Back
Explore every episode of the podcast Fílalag
Dive into the complete episode list for Fílalag. Each episode is cataloged with detailed descriptions, making it easy to find and explore specific topics. Keep track of all episodes from your favorite podcast and never miss a moment of insightful content.
| Title | Pub. Date | Duration | |
|---|---|---|---|
| White Christmas – “Let’s Go Have a Coca-Cola” | 20 déc. 2024 | 01:31:58 | |
Bing Crosby – White Christmas Það gengur svo mikið á í lífi okkar að við þurfum stundum pásu, frið, hlé. Við þurfum þetta hlé einu sinni á ári. Jólin eru fyrst og fremst hlé frá veseninu, rifrildinu, stríðinu og stritinu. Þess vegna elskum við hvít jól. Því snjórinn leggur hvíta mottu yfir allt, kallar fram […] | |||
| 1979 – Goth báðu megin | 13 déc. 2024 | 01:19:30 | |
The Smashing Pumpkins – 1979 Lífið er endalaust. Fyndinn 16 ára gaur djögglar snakkpokum inn í flúorljósum 10-11, tvær stelpur hlæja en meira að honum en með honum. Lífið er endalaust, orkan er endalaus, hláturinn hættir aldrei. En dauðinn er nærri, dauðinn er inn í okkur og með okkur og það er daðrið við dauðann […] | |||
| Only Time – Silkiþræðir Keltans | 06 déc. 2024 | 00:57:12 | |
Enya – Only Time Hver þekkir vegi himinsins? Fuglinn. Hver veit hvert vindurinn mun blása? Fuglinn. Hver býr yfir grimmd grameðlu og sakleysi páskaungans? Aðeins fuglinn. Hver hratt af stað iðnbyltingunni? Keltinn. Hvert er leynihráefnið í rokk og ról? Keltinn. Hver skynjar tímann sem leiftur? Aðeins keltinn. Peningar. Hollywood. Kastalar. Brún augu í þokunni, hrjóstrug […] | |||
| Snertu, elskaðu og fljúgðu – You’ve Lost That Lovin’ Feelin’ | 29 nov. 2024 | 01:11:25 | |
The Righteous Brothers – You’ve Lost That Lovin’ Feelin’ Kærleikurinn. Geðveikin. Gnægðin. Háloftin. Hlið himins. F-18. 33C. Undir þér er motta. Lokaðu augunum, opnaðu hjartað, láttu þig falla. | |||
| Undir regnboganum – Nanooq í Kringlunni | 15 nov. 2024 | 01:06:40 | |
Hvalræði – Undir regnboganum Jökulblátt vatn. Orbit-tyggjó. Fljótandi ísjakar. Morgunsjónvarps stjarna hlær. Skutull skríður. Blóð fossast. Veðurbarinn maður með barta í Víetnam hermannajakka gefur vélinni meiri olíu. Það er hugmyndastríð á Norðurslóð, takmarkalaus þykistuleikur í búningi káboj og indjána. Allsherjargoði og eilíft sumar, ostaslaufur, kókdós og jójó-æði. Norðrið, norpið, nístingurinn og Nanooq í Kringlunni. | |||
| Rasputin – Alheimsgreddan | 01 nov. 2024 | 01:04:38 | |
Boney M – Rasputin Á meginlandi Evrópu býr leigubílstjóri sig undir langa vakt. Hann girðir terelín buxurnar upp að handahrikum og herðir beltið vel áður en hann klæðir sig í hnausþykkann perrajakkann. Grænn Derrick-skífusími hringir. Hann svarar og heyrir að hinum megin á línunni er rykfrakkaklæddur einkaspæjari með fjárkúgunartilburði. Annars staðar á hnettinum er Hemmi […] | |||
| Walk Away Renée – Tær buna | 25 oct. 2024 | 00:59:28 | |
The Left Banke – Walk Away Renée Glimrandi unglingar, tærir en tjúllaðir, nýbúnir að ljúka upp gáttinni að undrum klassískrar tónlistar, búnir spjótum og panflautum, nestaðir af náttúrunnar hendi, í víðum skyrtum og þröngum jökkum. Glimdrandi unglingar, tyggjójórtrandi, skröltandi beinahrúgur með þróttmikil hjörtu. Ó elsku sixties síkadelíu frumkvöðlar, opinmynntir, stóreygir en svo óbrynvarðir gagnvart lendingunni. […] | |||
