Retour

Explorez tous les épisodes du podcast Spegilmyndin

Plongez dans la liste complète des épisodes de Spegilmyndin. Chaque épisode est catalogué accompagné de descriptions détaillées, ce qui facilite la recherche et l'exploration de sujets spécifiques. Suivez tous les épisodes de votre podcast préféré et ne manquez aucun contenu pertinent.

Rows per page:

1–50 of 65

TitreDateDurée
65. Helga Sigrún Hermannsdóttir eigandi Dóttir skin- Vísindin á bak við sólarvarnir eru rosalega flókin21 mai 202501:15:20

Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Helga Sigrún Hermannsdóttir eigandi Dóttir skin. Helga Sigrún lærði efnaverkefræði í Danmörku og hefur ávallt haft mikinn áhuga á innihaldsefnum í snyrtivörum. Eftir að hafa sjálf upplifað slæman sólbrúna greindist hún með frumubreytingar og það hræddi hana. Í kjölfarið fór hún sjálf að nota sólarvarnir og hellti sér í rannsóknarvinnu á slíkum vörum. Hún segir mikilvægt að vera með gagnsæi, hreinskilni og fræðslu þegar kemur að húð- og snyrtivörum. Helga Sigrún segist ávallt hafa verið með stóra drauma en fyrir um þremur árum rættist einn þeirra þegar að hún stofnaði Dóttir skin með Crossfit íþróttakonunum Annie Mist og Katrínu Tönja. Með þeim þróaði hún sólarvörn sem ertir ekki húðina og hentar öllum - Í dag er varan komin í fjölmargar verslanir Lyfju en ferlið var alls ekki áfallalaust. Magnað spjall við þessa frábæru ungu konu.

 

#Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og Netgíró.

64. Linda Sæberg - Það bjargaði sennilega lífi mínu að hafa farið heim frá Balí27 avr. 202501:17:26

Hin ævintýragjarna, tilfinninganæma og fallega Linda Sæberg hefur upplifað ýmislegt á sinni lífsleið. Aðeins 36 ára greindist hún með þríneikvætt brjóstakrabbamein og þar með var fótunum kippt undan henni. Hún var erlendis í stelpuferð þegar hún fann æxlið og vildi einna helst sleppa því að ræða það frekar, því þá væri það, ef til vill ekki raunverulegt. Eftir greiningu breyttist lífið á augabragði og við tók erfið lyfjameðferð. Í dag er Linda Sæberg laus við krabbameinið og segist þakklát fyrir vegferðina.

Hún hefur verið í mikilli andlegri vegferð og ákvað fyrir örfáum mánuðum að segja starfi sínu lausu og opna nuddstofuna og verslunina Unalome, með sínum heittelskaða. Hún er menntuð sem félagsráðgjafi og fljótlega klárar hún þerapistanám sem mun nýtast henni í að aðstoða fólk við að hlúa að sárum sínum í kærleik. Áhugavert spjall við dásamlega konu í þessum hlaðvarpsþætti.

63. Jón Halldórsson hjá KVAN - Slökkvum á símanum og förum út!02 mars 202500:47:12

Jón Halldórsson, einn af eigendum KVAN var gestur í hlaðvarpinu að þessu sinni. Hann er menntaður íþróttakennari, lögreglumaður og vottaður ACC markþjálfi og hefur í fjölda ára starfað við að þjálfa einstaklinga, stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja. Jón er einnig starfandi formaður Handknattleiksdeildar Vals. Í þessum þætti áttum við einlægt spjall um starfið sem þjálfari og hvernig við sem einstaklingar blómstrum þegar við fáum að starfa við þau verkefni sem næra okkur. Jón hefur ásamt eiginkonu sinni og meðeigendum, ástríðu fyrir því að búa til umhverfi þar sem að börn blómstra, en hann segir einmitt það hafa verið grunninn að fyrirtækinu KVAN. KVAN er mennta- og þjálfunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í námskeiðahaldi og sérsniðnum þjálfunarlausnum og fyrirlestrum fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.

