Explorez tous les épisodes du podcast Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
| Titre | Date | Durée | |
|---|---|---|---|
| Átakapunktur 2 | 21 Aug 2025 | 01:14:34 | |
🎙️ Átakapunktur #2 – Fjórir reiðmenn og hvað við getum gert í staðinn Í þessum þætti förum við í gegnum fjóra hegðunarmynstur sem samkvæmt rannsóknum Gottman-hjónanna geta spáð fyrir um sambandsslit – ef ekkert er gert. Þetta eru „Fjórir reiðmenn“: gagnrýni, varnarviðbrögð, fyrirlitning og lokun. En það er von ✨ – því fyrir hvern og einn er til gagnlegt andsvar sem hjálpar pörum að tengjast á ný, byggja upp traust, öryggi og virðingu í sambandinu. Við ræðum dæmi, lausnir og æfingar sem pör geta notað strax í dag til að snúa ágreiningi í styrk. 👉 Endilega deildu þættinum með öðrum #átakapunktur #fjörirreiðmenn #gottman #pararáðgjöf #vonráðgjöf | |||
| Átakspunktur #1 – Að skilja sjónarhorn maka (Gottman-Rapoport aðferðin) | 11 Mar 2025 | 00:48:01 | |
Lýsing: Í þessum hlaðvarpsþætti förum við yfir hvernig hægt er að leysa ágreining í samböndum á uppbyggilegan hátt, áður en reynt er að “sigra” í rifrildi. Við skoðum Gottman-Rapoport nálgunina, innblásna af rannsóknum John Gottman, sem snýst um að hlusta og draga saman sjónarmið hins aðila áður en við reynum að svara fyrir okkur eða sannfæra makann um eitthvað. Hvað lærir þú? • Skipta um hugarfar: Hvernig forvitni og opin hugarfarsbreyting getur dregið úr varnarviðbrögðum. • Hlutverk þess sem talar: Notkun “ég”-setninga, að forðast ásakanir og tjá raunverulega þörf. • Hlutverk þess sem hlustar: Að taka punkta, draga saman og staðfesta tilfinningar — allt til að auka traust og tengingu. • Fresta sannfæringu: Af hverju það er svo gagnlegt að skilja sjónarhorn maka fyllilega áður en maður reynir að koma sínum rökum á framfæri. • Ávinningurinn: Hvernig þessi samskiptaaðferð skapar meiri nálægð, dregur úr misskilningi og styrkir sambandið til lengri tíma. Ef þú vilt uppgötva raunvirka leið til að læra að hlusta betur og minnka togstreitu í sambandinu þínu er þessi þáttur fyrir þig! Við förum í gegnum helstu aðferðir, algeng mistök og rannsóknarniðurstöður sem sýna hversu áhrifarík Gottman-Rapoport nálgunin er til að bæta samskipti og auka nánd. Slökkvum eldana með skilningi í stað varnartilfinninga – hlustaðu og fáðu verkfæri til að styrkja samskiptin þín enn frekar! | |||
| Gildi Tengsl | 06 Oct 2022 | 00:38:30 | |
I þessum þætti ætlum við að ræða um tengsl og ávinning þess að eiga í góðum tengslum við fólk sem að marga ef ekki að allra mati er lífsnauðsynlegur þáttur til að öðlast hamingju. | |||
| Gildi sjálfsmynd | 27 Sep 2022 | 00:41:52 | |
Í þessum þætti tölum við um gildi Sjálfsmyndar. Hversu mikilvægt það er að eiga heilbrigða og sterka sjálfsmynd og ávinninginn af því að stuðla að heilbrigðri sjálfsmynd. | |||
| Gildi Taumhalds | 13 Sep 2022 | 00:36:46 | |
í þessum þætti tölum við aðeins um að hafa stjórn á orðum okkar. | |||
| Gildi þess að hlusta | 10 May 2022 | 00:47:06 | |
Í þessum þætti förum við yfir gildið að hlusta og áhrif þess á okkur sem einstaklinga og pör. Getur það haft áhrif á raunveruleika okkar sem og samskipti að læra að hlusta á aðra? Endilega deilið þættinum fyrir okkur og við þökkum ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að hlusta á okkur. | |||
| Gildi þess að skilja fólk | 14 Apr 2022 | 00:45:06 | |
Í þessum þætti förum við yfir gildi þess að skilja fólk. Við munum ræða um tengslamiðuð samskipti í þessari nýju þáttaröð. | |||
| Úr Heljargreipum - Ævisaga Baldurs Freys | 16 Nov 2021 | 00:43:36 | |
Jæja það hlaut að koma að því að við færum yfir upphafið. Hérna kemur það. | |||
| Loksins aftur! | 24 Aug 2021 | 00:38:00 | |
Vá hvað við erum búin að sakna ykkar! | |||
| Sjálfsvirði vs Sjálfsálit | 03 May 2021 | 00:45:59 | |