| Venus – Appelsínugulur órangútan losti | 18 oct. 2024 | 00:54:54 | |
Shocking Blue – Venus Hollenskur nefapi sveiflar sér á grein. Starfsmaður Philips bókar sig á tveggja stjörnu hótel við hlið Paddington stöðvarinnar í London. Kona setur á sig klút. Í efnafræðistofu í austurhluta Reykjavíkur brennur magnesíum. Jack London horfir á. | |||
| No Woman, No Cry – Skráargat gullna hliðsins | 11 oct. 2024 | 01:39:53 | |
Bob Marley – No Woman, No Cry Samruni tónlistar og trúar, akursins og borgarinnar, gamla tímans og nýja. Skurðpunkturinn, meitluð sneiðmyndin, hin ljóslifandi rispa á landslagi hugans, auga ljónsins grafið djúpt í gamla Adidas merkið. Í mesta myrkinu, moðreyknum er að finna göngin að ljósinu. Þangað verður gullvagninn sendur og upp í hann stígur riddari […] | |||
| All I Wanna Do – Tilhlýðilegt hangs | 04 oct. 2024 | 00:59:31 | |
Sheryl Crow – All I Wanna Do Þetta er ekki mega djamm. Þetta er ekkert sunnudags sófaspjall heldur. Þetta er miðlungs sötr. Menn að fá sér. Skaðræði í litlum skömmtum. Tilhlýðilegt hangs. Sheryl Crow flaug inn um glugga Ameríku sem bakraddafagmaður. Hún kunni allar ritningar sunnudagsskólans og söngleikjadeildarinnar. Hún kunni og hún framkvæmdi. Og hún […] | |||
| Eitt lag enn – Sprittkerti á Stórhöfða | 27 sept. 2024 | 00:56:11 | |
Brimkló – Eitt lag enn Það er myrkur. Það er kalt. En hérna inni er heitt. Funheitt og huggulegt. Það er stórhríð úti. Úlfurinn blæs og fnæsir á kofann en grísinn er teppalagður fyrir innan. Það er stormsveipur á ferð, sjó rignir og allt hangir á bláþræði. En hér inni er huggulegt. Allavega í smástund […] | |||
| Our House – Hlý baunastappa og maukgírun | 20 sept. 2024 | 01:04:49 | |
Madness – Our House Takið rytjótt gólfteppi, nýsteikta ástarpunga, nokkur vel notuð garðáhöld, ilmvatn unglingsstúlku og gatslitinn Umbro fótbolta og skellið þessu í hakkavélina og myrjið þessu yfir ballskóna og pússið ofan í leðrið þar til þið sjáið glettið andlit ykkar birtast sem spegilmynd. Sparkið svo upp hurðinni og hoppið upp í aftursætið á Austin […] | |||
| Exit Music (For a Film) – Hjarta hjartans | 13 sept. 2024 | 01:31:43 | |
Radiohead – Exit Music (For a Film) Himininn yfir París. Þrútið var loft og þungur sjór. Tæring þess tærasta. Annó erótíka. Þú ert steindautt lík við vegarkantinn. Blóði litað blóm. Júlía leggur hníf að hjarta sínu. Lokuð augu Rómeós. Farðu burt, burtu frá mér. Ég er eitur. Manga-teiknimynda aflitun. Rúmdýna fyrir ofan Salatbar Eika. Close-mækuð endurköstun […] | |||
| Superstition – Hátt enni, heitt efni | 06 sept. 2024 | 01:14:09 | |
Stevie Wonder – Superstition Klístrugt tyggjó undir kirkjubekk í Tannhjólaborg U.S.A. Kælt kampavín á fjallatígrisfeldi. Brynvarðir leðurjakkar og Jésúskegg. Hugsuðurinn í hillunni. Fjallabaksleið úr landi Stefáns. Ævintýri enn gerast. Sól rís, músík heyrist, hiti stígur upp. Hið hversdagslega kraftaverk sem bindur herbergið saman. Undur og stórmerki. Undur, undur og yndi. Bjórinn Stella Artois var einu […] | |||