 

*Þátturinn er í boði: Max Factor, Netgíró og Klaka

62. Davíð Jensson lýtalæknir - Andlitslyfting er sú aðgerð sem hefur statt og stöðugt verið að sækja í síðastliðin 30 ár24 févr. 202500:48:40

Davíð Jensson lýtalæknir, Phd hjá Dea Medica var gestur í Spegilmyndinni að þessu sinni. Áhuginn í hjartalækningum var mikill til að byrja með þegar hann var að læra en eftir að hann kynntist skurðlæknisfræðinni og lýtadeildinni, þá var ekki aftur snúið. Davíð hlaut almennt lækningaleyfi árið 2009 og sérhæfði sig í lýtalækningum á Akademiska sjúkrahúsinu í Uppsölum þar sem hann hefur unnið frá árinu 2012. Samhliða sérfræðinámi stundaði Davíð rannsóknir við háskólann í Uppsala og lauk þaðan doktorsprófi á sviði andlitslömunar. Davíð hefur sérhæft sig í smásjárskurðlækningum með áherslu á brjóstauppbyggingar sem og uppbyggingar eftir andlitslömun og krabbamein á höfuð-og hálssvæði. Í þessum þætti ræddi hann almennt um lýtalækningar á Íslandi, hvaða aðgerðir og meðferðir eru vinsælar í dag ásamt því hversu mikilvægt það er að fagfólk meðhöndli fólk með fylliefnum og bótoxi sem er sívaxandi. Einstaklega skemmtilegt spjall við Davíð sem er með afskaplega góða nærveru.

 

*Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og Netgíró.

61. Steinunn Erla Thorlacius - Við getum fundið yfir 400 mismunandi sjúkdóma með heilskoðun09 févr. 202500:47:18

Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri og geislafræðingur hjá Intuens er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún segir frá starfsemi Intuens og útskýrir hvað felst í heilskoðun.

Intuens er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í snemmgreiningu og heilsufarsrannsóknum. Fyrirtækið nýtir sér háþróað segulómunartæki, til að greina sjúkdóma og heilsufarsástand, áður en einkenni verða áberandi. Með því að nota þessa tækni er hægt að finna yfir 400 mismunandi sjúkdóma, þar á meðal krabbamein, blóðtappa, bólgur og fleiri alvarlega kvilla, á frumstigi. Mjög áhugavert spjall, mæli með!

 

*Þátturinn er í boði Max Factor, Netgíró og Klaka.

60. Ísak Freyr Helgason - Þessi klassíska "beauty" förðun fer aldrei langt þrátt fyrir ný trend28 janv. 202501:02:36

Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason er einn af farsælustu förðunarfræðingum landsins. Hann býr í London með kærastanum og hundinum þeirra,  en er þó alltaf með annan fótinn hér heima að vinna að hinum ýmsu verkefnum. Hvort sem það eru myndatökur, kvikmyndaverkefni eða að ferðast um heiminn með stjörnum sem hafa bókað hann sérstaklega, þá er hann ekki mikið fyrir að auglýsa það sérstaklega. Hann segist þakklátur fyrir öll þau tækifæri sem hann hefur fengið en það kítli þó ekkert egó-ið hans. Öll verkefnin fara í minningarbankann en einna helst elskar hann að taka einn dag í einu, eiga stundir með mömmu sinni þegar hann heimsækir Ísland og ekki má gleyma huggulegum stundum að sauma út með ömmu sinni. 

* Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og Netgíró.

59. Tómas Oddur Eiríksson - Dans þerapían fann mig áður ég fann hana20 janv. 202500:47:07

Viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Tómas Oddur Eiríksson jógakennari og stofnandi Yoga Moves Iceland. Tómas er einnig meistarinemi í Dance Movement Therapy námi í Barcelona og klárar gráðuna sína innan skamms. Þegar Tómas prófaði sinn fyrsta jógatíma fannst honum hann vera kominn heim og þá var ekki aftur snúið. Eftir að hafa verið mikið leitandi þá ákvað hann að gerast jógakennari en hann segir að jóga kyrri ölduró hugans. Nú eru 10 ár síðan hann byrjaði með Yoga Moves Iceland þar sem hann leiðbeinir jóga sem leiðist út í dans með lifandi DJ tónlist undir en þar getur fólk skemmt sér fallega án áfengis og vímuefna. Tómas Oddur var ákaflega skemmtilegur viðmælandi en hann þráir um að geta gefið meira af sér í gegnum dans þerapíu sem getur verið ákveðinn stuðningur við geðheilbrigðismálin hér á landi.

*Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og Netgíró!

58. Erla Gerður Sveinsdóttir - Mýtur og staðreyndir um megrunarlyfin og þyngdarstjórnunarkerfið!31 déc. 202401:08:17

Í þessum síðasta þætti ársins fékk ég til mín hana Erlu Gerði Sveinsdóttur lækni en hún er sérfræðingur í offitumeðferðum. Hún hefur aðstoðað fjölmarga einstaklinga að skilja þyngdarstjórnunarkerfi líkamans sem getur reynt ansi flókið fyrir marga. Hún vill meina að við eigum að borða í takt við líkamsklukkuna okkar en nútimasamfélag er að trufla heilann gríðarlega. Við eigum að horfa á heilsufar á heildrænan hátt, bera virðingu fyrir okkur og velja leiðina sem hentar hverjum og einum. Í þessum þætti ræðir hún ítarlega um þyngdarstjórnunarkerfið, um kúra, föstur og megrun og að sjálfsögðu um megrunarlyfin sem hafa orðið gríðarlega vinsæl. Hér er á ferðinni ansi fræðandi spjall við skemmtilega konu.

Meira um námskeiðin hennar á Mín besta heilsa.

 

*Þessi þáttur er í boði Netgíró, Klaka og Max Factor.

57. Tryggvi Hjaltason - Góð lífsstílsráð til að ná 12-20 auka árum28 déc. 202400:45:03

Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Tryggvi Hjaltason en hann er mikill áhugamaður á rannsóknum tengt langlífi. Hann hefur rætt opinberlega um markmitt sitt að verða 200 ára en hann er á því að með aukinni þekkingu aukum við að sjálfsögðu lífslíkur okkar. Hins vegar þurfum við mörg hver að gera lífsstílsbreytingar. Tryggvi býr með fjölskyldu sinni í eyjum og hefur starfað sem greinandi hjá tölvufyrirtækinu CCP og framundan eru spennandi tímar. Tryggvi er með BS-gráðu í Global Secu­rity and In­telli­gence Studies frá Embry Riddle-há­skól­an­um í Arizona og með meist­ara­gráðu í fjár­mál­um fyr­ir­tækja. Í þessum þætti deilir hann með okkur ýmsum ráðum sem að rannsóknir hafa sýnt fram á að geti aukið lífslíkur okkar um 12-20 ár. Tryggvi var ótrúlega jákvæður maður og skemmtilegur viðmælandi sem við getum öll lært af.

 

*Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og Netgíró.

56. Desember hugleiðingar og Spegilmyndin10 déc. 202400:26:52

Í þessum þætti deili ég með hlustendum ýmsum hugleiðingum um sjálfið og lífið á persónulegu nótunum. Við speglum okkur öll í einhverjum eða einhverju í samfélaginu og því fylgja gjarnan ýmsar vangaveltur. Ég ræði upphaf Spegilmyndarinnar og deili hvað ég hef lært af viðmælendum mínum ásamt því að gefa áfram nokkur góð ráð til að huga að á nýju ári. 

 

*Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og Netgíró

55. Ella Björnsdóttir - „Gefðu kærleiksstund í jólagjöf“26 nov. 202400:55:25

Elín María Björnsdóttir varð landsþekkt þegar hún sá um Brúðkaupsþáttinn Já sem sýndur var á Skjá einum, á sínum tíma. Síðan þá hefur hún fengist við ýmis fjölbreytt verkefni. Ella býr yfir langri alþjóðlegri reynslu í mannauðsmálum, stjórnun og stefnumótun sem og breytingastjórnun og fyrirtækjamenningu. Nýjasta verkefnið hennar er fallega barnabókin, Dögg býður góða nótt. Sagan um draumálfinn Dögg varð upphaflega til þegar hún sagði Tinnu Margréti eldri dóttur sinni sögur fyrir svefninn til að vinna bug á myrkfælni hennar. Ella er gædd þeim kosti að hún hefur óstjórnlega löngun til að sjá fólk vaxa. Hún hvetur alla til þess að horfa á fólk með hjartanu því þá opnast hreinlega nýr heimur. Hér er á feðinni dásamleg kona með risastórt hjarta. Mæli með að þið hlustið!