Við tölum aðeins um hvað það þýðir að hafa virði, erum við öll jöfn? | |||
| Fjórir reiðmenn hamfaranna - Gottmann | 02 Dec 2020 | 00:39:36 | |
Þessi reiðmenn eru ferlegir! | |||
| Endurtökum litlu hlutina - Gottmann | 14 Sep 2020 | 00:32:58 | |
Áður en leiðir skilja á morgnanna, verjið 2 mín í að spjalla við maka ykkar til að uppgötva allavega einn áhugaverðan viðburð sem mun eiga sér stað um daginn hjá honum/henni. Munið svo að kveðja hvert annað með kossi sem endist allavega í 6 sekúndur (þekktur sem 6 sek. kossinn). Þetta gerið þið svo alla virka daga. Til að viðhalda innilegu parsambandi þurfum við að gera og tjá ákv. þætti/hluti. Það er ekki nóg að hafa góðar, þekklátar hugsanir um makann, það er mjög mikilvægt að orða þær upphátt og láta hann/hana vita. Regluleg tjáning aðdáun og þakklæti gagnvart maka hjálpar okkur að byggja upp ástargrunn. Hér eru nokkrar aðferðir til þess: · Deildu einhverju karaktereinkenni maka og ákv. atvik þar sem þetta karaktereinkenni kemur sterkt fram: Dæmi: Ég dáist að því hvað þú ert (umhyggjusöm, nærgætin, góð, kröftug, blíð, ljúf og skilningsrík) sérstaklega áðan þegar þú varst að leika við barnið okkar. · Gríptu maka þinn að því að gera eitthvað “rétt” og þakkaðu fyrir það · Sendu tölvupóst/sms eða hringdu yfir daginn og láttu maka þinn vita að þú sért að hugsa til hans/hennar · Stingdu skrifaðri ástarkveðju í bílinn/veskið hennar/hans | |||
| Heilbrigð sál í hraustum líkama – Heildræn nálgun að vellíðan 2 af 2 | 23 Jan 2025 | 00:51:17 | |
Hvernig getur líkamleg hreyfing bætt bæði líkamlega og andlega vellíðan? Í þessum þætti köfum við ofan í hvernig hreyfing getur hjálpað við að draga úr streitu, þunglyndi og kvíða, og hvernig hún styður við bataferli eftir áföll. Við fáum til okkar sérfræðing í líkamsrækt til að svara mikilvægum spurningum um hvernig hægt er að byrja, forðast algeng mistök og finna jafnvægi milli hreyfingar, mataræðis og andlegrar heilsu. Þú munt fá innsýn í: •Hvaða tegundir hreyfingar henta best fyrir andlega heilsu. •Hvernig á að byggja upp sjálfbæra rútínu, jafnvel á erfiðum dögum. •Hagnýt ráð til að finna hreyfingu sem veitir gleði og vellíðan. •Hvernig líkamleg og andleg heilsa vinna saman til að skapa jafnvægi í daglegu lífi. Við tökum einnig fyrir spurningar frá hlustendum um hvernig hægt er að styðja maka, byggja upp fjölskylduheilsu og setja raunhæf markmið fyrir nýtt ár. Þetta er þátturinn fyrir þig ef þú vilt byrja á nýju heilsuferðalagi, dýpka skilning þinn á hreyfingu sem verkfæri fyrir vellíðan eða einfaldlega fá hvatningu til að halda áfram. https://fafitness.is/ #HeilbrigðSál #HrausturLíkami #HreyfingOgVellíðan #Markmið2024 | |||
| Gottman við lærum að hlusta | 09 Jul 2020 | 00:40:09 | |
Makinn hlustar ekkert á mig. Við heyrum þessa setningu svo oft og er hun grunnurinn að tengslaleysi. 1. Hvað ertu að upplifa? 2. Hvað annað ertu að upplifa? 3. Hverjar eru grunnþarfir þínar hérna? 4. Hvers óskar þú þér helst? 5. Hvernig þróaðist þetta allt? 6. Hverjir eru aðal karakterarnir í þessum grunn tilfinningum sem þú ert að tala um? 7. Hvað viltu raunverulega segja hérna? Og við hvern? 8. Hvaða tilfinningar eru hér sem þú óttast að tala um? 9. Eru einhverjar blandaðar tifinningar hér? Hverjar eru þær? 10. Hverjir eru valmöguleikar þínir eins og þú sérð þá? 11. Hverjir eru + og - við valmöguleika þína? 12. Upplifir þú að þetta hafi haft áhrif á samband þitt (eða önnur sambönd) ef svo, hvernig? 13. Er einhver möguleiki á að þú hafir viljað gera hlutina öðruvísi? Ef svo, hvernig? 14. Hverjar eru skyldur þínar hér? 15. Áttu einhverja möguleika? 16. Hvers væntir þú af mér? 17. Hvað segja gildi þín þér hérna? 18. Hugsaðu um einhver sem þú lítur upp til, hvað myndi hann eða hún gera og hvernig myndi viðkomandi sjá þessar aðstæður?
