Explore every episode of the podcast Hinir íslensku náttúrufræðingar
| Title | Pub. Date | Duration | |
|---|---|---|---|
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Þórunn Wolfram Pétursdóttir, doktor í umhverfisfræðum | 23 Feb 2021 | 00:48:29 | |
Þórunn Wolfram Pétursdóttir er doktor í umhverfisfræðum frá Landbúnaðarháskóla Íslands og sviðstjóri hjá Landgræðslunni. Hún hefur fjölbreytta starfsreynslu, m.a. sem héraðsfulltrúi hjá Landgræðslunni, sem aðstoðarmaður umhverfisráðherra, auk þess að hafa verið í rannsóknarnámsleyfi við eina af rannsóknarstofnunum framkvæmdarráðs Evrópusambandsins á norður Ítalíu. Henni er umhugað um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og endurheimt náttúrugæða og trúir á þverfræðilega nálgun til að ná árangri. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Jón Björnsson, þjóðgarðsvörður | 09 Feb 2021 | 00:58:19 | |
Að vera náttúrufræðingur er aðeins einn af höttum Jóns Björnssonar, þjóðgarðsvarðar í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Í hlaðvarpinu segir Jón okkur frá hinum fjölmörgu störfum sem hann hefur komið að, á sjó og á landi, en ferill hans sem landvörður hófst á Hornströndum. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Erna Sif Arnardóttir | 02 Feb 2021 | 00:32:04 | |
Erna Sif Arnardóttir er lektor við verkfræði- og tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Hún leiðir stóran hóp alþjóðlegra vísindamanna í verkefninu "Svefnbyltingin" en verkefnið hefur hlotið einn stærsta styrk sem veittur hefur verið til rannsókna hér á landi úr Horizon 2020 rammaáætlun ESB fyir rannsóknir og nýsköpun. Erna Sif er líffræðingur að mennt og heillaðist að erfðafræði á menntaskólaárunum. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Kristinn Haukur Skarphéðinsson, fuglafræðingur | 26 Jan 2021 | 00:46:28 | |
Kristinn Haukur Skaphéðinsson er manna fróðastur um erni á Íslandi en hann á langan starfsferil að baki hjá Náttúrufræðistofnun Íslands við rannsóknir á þeim og öðrum fuglum í náttúru Íslands. Í hlaðvarpinu segir Kristinn Haukur okkur frá námi sínu og störfum - og skemmtilegum fuglum sem hann hefur komist í kynni við. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Rannveig Guicharnaud, jarðvegsfræðingur | 19 Jan 2021 | 00:44:43 | |
Hvað eiga jarðvegur, Evrópusambandið og þríþraut sameiginlegt? Jú, þau hafa notið krafta Rannveigar Guicharnaud, jarðvegsfræðings. Hún lætur ekki landamæri eða tungumál stöðva sig og hefur sinnt margvíslegum verkefnum á sviði jarðvegsfræði, kortlagningu og samráðs. En Rannveig er einnig margfaldur Íslandsmeistari í þríþraut og hefur staðið á verðlaunapalli heima og erlendis í ófá skipti. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Ólafur Ingólfsson, jarðfræðingur | 12 Jan 2021 | 00:58:15 | |
Ólafur Ingólfsson, jarðfræðingur, hefur farið víða til að stunda rannsóknir og vísindastörf en viðfangsefni hans eru einkum á sviði jarðsögu og jöklajarðfræði á heimskautasvæðunum. Hann hefur farið í leiðangra til Suðurskautslandsins og dvalið langdvölum á Svalbarða en hann hefur einnig stundað rannsóknir í Síberíu og Kalahari eyðimörkinni. Samt ætlaði Ólafur ekki að verða náttúrufræðingur í upphafi. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Snorri Sigurðsson, líffræðingur | 22 Dec 2020 | 00:28:29 | |
Snorri Sigurðsson hefur um árabil starfað hjá Reykjavíkurborg að málefnum er snúa að náttúruvernd og líffræðilegri fjölbreytni í borgarlandinu. Hann sinnir jöfnum höndum margvíslegri fræðslu til íbúa borgarinnar og er þátttakandi í mótun stefnu og skipulags í Reykjavík. Um þessar mundir sinnir Snorri einnig verkefni í Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu sem snýr að nátturuminjaskrá og undirbúningi friðunar. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Bryndís Brandsdóttir, jarðeðlisfræðingur | 15 Dec 2020 | 00:59:40 | |
Bryndís Brandsdóttir jarðeðlisfræðingur er okkar helsti sérfræðingur í sjálftamælingum og hefur komið að vöktun og rannsóknum á hérumbil öllum gosum landsins síðustu 50 árin. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Þráinn Friðriksson, jarðefnafræðingur | 08 Dec 2020 | 01:01:09 | |
Þráinn Friðriksson er jarðefnafræðingur og starfar við jarðhitarannsóknir hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Sérsvið hans hefur leitt hann víðsvegar um heiminn til kennslu, ráðgjafar og rannsókna, m.a. fyrir Þróunarsamvinnustofnun og Alþjóðabankann í Washington. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Þóra Ellen Þórhallsdóttir, grasafræðingur | 04 Dec 2020 | 00:48:01 | |
Þóra Ellen Þórhallsdóttir er prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands. Hún hefur stundað rannsóknir á náttúru Íslands um árabil og er mörgum að góðu kunn fyrir framlag sitt til náttúruverndar. Í hlaðvarpinu segir hún okkur frá námsferli sínum, störfum og rannsóknum á hálendi Íslands og víðar. | |||
| Hinir íslensku náttúrufræðingar - Kynning | 03 Dec 2020 | 00:00:50 | |
Í hlaðvarpinu Hinir íslensku náttúrufræðingar hittum við íslenska náttúrufræðinga, kynnumst rannsóknum þeirra og störfum, heima og erlendis, ástríðu þeirra fyrir náttúru og ævintýrum sem þeir hafa ratað í. | |||