| Free Bird – Fenið og flugið | 30 août 2024 | 01:10:29 | |
Lynyrd Skynyrd – Free Bird Það er morgun. Beikonlitaður mótorhjólamaður kjammsar á djúpsteiktri krókódílatá. Hitamælirinn sýnir 40, rakamælirinn er sprunginn. Úr útvarpinu heyrast skruðningar þar til það brestur á með Free Bird. Krómsleginn álsívalningur flýgur um loftin blá. Sólglampandi fiðrildi fleygir sér inn í opinn og bjartan faðm maís-akranna. Við erum kannski ekki snákar, limlausar […] | |||
| Boombastic – Bóman rís | 16 août 2024 | 01:45:57 | |
Shaggy – Boombastic Svalur andvari. Honda Civic keyrir eftir Grensásvegi. Lítil sólgleraugu, hátt orkustig. Shaggy heyrist í útvarpinu. Allir fíla. Sumir halda að þetta sé grín, en verða brátt undir öldunni. Sóli Hólm kom í heimsókn og fílaði lagið um sprengikraftinn, frá uppáhalds eyjunni okkar allra, Jamaica. Allir að vera róóóóó-legir, en það er urrandi […] | |||
| Lady (Hear Me Tonight) – Frelsi, jafnrétti, sólarlag | 09 août 2024 | 01:04:17 | |
Modjo – Lady (Hear Me Tonight) Freknuklasi á andliti fyrirsætu. Endalaus hlátur, endalaus harmur. Fingur móta blautan leir. Ilmur blóma. Hringtorg, fjallaþorp. Himininn er heiðblár. íþróttagallar. Smáglæpir. Citroen. Lokuð augu, þróunin og þykknið. Þú ert ástfanginn í fyrsta sinn. Bláar nótur. Blá veröld, eilífrar æsku og eilífs önuglyndis | |||
| Álfareiðin – Hátindurinn | 26 juil. 2024 | 01:06:34 | |
Álfareiðin – Björgvin Halldórsson, Gunni Þórðar, Sjonne og Hænir Sveif snúið. Stimplar hamrast niður í þéttum takti. Allir mælar rjúka upp, vísar þeirra titra við mörk hins hvíta og rauða. Þessi vél keyrir á fullri ákefð og hana fær ekkert stöðvað. Það er tjú-tjú-trylla að sporleggjast yfir holt og hæðir, gegnum skóga og dimma dali, […] | |||
| Jerusalema – Húlú og Zúlú | 20 juil. 2024 | 00:48:08 | |
Master KG ásamt Nomcebo – Jerusalema Vírusinn herjar. Ekki bara þessi kórónajakkafataklæddi heldur líka annar og skæðari. Dansfár sækir að heimsbyggðinni. Við erum ekki að tala um Macarena eða Gangnamanna-stílinn heldur dans og söng sem sóttur er dýpra, úr sjálfri frumorkunni, frá Afríku. Það má segja margt leiðinlegt um covid og heimsfaraldur, zoom-fundi og fjarlægðartakmarkanir. […] | |||
| Windmills of Your Mind – Hola hugmyndanna | 12 juil. 2024 | 01:11:49 | |
Dusty Springfield – Windmills of Your Mind Langa-langa-langamma spinnur garn á spólu, hring eftir hring, ull sem hefur krullast og ullast í víraðan spíral af kind sem hefur staðið og jórtrað öld eftir öld, með kjálka sem snúast hring eftir hring, endalaust, að eilífu inn í rafrásir heilans sem gnísta boðum sársauka og gleði um […] | |||
| Seven Nation Army – Sýrustig sálarinnar | 28 juin 2024 | 00:56:49 | |
White Stripes – Seven Nation Army Ýlfrandi hundar. Paranoja. Sándtékk. Teppalagning. Apaheili. Converse All Star sólar klístrast við malbik bílastæðis. International House of Pancakes. Altarisdrengir lemja hvern annan með skiptilykli í skottinu á belgvíðum Plymouth með risastórri afturrúðu. Fílabein kramið í morteli, sáldrað í línur yfir gervigras í bakgarði einstæðrar móður sem hlaut ekki lottóvinning kvöldsins. Sýróp. […] | |||
| Way Down We Go – Djöfullinn á hringtorginu | 14 juin 2024 | 01:19:55 | |
