Explore every episode of the podcast Biskupsmálið
| Title | Pub. Date | Duration | |
|---|---|---|---|
| 1. þáttur | 15 Feb 2026 | 00:44:19 | |
Þann 15. febrúar árið 1996 kom út frétt í DV um að nokkrar konur væru að ásaka valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskup Íslands, Ólaf Skúlason, um kynferðisofbeldi. Biskupsmálið svokallaða varð eitt eldfimasta mál samfélagsins í marga áratugi á eftir. Alfred-Wolfgang, ekkill Sigrúnar Pálínu, einna þeirra kvenna sem stigu fram, rifjar upp líf þeirra saman, baráttu hennar, þöggunina sem þau mættu og þau djúpu og langvarandi áhrif sem málið hafði á fjölskylduna. Elín Hirst, fjölmiðlakona, sem skrifaði bókina Ekki líta undan, um sögu Guðrúnar Ebbu, lýsir í þættinum persónuleika Ólafs og viðhorfi almennings til kynferðisofbeldis á þeim tíma sem ásakanirnar komu fyrst fram. Hún segir einnig frá því að hafa sem táningur orðið vitni að óviðurkvæmilegu athæfi af hálfu Ólafs í garð móður hennar. Guðrún Ebba, dóttir Ólafs Skúlasonar, lýsir eigin viðbrögðum og andrúmsloftinu innan fjölskyldunnar þegar málið kom fyrst upp, á tíma þegar hún hafði sjálf aldrei sagt frá því ofbeldi sem hún hafði orðið fyrir af hendi föður síns, Ólafs. Þá heyrum við einnig Sigfinn Þorleifsson, fyrrverandi sjúkrahússprest, segja frá því að hann hafi fengið til sín konur í sálgæslu sem höfðu reynslu af því að Ólafur Skúlason hafði farið yfir mörkin, áður en mál Sigrúnar Pálínu varð opinbert. Biskupsmálið er heimilidaþáttaröð sem fjallar um hvernig kirkja, réttarkerfi og samfélag brugðust við þegar valdamikið embætti var sett undir smásjá. Þættirnir koma út vikulega, á sunnudögum. Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir. Fréttaefni fengið frá Rúv. | |||
| Biskupsmálið - Trailer | 29 Jan 2026 | 00:02:52 | |
Í febrúar eru liðin 30 ár frá fyrstu fréttum af því þegar konur stigu fram og sögðu frá kynferðislegu ofbeldi af hendi eins valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskups Íslands, Ólafs Skúlasonar. Biskupsmálið er heimilidaþáttaröð sem fjallar um hvernig kirkja, réttarkerfi og samfélag brugðust við þegar valdamikið embætti var sett undir smásjá. Þættirnir koma út vikulega, á sunnudögum. Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir. Fréttaefni frá Rúv. | |||