*Þessi þáttur er í boði Max Factor, Netgíró og Klaka.

54. Lella Erludóttir - „Svona losarðu þig við loddaralíðan“16 nov. 202400:48:23

Lella Erludóttir er gestur í Spegilmyndinni að þessu sinni. Hún er ACC vottaður markþjálfi, mannauðssérfræðingur, viðskiptafræðingur og markaðskona með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hún býður upp á áhugaverð námskeið til að aðstoða fólk við að losa sig loddarlíðan (e. Imposter syndrome) í starfi. Hún segir að rannsóknir hafa sýnt fram á að um 70-82% fólks upplifir loddaralíðan einhvern tímann á einhverjum tímapunkti í starfi. Þetta getur verið afskaplega hamlandi og kvíðavaldandi - en það eru til lausnir. Loddaaraliðan kemur til upprunalega árið 1979 í rannsóknum á konum á vinnumarkaði en Lella ræðir þetta ásamt mörgu öðru í þessu stórskemmtilega spjalli. 

* Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og Netgíró. 

53. Vilma Ýr Árnadóttir - „Vilma! Ekki horfa í baksýnisspegilinn, haltu áfram“04 nov. 202400:54:42

Vilma Ýr Árnadóttir, eigandi Vilma Home, er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Í þessum þætti ræðir hún opinskátt um líf sitt. Meðal annars um upphafið á vefversluninni Vilma Home og frægu drykkjarbrúsana. Hvernig hún er stöðugt að stíga út fyrir þægindarammann en þó með húmorinn í forgrunni. Gagnrýni og stuðning á samfélagsmiðlunum ásamt því hvernig innsæið öskraði á hana að taka stórt skref og segja starfi sínu lausu eftir 19 ár. Hún ræðir dásamlega brúðkaupsdaginn sinn, kvennaferðir og margt annað áhugavert og skemmtilegt, rétt eins og hún er sjálf. 

* Þessi þáttur er í boði Netgíró, Max Factor og Klaka.

 

 

52. Theodór Francis Birgisson - „Hrósaðu makanum þínum á hverjum einasta degi"27 oct. 202400:50:53

Theodór Francis Birgisson kom í mjög áhugavert spjall í Spegilmyndinni á dögunum. Hann hefur sinnt margs konar störfum sem snúa að mannlegum samskiptum í gegnum tíðina og starfaði sem prestur á árunum 1993-2001 og aftur 2007-2009. Hann lagði í preststarfinu mikla áherslu á einstaklings- og pararáðgjöf og í dag starfar hann sem klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni sem er fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Þar leggur hann einnig ríka áherslu á para- og hjónabandsráðgjöf. Í þessum þætti ræðir hann hvaða vandamál eru algengust sem koma upp í parasamböndum, hversu mikilvæg nándin er og hvað raunverulega gerir fólk hamingjusamt. Mæli með að þið leggið við hlustir!

* Þátturinn er í boði Max Factor - Klaka - og Netgíró

51. Valdís Marselía Þórðardóttir (Skagabros) - „Gaman að hjálpa fólki að fá sjálfstraustið aftur“16 oct. 202400:45:18

Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir er dugleg á samfélagsmiðlunum undir nafninu Skagabros en þar deilir hún áhugaverðum og fræðandi molum um tannheilbrigði. Valdís er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Spegilmyndarinnar og ræðir um hvers vegna tannheilsa ætti að vera í forgangi. Skagabros fór heldur betur á flug þegar Valdís ákvað mæla sýrustigið í ýmsum vinsælum drykkjum sem margir hverjir neyta daglega til þess að kanna hversu mikil áhætta er á glerungseyðingu, þegar slíkir drykkir eru sörtraðir. Hún segist hafa virkilega gaman af því að fræða og ýta undir vitundarvakningu þegar kemur að tann og munnheilsu en fallegt bros gerir svo mikið fyrir sjálfsmyndina. 