Kaleo – Way Down We Go Kjúklingabringurnar eru lentar á eldhúsbekknum, kaldar og blautar í frauðplastbökkum. Þær smokra sér úr plastinu eins og geimverur í Ridley Scott mynd. Þær smokra sér úr plastinu og klæða sig í ullarsjöl og setja á sig hatta. Kjúklingabringurnar steikja sér egg á pönnu. Þær horfa á eggið spælast á […] | |||
| Crazy – Klikkun | 31 mai 2024 | 01:12:58 | |
Crazy – Patsy Cline Kötturinn svífur um eldhúsið. Hárþurrkan syngur sópran inn á baði. Rafmagnslínurnar svigna milli stauranna úti á götu og spila hægan kontrabassagang. Það er klikkun í gangi. Kona lætur renna í krómbað og leggst í kaf sjálfsvorkunnar og efasemda. Þetta er bilun og brjálæði, fegurð og funhiti. | |||
| Sex on Fire – Logandi kynlíf ljónanna | 24 mai 2024 | 00:59:39 | |
Kings of Leon – Sex on Fire Hafið þið séð ljónshvolpa í dýragarði, leika við hvern annan, bíta í hálsa og veltast um í gamnislag, lúra svo þess á milli ofan á hver öðrum eins og tuskur. Ef það væri hægt að taka þessa orku, þetta ljónshvolpamódjó og setja á flöskur, þá væri maður með […] | |||
| Dag sem dimma nátt – Strenging húmsins | 17 mai 2024 | 01:10:34 | |
Í Svörtum fötum – Dag sem dimma nátt Oft hefur Ísland nötrað. Undan hrolli jöklanna, undan jarðhræringum, undan hafísnum, landsins forna fjanda. Oft hefur hrollurinn læst sér í taugakerfi þeirra sem hér búa, refa, minka og manna. Og hrollurinn framkallar herping, þúfur á handarbaki, húð kennda við gæsir og fygl. Það eru milljón ástæður til […] | |||
| Will You Love Me Tomorrow – Paradísarmissir, missir, missir, missir (bergmál) | 10 mai 2024 | 01:04:47 | |
The Shirelles / Carole King – Will You Love Me Tomorrow Hvað er þetta annað en paradísarmissir? Allt saman! Allar sögur! Nakið fólk að borða ávexti í vellystingum og búmm skömmustulegt fólk með fýkjublöð um klofið, grátbiðjandi um miskunn. Tveggja ára barn á bleyju, öskrandi og krotandi á veggi. Búmm. Sex ára barn í skóla, […] | |||
| Quit Playing Games (With my Heart) – Tárin, árin, sárin | 03 mai 2024 | 01:07:27 | |
Backstreet Boys – Quit Playing Games (With my Heart) Höfrungasýning í skemmtigarði. Aflitaðir endar. Rigning inni í vöruhúsi. Uppásnúnir gallajakkar. Pýramídasvindlara-umboðsmaður. Vinir að eilífu. Plakötin yfir rúmstokknum. Tárin, árin, sárin. Skipt í miðju, uppfært andlit, skemmtiferðasigling um veröld sem var, horfnar ástir, skot í myrkri, ölvunarakstur, MTV í Þýskalandi. Það var hlegið að þeim. Að […] | |||
| Gvendur á Eyrinni – Harmurinn, tyggjóið, eyrin og eilífðin | 26 avr. 2024 | 01:08:43 | |
Dátar – Gvendur á Eyrinni Esjan er klædd flaueli. Handan hennar springur bomban. Sveppaskýið rís til himins. Faxaflóinn verður appelsínugulur. Við ströndina standa eyjaskeggjar með hnausþykk bítnikka-sólgleraugu og horfa á hamfarirnar en heyra ekkert hljóð. Svo fara allir heim til sín og sjóða ýsu og hlusta á aflafréttir í útvarpinu. Ekkert gerðist. Það er allt […] | |||
| Perfect Day – Fullkominn dagur (Live frá Kex Hostel) | 12 avr. 2024 | 01:03:26 | |
Lou Reed – Perfect Day Í tilefni tíu ára afmælis Fílalag var ákveðið að hóa saman fólki og henda í snar basic live-fílun á Kex Hostel. Það þýddi ekkert annað en að fullkomna daginn með því að fíla Perfect Day. Er hægt að hugsa sér fílanlegra lag? Rammpirraður Lou Reed í lautarferð. Þetta gerist ekki […] | |||