Tjá skilning og samkennd á meðan þú hlustar:
1. Ég get sett mig í þín spor 2. Þú hlýtur að upplifa þessar aðstæður erfiðar/vonlausar 3. Þú ert í erfiðum aðstæðum hérna 4. Ég get fundið sársauka þinn 5. Ég vildi óska að þú þyrftir ekki að upplifa þetta 6. Þetta hljómar virkilega illa og hlýtur að taka á 7. Þú hlýtur að upplifa þig hjálparlausa/n 8. Ég er algjörlega sammála þér 9. Þú hljómar virkilega sannfærandi 10. Ég skil mjög vel að þú sért í uppnámi 11. Ég held þú hafir rétt fyrir þér hérna 12. Ég skil, leyfðu mér að draga þetta saman, það sem þú ert að upplifa hér er...
Hlustunar æfing: Skiptist á að spyrja hvert annað þessara spurninga: Notaðu þá listann á undanförnum bls. til að hjálpa þér að verða góður hlustandi
Segðu mér hvað í heiminum fær þig til að upplifa þessar tilfinningar: Hamingjusama/n Bjartsýn/n Örvængingarfull/ur Streitufulla/n | |||
| 39. Dagleg samskipti sem stuðla að tengingu | 30 Mar 2020 | 00:31:32 | |
Dagleg samskipti okkar við makan stuðla að því að við lærum að tengjast! Þessi samskiptauppskrift heldur okkur frá ágreiningi | |||
| 38. Hvernig getum við lært af átökum/rifrildum í samskiptum | 23 Mar 2020 | 00:33:05 | |
Það eru margar leiðir til að læra af átökum sem við eigum í við ástvini okkar. | |||
| 37. Hvenær er rétti tíminn að fara í ráðgjöf? | 16 Mar 2020 | 00:38:32 | |
Við þurfum öll að fara í ráðgjöf :) | |||
| 36. Makinn minn kemur ekki eins fram við mín börn og sín börn | 03 Mar 2020 | 00:37:01 | |
Mín börn og þín börn! | |||
| 35. Hvað á ég að gera við allar þessar tilfinningar | 24 Feb 2020 | 00:35:24 | |
Við tölum aðeins um tilfinningar og raunveruleika þeirra :) | |||
| 34. Ég upplifi að makinn minn elski mig ekki lengur | 17 Feb 2020 | 00:36:22 | |
Fyrst langar okkur að þakka þér fyrir að deila þessu hlaðvarpi með öðrum! Það er ótrúlega hvetjandi að heyra viðbrögð ykkar allra! Þið megið endilega gefa okkur umsögn á Itunes :) | |||
| 33. Gleði færni 13 & 14 | 10 Feb 2020 | 00:34:36 | |
Við höldum áfram að tala um gleðina og mikilvægi hennar í okkar daglega lífi. | |||
| 32. Gleði færni 10 - 12 | 03 Feb 2020 | 00:43:46 | |
Við höldum áfram að tala um gleðina. Við tölum hérna um hversu mikilvægt er að vera með orðlaus samskipti sem eru líkamstjáning okkar og raddblær. Við tölum um mikilvægi þess að láta ekki tilfinningarnar okkar ráða og halda okkur í vanlíðan. | |||
| 31. Gleði færni 8 & 9 | 27 Jan 2020 | 00:39:23 | |
Við höldum áfram að tala um gleðina! | |||
| Heilbrigð sál í hraustum líkama – Heildræn nálgun að vellíðan 1 af 2 | 06 Jan 2025 | 00:49:26 | |