50. Bára Atladóttir - „Aðhaldsfatnaður borgaði leiguna mína í mörg ár"06 oct. 202400:46:19

Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Bára Atladóttir hönnuður og eigandi Brá verslunar. Bára ólst upp í Breiðholtinu og segist ávallt hafa haft áhugann á handavinnu enda var hún dugleg að sauma föt á sjálfa sig fyrir hin ýmsu tilefni. Eitt leiddi að öðru og einn daginn tók hún ákvörðun sem átti eftir að umturna lífi hennar. Hún ákvað að eyða húsnæðissparnaðinum sínum í að kaupa verslun á Laugaveginum og byrja að selja eigin hönnun. Fyrirtækið blómstraði hratt og í dag rekur hún bæði netverslunina braverslun.is og tvær verslanir en önnur er á Akureyri. Í þessum þætti fáum við aðeins að kynnast Báru sem augljóslega lætur ekkert stoppa sig þegar hún fær hugmyndir. Þræl skemmtilegt spjall við dásamlega konu. 

 

* Þessi þáttur er í boði Klaka, Netgíró og Max Factor. 

49. Karin Kristjana Hindborg - Engin ábyrgð eða gæðastimpill á snyrtivörum af „gráa markaðnum".22 sept. 202400:35:31

Karin Kristjana Hindborg er mörgum kunn, en síðustu 10 ár hefur hún rekið verslunina NOLA og þekkir snyrtivörumarkaðinn gríðarlega vel. Karin hefur um þó nokkurt skeið  tekið umræðuna á sínum miðlum um neytendablekkinguna sem fyrirfinnst hér á landi hvað varðar snyrtivörur af gráa markaðnum og fyrir skömmu rataði sú umræða í fjölmiðla. Hún segir það vera henni hjartans mál að þetta komi upp á yfirborðið. Í þessum þætti ræðir hún þessi mál og óskar eftir skýrari lagaramma og frekara eftirliti á snyrtivörum sem seldar eru í verslunum víða - hvers vegna? Jú því það er enginn rekjanleiki, engin ábyrgð og enginn gæðastimpill á vörum af gráa markaðnum. 

* Þessi þáttur er í boði Max Factor, Netgíró og Klaka. 

48. Kári Sverris ljósmyndari - „Ef þú tekur skrefið, þá opnast heimurinn fyrir þér"15 sept. 202400:58:40

Kári Sverris ljósmyndari og fagurkeri er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hann ákvað að taka lífstíl sinn í gegn fyrir ekki svo löngu síðan, fara að stunda líkamlega og andlega rækt og setja sjálfan sig svolítið í fyrsta sæti. Hann segir að þá hafi hann fundið sköpunarkraftinn aftur sem býr innra með honum og hann hafi farið að sjá fegurðina í litlu hlutunum, skuggum og ljósi. Sýningarnar, The Art Of Being Me og Being Me urðu til í kjölfarið en þær hafa fengið mikið lof.

Kári Sverris hafði engan sérstakan áhuga á tísku þegar hann var mjög ungur, þrátt fyrir að foreldrar hans voru í tískubransanum. Hann var svolítill einfari og þótti notalega að vera einn að veiða. Á unglingsárunum fór hann að vinna hjá NTC, vann sig upp og fór að læra útstillingar. Eitt leiddi af öðru og fljótlega kviknaði áhugi hans á ljósmyndun og allskonar fagurfræði. Í þessum þætti förum við yfir líf hans þegar hann var nýgræðingur í ljósmyndabransanum og hvert hann stefnir í dag en framundan eru allskonar áhugaverð verkefni. 

 

*Þessi þáttur er í boði KLAKA, MAX FACTOR og NETGÍRÓ

47. Þorbjörg Hafsteinsdóttir - „Ég vil verða 100 ára ef ég er hraust“08 sept. 202401:02:39

Þorbjörg Hafsteinsdóttir er mögnuð kona. Hún rithöfundur, lífsmarkþjálfi og yogakennari . Hún hefur skrifað fjölmargar bækur um heilsu og heilbrigði og í dag heldur hún fyrirlestra fyrir stjórnendur fyrirtækja til að koma til móts við konur á breytingaskeiðinu. Ein vinsælasta bókin hennar 10 árum yngri á 10 vikum kom út árið 2011.  Hún segir að sá titill eigi kannski ekki við í dag en þó snúist þetta enn um það sama. Að mikilvægt sé að leita leiða til að lengja lífaldur og möguleikann á að líta betur út og líða betur í eigin skinni með heilbrigðari lífstíl. Þorbjörg syndir í sjónum við Danmerkur strendur allan ársins hring og æfir mörgum sinnum í viku með hópi af fólki inni í Kaupmannahöfn. Í þessum þætti ræðum við um hversu mikilvægt það er að vera hraust frameftir aldri. Frábært spjall við dásamlega konu sem segist vilja vera hraust amma þar sem hún er svo forvitin að upplifa lífið með barnabörnunum. 