| Heaven on their Minds – Stóru samskeytin | 05 avr. 2024 | 01:27:19 | |
Carl Anderson og Jesus Christ Superstar leikhópurinn – Heaven on their Minds Sólbruni. Tímasprengja. Páskar. Heilaga landið. Gallabuxur. Aktivismi. Oflæti. Broadway. Hamas. Bringuhár. Langferðabílar. Vinátta. Stereo. Neysla. Biskupsstofa. Flugskeyti. Fótanudd. Mattheusarguðspjall. Leðurjakki. Vandarhögg. Þórscafé. Handsprengja. Klútar. Kynlíf. Carlsberg. Konseptplötur. Eyðimörk. Sviti. PLO. Koss. F16. Rómarveldi. Hellisheiði. Reipi. Brauð. Golgata. Banjó. Kross. Hass. Skegg. Kristur. Súperstjarna. […] | |||
| Can’t Get You Out Of My Head – Búmmerangið í sefinu | 29 mars 2024 | 01:07:57 | |
Kylie Minogue – Can’t Get You Out Of My Head Orðið “popp” til að lýsa ákveðinni tegund tónlistar er einstaklega mikil svikamylla því það er viðeigandi fyrir það sem það lýsir á þrjá mismunandi vegu. Í fyrsta lagi þá lýsir orðið ákveðnu hljóði sem einkennir einmitt góða popptónlist. Góð popptónlist smellur í hlustunum, hún lætur […] | |||
| House of The Rising Sun – Húsið vinnur | 22 mars 2024 | 01:06:46 | |
The Animals – House of the Rising Sun Eins og við vitum öll þá hófst Bítlaæðið í Bandaríkjunum þegar ungmennni þess lands fengu að líta óklippt goðin augum í beinni sjónvarpsútsendingu frá CBS myndveri Ed Sullivans. Það var 9. febrúar 1964 og veröldin varð ekki söm aftur. Bítlarnir komu vel fyrir, dilluðu sér upp og […] | |||
| (Everything I Do) I Do It for You – Ör beint í hjartað | 15 mars 2024 | 01:07:21 | |
Bryan Adams – (Everything I Do) I Do It for You Þér er boðið í ferðalag. Hoppaðu upp á hestvagninn. Litli-Jón slær keyri í gamla bikkju og þú þýtur af stað í gegnum Skírið með fríðu föruneyti. Þetta er þeysireið, framhjá miðaldamörkuðum þar sem menn skjóta örvum og konur í þreföldum pilsum dansa. Við rjúkum […] | |||
| Going Home: Theme from Local Hero – Allt er fyrirgefið | 08 mars 2024 | 00:53:49 | |
Mark Knopfler – Going Home (Theme from Local Hero) Andinn. Stemningin. Newcastle upon Tyne. Þú þarft ekki að vera bestur, þú þarft ekki að vinna titla, þú þarft bara að vera góður við mömmu þína og gera við vaska. Þú ert hetja heimaslóðanna og við fyrirgefum þér mistök þín. Fílalag vaknar til lífsins á afmælisári […] | |||
| Teenage Dirtbag – Í aldingarði incelsins | 10 nov. 2023 | 01:16:51 | |
Wheatus – Teenage Dirtbag Girtu kakíbuxurnar upp að handakrikum þannig að pínulítið hjartað skýlist undir beltissylgju úr látúni. Fáðu þér oreo og mjólk eftir skóla. Það er keila í kvöld. Farðu út í K-Mart til að kaupa kanil því ef veröld þín lyktar ekki af kanil þá er hún ekki lengur númer eitt. Hálfsjálfvirkir bílar, hálfsjálfvirkar […] | |||
| My Heart Will Go On – Stirðnandi klökka hjartalausa djúp | 03 nov. 2023 | 01:18:04 | |
My Heart Will Go On (Love Theme from Titanic) – Celine Dion Blómabúðalykt. Orð sem voru hvísluð svo lágt að þau aldrei heyrðust. Unglingaherbergið sem stendur óhreyft. Þú heyrir panflautuleik á torgi í útlöndum. Ódýran, ómerkilegan panflautuleik spilaðan af kasettu. En þú færð kökk í hálsinn. Því þú ert lille og heimurinn er stór. Að […] | |||
