Retour

Explorez tous les épisodes du podcast Þór Podcast

Plongez dans la liste complète des épisodes de Þór Podcast. Chaque épisode est catalogué accompagné de descriptions détaillées, ce qui facilite la recherche et l'exploration de sujets spécifiques. Suivez tous les épisodes de votre podcast préféré et ne manquez aucun contenu pertinent.

Rows per page:

1–10 of 10

TitreDateDurée
Þórs podcastið – Siggi Höskulds 202518 Apr 202501:37:38
Siggi Höskulds fer yfir sviðið. Óðin Svan og Aron Elvar settust niður með Sigga Höskulds og fóru yfir málin.
Þórs podcastið – Siggi Höskulds20 Nov 202301:27:50
Nýr þjálfari Þórs, Sigurður Heiðar Höskuldsson, mætti í ítarlegt spjall til Arons Elvars Finnssonar og Óðins Svans Óðinssonar. Siggi ræddi um fyrstu vikurnar í starfi, komandi undirbúningstímabil og tímabil og allt þar á milli. Virkilega skemmtilegt spjall við þennan skemmtilega karakter.
Þórs podcastið – Láki Árna29 Mar 2022
Óðinn Svan og Aron Elvar fengu nýjan þjálfara meistaraflokks, Þorlák Árnason í ítarlegt spjall. Skylduhlustun fyrir alla Þórsara!
Þórs-podcastið – Viðtal við Orra Hjaltalín05 May 202100:32:58
Nýr þjálfari Þórs, Orri Freyr Hjaltalín mætti í spjall til Arons og Jasons og ræddi allt milli himins og jarðar. Áhugavert viðtal við þennan skemmtilega karakter.
Þórs podcastið – viðtal við Jakob Franz06 Feb 202100:21:33
Baldvin og Jason fengu nýjasta atvinnumann okkar Þórsara, Jakob Franz Pálsson, til sín í viðtal og ræddu við hann um félagsskiptin og ýmislegt fleira.
Þórs-podcastið – veturinn 2020-202113 Jan 202100:46:18
Nýr þáttur af Þórs-podcastinu. Aron, Baldvin og Jason ræddu allt frá sumrinu 2020 yfir í sumarið 2021. Farið yfir öll helstu mál sem tengjast knattspyrnuliði Þórs. Mættir í nýja aðstöðu hjá Podcast stúdíói Akureyrar og þökkum við þeim kærlega fyrir það. Endilega kíkið inn á psa.is.
Þórs podcastið – Geir Guðmundsson24 Aug 202001:14:34
Geir Guðmundsson „Ákvað að ég ætlaði að ná langt“ Handboltamaðurinn og Þórsarinn segir frá sínum ferli sínum til þessa í handboltanum í viðtali við Sæbjörn Þór. Hann var einnig frambærilegur í fótbolta. Geir ræðir valið á íþrótt, æfingaálag og áfallið að fá blóðtappa. Geir hefur leikið með Akureyri, Val og sem atvinnumaður í Frakklandi. Skyttan …

Continue reading "Þórs podcastið – Geir Guðmundsson"

Þórs podcastið – Sandra María Jessen28 Jul 202000:48:08
Sandra hefur nú leikið í eitt og hálft tímabil hjá Leverkusen og samdi undir lok síðustu leiktíðar um að vera áfram hjá félaginu. Sæbjörn Þór spjallar við Söndru um Leverkusen, atvinnumennskuna, landsliðið, breyttan lífstíl, framtíðarsýn, Þýskaland, Íslandsmeistaratitlana, Tékkland, sálfræðinámið og hvernig það hefur hjálpað. Sandra segir þá örlítið frá spennandi verkefni sem hún og bróðir …

Continue reading "Þórs podcastið – Sandra María Jessen"

Þórs podcastið – Hafþór Már Vignisson19 Jul 202000:49:11
Hægri skyttan Hafþór fer yfir íþróttauppeldið í Þór, árið með ÍR, framtíðina með Stjörnunni og atvinnumannadrauma. Hafþór ræðir um áhrif Bjarna Fritzsonar, aukaæfingar, langa hvíld vegna meiðsla og jólafríið síðasta.
Þórs podcastið – Júlíus Orri: Íþróttauppeldið og Þór Akureyri07 Jul 202000:37:14
Júlíus Orri Ágústsson er einn allra efnilegasti körfuboltamaður sem við Íslendingar eigum. Júlíus lék upp alla yngri flokka Þórs og hefur einnig leikið með öllum yngri landsliðunum. Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke ræddi við hann um ferilinn, Þór Akureyri og margt fleira. Birt með góðfúslegu leyfi körfunnar.
© My Podcast Data · Projet indépendant · Données issues d'Apple & Spotify