„Heilbrigð sál í hraustum líkama – Heildræn nálgun að vellíðan“ Í þessum þætti förum við yfir hvernig þú getur nálgast líkamlega og andlega heilsu á markvissan hátt, sett raunhæf markmið fyrir nýtt ár, og fundið leiðir til að styrkja sambönd þín. Við deilum okkar persónulegu vegferð að vellíðan og gefum hagnýt ráð sem hjálpa þér að gera 2024 að besta árinu þínu. Við fjöllum einnig um hvernig hægt er að takast á við áskoranir tengdar tengdafjölskyldum, byggja upp heilbrigð mörk og eiga árangursríkar samræður við maka. Lærðu að styrkja sambandið þitt og skapa jafnvægi í lífi þínu með litlum, en áhrifaríkum skrefum. Við minnum einnig á Stefnumót mánaðarins! •Njóttu 20% afsláttar af matseðli á Grazie og upplifðu ítalska stemningu í hjarta borgarinnar. Tilboð gildir mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga. •Eða slakaðu á með makanum í Laugar Spa, þar sem þú færð tvo fyrir einn í aðgang alla daga í janúar. #HeilbrigðSál #HrausturLíkami #Tengdafjölskyldur #Sambandsráð #2024Markmið #StefnumótMánaðarins | |||
| 30. Gleði færni 6 & 7 | 20 Jan 2020 | 00:42:50 | |
Við höldum áfram að tala um gleðina. | |||
| 29. Gleði Færni 3 - 5 | 13 Jan 2020 | 00:39:23 | |
Við höldum áfram að dvelja við þetta frábæra viðfangsefni. Gleðin er eitthvað sem við getum þjálfað heilan okkar uppí að læra. | |||
| Gleði færni 1 & 2 | 06 Jan 2020 | 00:41:29 | |
Í þættinum hefjum við nýtt þema: Gleði | |||
| 27. Heilbrigð Mörk | 30 Dec 2019 | 00:38:49 | |
Við förum aðeins inná heilbrigð mörk og hvað það þýðir að segja nei. Hvernig getum við lifað og haft stjórn á okkur. | |||
| 26. Meðvirkni 9 | 23 Dec 2019 | 00:44:42 | |
| 25. Meðvirkni 8 | 16 Dec 2019 | 00:41:48 | |
Hvernig get ég lært að bera virðingu fyrir mér og ástvinum!
| |||
| 24. Meðvirkni 7 | 09 Dec 2019 | 00:44:25 | |
Við förum vel í það í þessum þætti hvernig við eigum að bregðast við þegar það á sér stað samskiptabrestur eða þegar einhver fer yfir mörkin mín. Hvernig getum við látið það leiða til dýpri tengingar. Það er velmögulegt að lifa í frelsi þegar kemur að tengingu og að leyfa tengingunni að dýpka þegar það koma upp brestir í samskiptum.
| |||
| 23. Meðvirkni 6 | 02 Dec 2019 | 00:47:29 | |
Við förum aðeins í berskjöldun í þessum þætti. Hvetjum fólk til að eiga betri jól en í fyrra. Við ræðum samskipti út frá meðvirkni og kærleika og hversu mikilvægt það er að hafa kærleikan að leiðarljósi í samskiptum.
| |||
| 22. Meðvirkni 5 | 25 Nov 2019 | 00:42:50 | |
Við erum að halda áfram með meðvirknina og hvernig við lærum að að lifa frjáls. Við töluðum um samskipta form og stíl sem við notum þegar við erum að tjá okkur út frá ótta.
| |||
| 21. Meðvirkni 4 | 18 Nov 2019 | 00:46:43 | |
Við höldum áfram að spjalla um meðvirkni á áhrif hennar á samskipti okkar og mikilvægi þess að eiga góð samskipti við fólkið okkar.