| Got My Mind Set On You – Fjórfaldur skeinipappír í kók | 27 oct. 2023 | 00:49:04 | |
George Harrison – Got My Mind Set on You Hawai-skyrtuklædd Samsonite taska með bavíana-rass situr á Kastrup og drekkur 40 millítra af colgate tannkremi. Last call for boarding. Útitekinn maður opnar Fosters dós í verkfæraskúr. Hann leggur garðklippurnar á hilluna, gengur út og sest upp á leggjalangan flamingóa og tekst á loft. Á húsþaki í […] | |||
| Sing – Hjakk og spaghettí | 20 oct. 2023 | 01:14:35 | |
Fjórir fölir náungar í pólóbolum. Ljótur brúnn öskubakki á borði, búinn til í leirmótun á Waldorf-skóla. Hafrakex með sultu í kvöldmat í gær. Draumkennt blik í augum, sviti á efri vörum. Sami straumur og sló raflosta sínum yfir augu Syd Barrets lýstur inn í herbergi rafsurgs og tómra tebolla. Úr pottinum óma galdrar Tin-eyjunnar, óður […] | |||
| Skriðþunginn í skálinni – Bítlarnir – Dizzy Miss Lizzy, lifandi í Hollywood Bowl 1965 | 13 janv. 2023 | 01:18:26 | |
Bítlarnir eru að mörgu leyti þægilegt viðfangsefni. Þeir voru fjórir og þeir voru þvengmjóir. Þrátt fyrir alla sköpunargáfuna og dýptina þá eru Bítlarnir konsept sem er nokkuð þægilegt að setja í einn harðan pakka. Framkvæmdatímabil Bítlana afmarkast af sléttum tölum. Þeir störfuðu á árunum 1960-1970. Þetta var orkupakki sex, og hann situr naglfastur undir jólatré […] | |||
| Strönd og stuð! – Good Vibrations | 29 avr. 2022 | 01:36:34 | |
Rafbylgjur smjúga í gegnum þunna gifsveggi. Brunabíll keyrir í útkall. Í höfuðkúpu er haldin veisla. Húlahringir orbita áreynslulaust. Pabbi skammar. Stanislav nágranni er sendur í raflostameðferð. Sólin hamrar geislum sínum á stillt hafið. Segulband flækist. Ljósálfur liggur á blakbolta. Stendur svo upp og stígur dans, á ströndinni, í takt við rafbylgjur. Þessi fílun fór fram live […] | |||
| Goodbye Yellow Brick Road – Hinn sinnepsguli vegur (Live í Borgó) | 22 oct. 2021 | 01:38:09 | |
Elton John – Goodbye Yellow Brick Road Árið er 1973. Kynóðir Jesúsar safna krökkum upp í Volkswagen rúgbrauð og keyra til fjalla. Djúpgul skotveiðisólgleraugu seljast eins og heitar lummur. Bólufreðnir síðhippar gæða sér á Tex Mex meðan hár vex. Veröldin varð vitstola 1969 en þarna fjórum árum síðar hefur skollið á með heiðgulu rofi. Og […] | |||
| Wannabe – Kryds-ild | 24 sept. 2021 | 01:00:09 | |
Fyrsta plata Spice Girls hét Spice og hún var nákvæmlega það: krydd. Og ekkert venjulegt krydd heldur napalm-karrí-lyftiduft. Kryddpíurnar sprengdu upp veröldina, og eins og allar alvöru sprengjur, þá gerðust hlutirnir hratt og átökin voru mikil. En það sem stóð eftir voru þó falleg skilaboð um mátt tónlistar, gildi vináttu og mátt stúlkna og kvenna […] | |||
| Have You Ever Seen The Rain? – Full ákefð | 17 sept. 2021 | 01:10:38 | |
Creedence Clearwater Revival – Have You Ever Seen The Rain? Saga Creedence Clearwater Revival er best tekin saman með einu orði: ákefð. Hljómsveitin starfaði aðeins í örfá ár en gaf út sjö stórar plötur, ferðaðist um heiminn, tók Ed Sullivan mulninginn og Woodstock mulninginn og allt þar á milli. Og svo nánast eins skyndilega og […] | |||
| Gentle On My Mind – Lagið sem allir fíluðu | 10 sept. 2021 | 01:02:59 | |
