Retour
Explorez tous les épisodes du podcast Þættir úr sögu nútímans: Jóhann Páll Árnason
Plongez dans la liste complète des épisodes de Þættir úr sögu nútímans: Jóhann Páll Árnason. Chaque épisode est catalogué accompagné de descriptions détaillées, ce qui facilite la recherche et l'exploration de sujets spécifiques. Suivez tous les épisodes de votre podcast préféré et ne manquez aucun contenu pertinent.
| Titre | Date | Durée | |
|---|---|---|---|
| Aukaefni: Pallborðsumræður um innrásina í Tékkóslóvakíu 1968 | 14 Jul 2025 | 00:33:01 | |
Þátturinn Daglegt líf sem var útvarpað 31. ágúst 1968. Í þættinum er rætt um innrásina í Tékkóslóvakíu og áhrif hennar á samband kommúnistaflokka Vestur-Evrópu og Sovétríkjanna. Rætt við Kára Valsson prest, Styrmi Gunnarsson lögfræðing og blaðamann á Morgunblaðinu, Jóhann Pál Árnason menntaskólakennara, og Ásmund Sigurjónsson blaðamann á Þjóðviljanum. Umsjón: Árni Gunnarsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | |||
| Siðmenningarkrísa | 14 Jul 2025 | 00:53:48 | |
Í lokahlutanum ræðir Jóhann Páll Árnason ástandið í heimsmálunum í dag, ræðir af hverju Kína mun ekki taka fram úr Bandaríkjunum sem stærsta efnahagsveldi heims, spjallar um Donald Trump og MAGA-hreyfinguna, vandræði Evrópusambandsins og ýmislegt fleira. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | |||
| Sovét-módelið | 14 Jul 2025 | 00:55:02 | |
Í síðasta viðtali byrjuðum við að ræða hugtakið nútími sem má segja að hafi verið helsta viðfangsefni Jóhanns Páls Árnasonar undanfarna áratugi. Jóhann hefur rannsakað hvernig mismunandi menningarheimar hafa farið ólíkar leiðir í nútímavæðingu sinni. Hann hefur skoðað leið Japans til nútímans, þá ríkismyndun sem átti sér stað þar, en í dag einbeitum við okkur að Rússlandi og ræðum bolsévísku byltinguna og sovésku leiðina til nútímans. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | |||
| Margbreytilegur nútími | 14 Jul 2025 | 00:56:09 | |
Í öðru viðtalinu ætlum við að sökkva okkur dýpra í fræðasvið Jóhanns Páls Árnasonar og aðferðafræði, heyra um þá sögulegu félagsfræði sem hann stundar, Við munum ræða hvernig hægt er að stunda samanburð siðmenningarheima og í því samhengi ræðum við bæði ríkismyndun í Japan og þjóðveldisöldina á Íslandi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | |||
| Austur fyrir tjald | 14 Jul 2025 | 00:49:20 | |
Í fyrsta hluta viðtalsins förum við yfir æviferil félagsfræðingsins og heimspekingsins Jóhanns Páls Árnasonar. Við ræðum æskuárin á Dalvík á fimmta og sjötta áratugnum, mótunarárin þegar hann fór sem ungur róttæklingur austur til Tékkóslóvakíu á tímum lýðræðislegra umbótatilrauna sem kallaðar voru Vorið í Prag. Við ræðum námið við hinn þekkta Frankfúrt-skóla þar sem Jóhann skrifaði doktorsverkefni hjá þýska heimspekingnum Jürgen Habermas og svo vegferð hans til Ástralíu þar sem hann starfaði sem prófessor í rúma þrjá áratugi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | |||
© My Podcast Data · Projet indépendant · Données issues d'Apple & Spotify