Með því að byggja svona samkskipti þá lifum við í friði, von og gleði! Panta hjá Barböru
| |||
| Jólaþáttur um það sem getur verið erfitt við jólin | 19 Dec 2024 | 00:39:12 | |
Þáttur 2: "Að finna merkingu og lækningu á jólunum" Í þessum þætti skoðum við leiðir til að finna huggun og merkingu á hátíðinni. Við fjöllum um: Að takast á við missi: Aðferðir til að heiðra minningu ástvina og finna huggun í minningum. Fimm stig sorgar Mikilvægi samfélagsstuðnings og að forðast einangrun
Hlutverk samskipta: Ráð fyrir opin og heiðarleg samskipti um jólaplön og væntingar Áhersla á þakklæti og árangursrík samskipti til að styrkja tengsl
Sjálfsumönnun á jólunum:
Hagnýt ráð fyrir líkamlega og andlega heilsu Mikilvægi sjálf-góðvildar og núvitundar
Að finna merkingu í hátíðinni:
Andlegir og tilfinningalegir þættir jólanna Ávinningur af góðverkum og hvernig þau auka vellíðan og félagsleg tengsl
Fyrstu jólin eftir skilnað:
Tilfinningalegar áskoranir og nýjar hefðir Mikilvægi sterkra stuðningskerfa fyrir seiglu og vöxt
Vertu með okkur þar sem við deilum persónulegum sögum og innsýn til að hjálpa þér að sigla um þessa hátíð með von og lækningu. | |||
| 20. Meðvirkni 3 af 8 | 11 Nov 2019 | 00:31:12 | |
Við skoðum í þessum þætti óttan og kærleikan út frá meðvirkninni! Við skoðum hversu mikilvægt það er að velja tengsl út frá kærleika í stað þess að velja að trúa því sem óttinn segir við okkur.
| |||
| 19. Meðvirkni 2 af 8 | 04 Nov 2019 | 00:32:29 | |
Við höldum áfram að spjalla um meðvirkni og hvernig við getum losnað undan áhrifum hennar eða minkað áhrif meðvirkni í líf okkar. Við fengum til okkar góðan gest hann Theodór Francis sem er að halda námskeið ásamt Baldri í Meðvirkni þann 30 nóv. Hægt er að finna námskeið á heimasíðu lausnarinnar.
| |||
| 18. Meðvirkni 1 af 8 | 28 Oct 2019 | 00:40:23 | |
Við erum að hefja spjall um meðvirkni. Þetta er fyrsti þáttur af átta í þáttaseríu sem fjallar um að læra að tengjast og vera í elsku þegar við tökum ákvarðanir í nánum samböndum sem við erum í við fjölskyldu og vini. Það er ótrúlega mikilvægt að læra að taka rétta á erfiðum málum sem fylgja meðvirkninni.
| |||
| 17. kynning á meðvirkni, námskeið og fl. | 22 Oct 2019 | 00:24:46 | |
Við ætlum að byrja að fjalla um meðvirkni í næstu þáttum snertum aðeins á því í þessum þætti. Við tölum um ástina og fleirra skemmilegt námskeið sem eru framundan hjá okkur! Hvað ef við erum meðvirk og þurfum hjálp til að yfirstíga hana? | |||
| 16. Afbrýðsemi, stúptengsl og fl. | 15 Oct 2019 | 00:45:04 | |
Fengum spurningu frá hlustanda sem við leituðumst við að svara. Afbrýðsemi út í fortíð maka. Það getur verið erfitt að burðast með tilinnnguna afbrýðisemi hún getur grafið undan trausti í parsambandinu. Við ýtum makanum meira frá okkur og oft getur hann upplifað að það sé eitthvað að honum eða upplifað makann með lítið sjálfstraust. Bæði virkar ekki vel á parsambandið. | |||
| 15. Unglingar með áhættuhegðun | 07 Oct 2019 | 00:47:40 | |
Við viljum stuðla að heilbrigði fjölskyldna að það séu tengsl í fjölskyldum. Áhættuhegðun unglinga er stórt vandamál í samfélaginu okkar og við þurfum að losa okkur við meðvirknina til að geta horfst í augu við vandan og tekið á honum. Við fengum frábæran gest til okkar hana Guðrúnu Ágústu en hjartað hennar brennur fyrir börnum með áhættuhegðun og er okkur sannur heiður að fá að ræða við hana. | |||
| 14. Parsambandið og samskipti | 03 Oct 2019 | 00:45:39 | |
