janv. 2025 | 00:48:28 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Hversu mikilvægt er að hafa tónlist á spilakvöldum, getur tónlist vera truflandi eða er hún nauðsynlegur hluti af því að skapa stemmningu. Hvaða tónlist á maður að hafa og í hvaða formi, erum við að tala um vínilplötu, playlista sem einhver úti heimi bjó til á spotify eða á maður að nýta sér sérstök öpp.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Hannes, Hilmir og Lúlli
– Tónlist: Confusion – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #KD13 Spil | Köldudyr – Lifandi upptaka á Malbygg – seinni hluti | 11 janv. 2025 | 00:55:44 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Hér kemur seinni hluti af lifandi spilinu á Malbygg Taproom, sem tekin var upp fyrir áhorfendur 3. Des síðastliðinn.
Stjórnandi – Björn Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0072 Útsláttarkeppni Klassanna - Úrslit | 04 janv. 2025 | 01:11:48 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Það er komið að úrslitum Klassastríðs, útsláttarkeppni Klassanna í Drekum og Dýflissum! Við berum saman gagnsemi, skemmtilegheit, spuna- og bardagahæfni sem og kynþokka hvers klassa – en aðeins ein stétt stendur uppi sem sigurvegari. Hver er sterkastur, liprastur og hæfastur þegar allt er lagt undir? Eða skiptir kannski bara máli hvað er mest kúl.
Í þætti dagsins mætast í keppni um 3 sæti Hrappur vs Foldgnár
Úrslitaviðureign Skáld vs Vitki
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Bjarni, Lúlli, Hilmir og Tryggvi
– Tónlist: Death Ward – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #KD12 Spil | Köldudyr – Lifandi upptaka á Malbygg – fyrri hluti | 28 déc. 2024 | 01:10:10 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Hér kemur fyrri hluti af lifandi spilinu á Malbygg Taproom, sem tekin var upp fyrir áhorfendur 3. Des síðastliðinn.
Stjórnandi – Björn Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0071 Útsláttarkeppni Klassanna - Undanúrslit | 21 déc. 2024 | 01:30:18 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Það er komið að undanúrslitum Klassastríðs, útsláttarkeppni Klassanna í Drekum og Dýflissum! Reyndar er um það bil helmingurinn af þættinum blaður um allt og ekkert, en það er bara eins og það er. Við berum saman gagnsemi, skemmtilegheit, spuna- og bardagahæfni sem og kynþokka hvers klassa – en aðeins ein stétt stendur uppi sem sigurvegari. Hver er sterkastur, liprastur og hæfastur þegar allt er lagt undir? Eða skiptir kannski bara máli hvað er mest kúl.
Í þætti dagsins mætast Vitki vs Foldgnár Skáld vs Hrappur
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Bjarni, Lúlli og Tryggvi
– Tónlist: Dissonant whispers – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0070 Útsláttarkeppni Klassanna - fjórðungsúrslit | 14 déc. 2024 | 01:07:16 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Eftir góða pásu frá fyrstu tveimur umferðum þá er loks komið að fjórðungsúrslitum Klassastríðs, útsláttarkeppni Klassanna í Drekum og Dýflissum. Við berum saman gagnsemi, skemmtilegheit, spuna- og bardagahæfni hvers klassa – en aðeins ein stétt stendur uppi sem sigurvegari. Hver er sterkastur, liprastur og hæfastur þegar allt er lagt undir? Eða skiptir kannski bara máli hvað er mest kúl.
Í þætti dagsins mætast Árlákur vs Vitki Goði vs Skáld Helgiriddari vs Foldgnár Barbari vs Hrappur
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar – Mættir eru: Bjarni, Hilmir og Lúlli
– Tónlist: Wings of Cover – Flytjandi: Scorching Ray Taylor | |||
| #0069 Einhleypa 2 – Á vegum úti – Seta 3 | 07 déc. 2024 | 01:06:30 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Leikstjóri – Bibbi Spilarar : Hannes, Hjörtur og Bjössi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0068 Einhleypa 2 – Á vegum úti – Seta 2 | 30 nov. 2024 | 01:05:41 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Leikstjóri – Bibbi Spilarar : Hannes, Hjörtur og Bjössi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #KD11 Spil | Köldudyr – Seta 11: Nema hvað? | 23 nov. 2024 | 01:07:12 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Stjórnandi – Björn Friðrik Stormur – Hannes Gísli Berg – Hjörtur Grettir Axelsson – Snæbjörn Rikki Dan – Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #0067 Einhleypa 2 – Á vegum úti – Seta 1 | 16 nov. 2024 | 01:07:12 | |
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Leikstjóri – Bibbi Spilarar : Hannes, Hjörtur og Björn Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar | |||
| #KD10 Spil | Köldudyr – Seta 10: Mótvindur stríðsins | 09 nov. 2024 | 01:25:22 | |