Explore every episode of the podcast hún hlaðvarp
| Title | Pub. Date | Duration | |
|---|---|---|---|
| hún hlaðvarp #2 Edda Hermannsdóttir | 24 Mar 2026 | 01:09:41 | |
Hvernig verður maður leiðtogi sem nær að halda ró í sviðsljósinu og lyfta öðrum með sér. Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyf og Heilsu, er gestur þáttarins. Hún hefur sýnt að það að sameina skýra stefnu og annlega forystu skilar árangri. Við Edda ræddum nýja stefnu Apótekarans og áherslur sem hún setti sér strax á fyrsta degi í nýju starfi. Edda hefur átt áhugaverðan feril sem gæti virkað fyrir mörgum óvenjulegur en þarna er alltaf einhver dýpri hugsun á bakvið. Auk þess má nefna að samtöl okkar Eddu eru ein af ástæðunum fyrir þessu hlaðvarpi og ég er viss um að hún muni veita fleirum en bara mér innblástur. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó | |||
| hún hlaðvarp #1 Rakel Guðmundsdóttir | 17 Mar 2026 | 01:19:37 | |
Kraftmikill frumkvöðull sem er ekki hrædd við að taka stökkið þegar hún sér tækifæri. Rakel Guðmundsdóttir , eignarhaldsstjóri hjá Alfa Framtak og annar stofnenda Venja, er gestur þáttarins. Við Rakel fórum yfir víðan völl í samtalinu okkar. Við ræddum um hvernig hlutverk stjórnar styður við bakið á stjórnendum fyrirtækja, frumkvöðlalífið og hvernig góð yfirsýn fjármagns skiptir öllu, stefnumótun og 100 daga áætlun. Að sjálfsögðu ræddum við líka móðurhlutverkið og hvernig forgangsröðun skiptir lykilmáli þegar kemur að því að halda jafnvægi. Í lokin ræddum við svo hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta stutt við foreldra í fæðingarorlofi og sérstaklega eftir það, málefni sem stendur okkur báðum nær. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó | |||
| hún hlaðvarp með Ernu Hrund - KYNNING | 10 Mar 2026 | 00:08:55 | |
Hvað er svo næst? spurning sem ég hef fengið ótrúlega oft undanfarnar vikur. Eftir að hafa hrisst all verulega upp í lífinu í leit að þroska og nýrri þekkingu með það í huga að langa að gera heiminn að betri stað varð til hún hlaðvarp. Í þessum kynningarþætti langar mig að gefa ykkur innsýn í það hvert ég ætla með þetta ferðalag og afhverju, ég reyni að gera þetta fyrst og fremst af einlægni og hreinskilni og með það í huga að við séum alltaf sterkari saman og sérstaklega þegar við leitum ráða hver hjá annarri. Í hverjum þætti fær ein kona sviðsljósið, við heyrum um þeirra ferðalag og lærdóm og verðum vonandi fróðari eftir hlustun. Inn á milli koma svo styttri þættir þar sem ég ætla að deila með ykkur mínum lærdómi. Markmiðið er að gefa konum innblástur og innsýn í ferðalag annarra kvenna, fá tækifæri til að spegla sig og þannig fá aukið sjálfstraust í að sækjast eftir tækifærum. Fá að heyra sögur af erfiðum ákvörðunum eða áskorunum sem þær hafa mætt og þroskað þær á sínu ferðalagi. Mig langar að opna umræðu um konuna sem vill ná langt, sem vill skapa sér sterkan stað í íslensku atvinnulífi og hafa áhrif. Eflaust hafa margar konur upplifað að þær þurfi að velja á milli fjölskyldu og starfsferilsins en er hægt að gera bæði eða má gera bæði? Í þáttunum kynnumst við ólíkum stjórnendastílum, hugsungargangi og hvernig viðmælendur hafa þróað sinn stíl yfir ferilinn. | |||