Samskipti er það sem skiptir mestu máli fyrir okkur sem einstaklinga í samfélagi sem er orðið velrænt. Við töluðum um parsambandið, fjölskylduna, tengslavanda og sjálfsmynd. Sameining Lausnarinnar og Von hvað ber það í skauti sér. | |||
| 13. Að halda lífi í ástinni | 23 Sep 2019 | 00:41:18 | |
Baldur og Barbara fjalla hérna um leyndardóma þess að halda ástinni lifandi út frá vísindum ástarinnar. Samskipti eru svo mikilvæg ekki hvað við segjum endilega meira hvernig við segjum það. | |||
| 12. Tölum aðeins um KYNLÍF | 16 Sep 2019 | 00:35:37 | |
LETS talk about sex! | |||
| 11. Að fyrirgefa særindi | 09 Sep 2019 | 00:37:07 | |
Þessi þáttur fer í það að skoða hvernig er best að fara til baka og fyrirgefa særindi sem eru í hjarta okkar. Þegar við fyrirgefum þá eigum við heilsusamlegra líf. Við tölum aðeins um það hversu mikilvægt það er til að eiga góða samsipti og hvernig áföll fortíðar geta ennþá verið að hafa áhrifa á parsambandið eða hjónabandið. | |||
| Jólaþáttur hefðir og væntingastjórnun | 04 Dec 2024 | 00:45:32 | |
Í þessum þætti könnum við gleðina af jólasiðum og hvernig þeir móta sjálfsmynd okkar og styrkja fjölskyldutengsl. Við skoðum alþjóðlega jólasiði til að fá innblástur að skapa nýjar hefðir sem endurspegla nútíma fjölskyldudýnamík og gildi. Við ræðum mikilvægi hefða í að veita fyrirsjáanleika og öryggi, sérstaklega fyrir börn, og deilum persónulegum sögum um kærar fjölskylduhefðir. Við fjöllum einnig um þrýsting fjölmiðla um "fullkomin" jól og leggjum áherslu á að forgangsraða tengslum og persónulegum vexti fram yfir efnisleg gildi. Lærðu hagnýt ráð til að stjórna væntingum, eins og fjölskyldufundi og þakklætislista, til að auka jólánægju. Að halda utan um fjölskyldutengsl getur verið áskorun á jólunum. Við ræðum hugtakið fjölskyldukerfi og "þríhyrninga" samskipti sem valda spennu. Að finna jafnvægi á tíma er lykilatriði fyrir ánægjulega jólahátíð. Við leggjum áherslu á gildi gæðatíma með ástvinum og sjálfsumönnun, og veitum hagnýt ráð fyrir að skapa jafnvægi í jólaskipulagningu. Að lokum hvetjum við til að skapa nýjar minningar skemmtilega minningar með þínu fólki. Taktu þátt í athöfnum sem stuðla að vellíðan og fangaðu gleði hátíðarinnar. | |||
| 10. Haltu mér þétt | 02 Sep 2019 | 00:47:39 | |
Samræður 4. Haltu mer þétt | |||
| 9. Að heimsækja erfið augnablik | 26 Aug 2019 | 00:47:42 | |
Í þessum þætti ætlum við að ræða hvernig við getum farið aftur í erfið augnablik og lagað samskiptin okkar. Það er svo mikilvægt að báðir aðilar upplifi sig örugga í að heimasækja þessi augnablik saman án þess að fara inn í "djöflasamtölin". | |||
| 8. Að finna meyru svæðin | 19 Aug 2019 | 00:46:06 | |
Meyru svæðin eru svæðin sem færa samtalið yfir í "djöflasamtalið". Þegar snert er við þeim þá fer ég í að verja mig ef ég er "pursuer" eða sanna fyrir þér að ég sé ekki sökudólgur. Meðan "withdrawer" dregur sig til hlés og frýs því sársaukin segir honum að forða sér. Raunverulega þá eru báðir aðilar að upplifa sársauka og í stað þess að deila honum. | |||
| 7. Samskipti sem valda óöruggum tengslum | 12 Aug 2019 | 00:45:15 | |
Þessi þáttur flettir ofan af því sem er stærsti óvinur hjónabandsins og parsambandsins. Þessi þáttur kennir okkur að sjá hvar við erum að valda óöryggi. Samskiptin okkar eru lærð hegðun og það tekur tíma að læra nýjar venjur. Mikilvægast er að hjón og pör fari saman í þessa vinnu.
Til að panta á námskeið eða í ráðgjöf: https://pantatima.as.me/schedule.php
| |||