 

*Þessi þáttur er í boði Netgíró og Max Factor

46. Jónas Tryggvi Stefánsson - „Tantra er lykillinn að geggjuðum forleik"01 sept. 202400:48:00

Gestur Spegilmyndarinnar er Jónas Tryggvi Stefánsson markþjálfi en hann er mikill áhugamaður um samskipti, sambönd og meðvirkni.

Jónas fékk töluvert áfall þegar hann skildi eftir 11 ára samband og ákvað að fara í mikla naflaskoðun hvað varðar sambönd og tilfinningar. Í dag heldur hann úti miðlinum Betra Box þar sem hann hjálpar fólki að vera samkvæmt sjálfum sér - en hann er á því að fólk eigi ekki að festa sig í ákveðnu boxi í lífinu. Við ræddum um sambönd og ólík sambandsform, kynlíf, sjálfsvinnu, hugleiðslu, kakó og líf hans sem fjölkær maður. 

* Þessi þáttur er í boði @netgiro 

45. Aðalheiður Jensen - „Það er minn tilgangur að sá þessum fræum heilsu og heilbrigðis"25 août 202400:43:20

Aðalheiður Jensen þjálfari er leikskólakennari í grunninn. Hún lærði Rope Jóga og lífsráðgjafann hjá Guðna Gunnarssyni heilsu- og lífsráðgjafa og um tíma kenndi hún vinsæla hópatíma hjá Primal. Fyrr á árinu stóð hún á tímamótum og hugleiddi að breyta til í lífinu sínu. Fyrir algjöra tilviljun var hún leidd áfram í átt til Guðna að nýju og hefur nú opnað sitt eigið heilsusetur í Garðabænum þar sem Rope Jóga var áður til húsa. Tilveran heilsusetur heitir það, en þar býður Aðalheiður meðal annars upp á liðleikanámskeið fyrir karlmenn sem heitir Mjúkir menn, Dansþerapíu námskeið, Dansflæði, Rope Jóga, Kröftugar konur og Sterkar stelpur. Einnig er boðið upp á opna tíma. Til að mynda Barre sem inniheldur kröftugar core æfingar. Konur og kvenheilsa er Aðalheiði mikið hugarfóstur en hún segir að það sé ákaflega mikilvægt að fólk yfir höfuð velji sé hreyfingu sem er í grunninn skemmtileg. Það eru spennandi tímar framundan hjá þessari dásamlegu konu í Tilverunni. 

 

* Þessi þáttur er í boði NETGÍRÓ sem er örugg og þægileg greiðslulausn. 

 

 

44. Valdimar Þór Svavarsson - „Rannsóknir hafa sýnt að áföll geta borist í gegnum 4 ættliði"17 août 202401:03:36

Í þessum þætti ræddi ég við Valdimar Þór Svavarsson en hann er eigandi og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu sem er ráðgjafaþjónusta. Valdimar er með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun og BA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Auk þess er hann sérfræðimenntaður í áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody og hefur gríðarlega reynslu af úrvinnslu í tengslum við meðvirkni, samskipti para og hjóna. Í þessum þætti fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars um sjálfsaga, meðvirkni, sjálfsvirðingu og ástarþrá en einnig hvernig ákveðnar skekkjur á æskuárunum geta haft áhrif á okkur á fullorðinsárunum hvað varðar meðvirkni og samskipti. Við ræddum hvernig áföll geta erfst milli kynslóða og hvernig hægt er að endurforrita ákveðnar hugsanaskekkjur til þess að brjóta áfallakeðjuna. Magnað spjall við einstaklega áhugaverðan mann. Mæli með að þið takið fram penna og ritið niður nokkra punkta úr þessu viðtali.  * Þessi þáttur er í boði NETGÍRÓ sem er einföld og örugg greiðslulausn. Skráið ykkur á netgiro.is