John Hartford og ýmsir – Gentle on My Mind Setjið á ykkur svunturnar. Á hlaðborðinu eru Glen Campbell, Aretha Franklin, Frank Sinatra, Elvis Presley og Dean Martin. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa flutt og maukfílað lagið Gentle on My Mind eftir ameríska blue-grass tónlistarmanninn John Hartford, og það gerið þið einnig. Gentle on […] | |||
| Over & Over – Sans Serif | 03 sept. 2021 | 01:02:43 | |
Hot Chip – Over and Over Það er komið að tilgangslausu trúttilúllus skaðræði í formi duracell airwaves hjakks. Nú skal djammað fast og post mortem framkvæmt á post modern. Öld grafíska hönnuðarins. Eftirpartí á ellefunni. Þriggja pipara Ban Thai réttum sturtað yfir nóvember-kvíðann. Þröngar buxur, 8 GB RAM, heimildamynd um erfðabreytt matvæli. Staffadjamm. Ofnskúffan hennar […] | |||
| Let’s Spend the Night Together – Brokkið ykkur | 27 août 2021 | 00:54:56 | |
Rolling Stones – Let’s Spend the Night Together Farið inn í föðurhúsin, undir loðfeldinn, inn í merginn, inn í kjarnsýruna og marinerið ykkur þar til Stephen Hawking segir Bó að segja gó á Big Bang. Náðuð þið þessu. Ekki. Tökum þetta aftur. Farið inn í föðurhúsin, undir loðfeldinn, inn í merginn, inn í kjarnsýruna og […] | |||
| It Ain’t Over ‘Til It’s Over – Make-Up-Sex Möxun | 20 août 2021 | 00:52:45 | |
Lenny Kravitz – It Ain’t Over ‘Til It’s Over Snjáð gallabuxnaefni. Nefhringur. Skartgripir. Búdda-líkneski. Lág fituprósenta. Fender Rhodes. Haltu-mér-slepptu-mér-orka. Steinaldarmataræði. Innlit útlit í Amazon. Ríðum saman út í sólarlagið með John Wayne einu sinni enn. Einu sinni enn. Einu sinni enn. Kaffibarþjóna-augnaráðið. Vifta í húsgagnalausu herbergi. Engissprettur á túni. Naflahringir, sportrendur, blesönd á sundi, longboard-reið […] | |||
| The Logical Song – Saðsamasti morgunverður allra tíma | 06 août 2021 | 00:51:57 | |
The Logical Song bresku hljómsveitarinnar Supertramp frá 1979 er svo rökrétt að það nær ekki nokkurri átt. Samið af þunnum Bretum í hljómsveitabolum, tekið upp í fyrsta flokks hljóðveri í Bandaríkjunum, loftþéttur popppakki fyrir alla framtíð. Létt heimspekilegur texti með tímalausum hugleiðingum, Abbey Road hljómandi gítarar, wurlitzer hljómborðslínur og möfflaðar sjöu-trommur. The Logical Song er […] | |||
| Foolish Games – Djásnið í djúpinu | 30 juil. 2021 | 01:10:45 | |
Jewel – Foolish Games Það er mikið af rusli í heiminum. KFC-umbúðir á sófaborði, ljótar byggingar í illa skipulögðum borgum sem öllum er sama um, kusk á hillu, milljónir laga sem er tímasóun að hlusta á. Í raun er heimurinn bara einn stór ruslahaugur. Saga okkar líka. Flestar minningar, flest orð sem hafa verið sögð, […] | |||
| Fílalag – Wild Thing (2.0) – Þáttur frá 2014 | 23 juil. 2021 | 00:42:51 | |
Fílalag er í hýði eins og flestir aðrir landsmenn. Því gripum við til þess að gramsa í gullkistunni og draga fram í dagsljósið eina af fyrstu fílunum sem kuklaðar voru enda ekki að undrast því lagið er algjör frumeðlustomper: Wild Thing. Takk fyrir. Við látum ekki eina útgáfu duga heldur kjömsum á þrem útgáfum; orginallinn, […] | |||
© My Podcast Data · Independent project · Data from Apple & Spotify