43. Sigrún Jónsdóttir eigandi Míró - „Ég elska að valdefla ADHD fólk eftir að hafa strögglað sjálf við ýmsa hluti"08 août 202401:10:39

Sigrún Jónsdóttir er þroskaþjálfi og ADHD og einhverfu markþjálfi. Hún lauk framhaldsnámi í ADHD markþjálfun frá ADD Coach Academy ADDCA í Bandaríkjunum árið 2018 og rekur nú fyrirtækið Míró í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði. Þar markþjálfar hún, veitir ráðgjöf og heldur valdeflandi námskeið. Til að mynda námskeiðið ADHD á kvennamáli sem er fyrir konur á aldrinum 18 og upp úr. Námskeiðið segir hún vera fyrir konur sem þrá að taka sviðið og birtast og vera þær sjálfar. ADHD þekkir hún af eigin raun, en hún greindist seint á lífsleiðinni og veit núna hversu áhrifarík markþjálfun er fyrir þá sem vilja yfirstíga hindranir og gera jákvæðar breytingar á lífi sínu. Hér er á ferðinni áhugavert spjall við skemmtilega konu sem hefur upplifað ýmislegt á eigin skinni. 

 

Þátturinn er í boði NETGÍRÓ sem er einföld, örugg og þægileg greiðslulausn á netinu og í verslunum. 

42. Sunneva Halldórsdóttir - „Það eru svo mörg efni í kringum okkur sem eru því miður hormónaraskandi"09 juil. 202401:03:06

Eins og svo oft áður hef ég ákveðið að skyggnast inn í heim heilsu, lífstíls og fegurðar en einnig að kynnast spennandi fólki sem lifir áhugaverðu lífi. Að þessu sinni kom Sunneva Halldórsdóttir í spjall en hún er mastersnemi í Líf -og læknavísindum og með BS gráðu í Lífeindafræðum. Hún heldur einnig úti mjög áhugaverðum instagrammiðli sem nefnist  EFNASÚPAN. Sunneva byrjaði með miðilinn í fæðingarorlofinu sínu með það að leiðarljósi að fræða fólk um efnanotkun og innihald efna í umhverfinu og í hinum ýmsu vörum. Hennar markmið er að fræða svo fólk eigi auðveldara með að taka upplýstari ákvarðanir til að velja betri kostinn þegar kemur að vörukaupum. Sunneva er einstaklega fróð og jákvæð manneskja sem fær mann virkilega til að vilja gera betur í lífinu. 

 

* Þessi þáttur er í boði NETGÍRÓ sem er einföld og þægileg greiðslulausn sem ég mæli með, sérstaklega þegar þú verslar á netinu. 

41. Ragnheiður Ragnarsdóttir - „Ég setti mér það markmið að verða drottning í Vikings"26 juin 202401:20:56

Ragnheiður Ragnarsdóttir leikkona eða Ragga Ragnars er gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni að þessu sinni. Ragga er fyrrverandi afrekskona í sundi og ólympíufari en eftir að hún eignaðist son sinn ákvað hún að uppfylla annan draum, að flytja erlendis og fara í leiklistarnám. Fyrir nokkrum árum landaði hún svo stóru hlutverki sem Gunhild í Neflix seríunni Vikings og í fyrra fór hún með hlutverk Baine í vinsælum sjónvarpsþáttum, The wheel of time. Ragga er heillandi kona sem trúir því að það sem á að gerast, mun gerast og í þessum þætti ræðir hún um það hvernig hún lauk sundferlinum og tókst á við ný verkefni í lífinu, bæði sem móðir og leikkona. 

40. Gerða Jónsdóttir eigandi Inshape - „Heilsa snýst um svo margt annað en þetta útlitstengda"13 juin 202401:15:23

Gerða Jónsdóttir er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Spegilmyndarinnar. Gerða er menntuð sem íþrótta -og heilsufræðingur en hún er með BSc gráðu í íþróttafræðum og MEd í heilsuþjálfun og kennslu frá HR. Einnig er hún með einkaþjálfara réttindi og hefur lokið dómaramáskeiðum í fimleikum. Um langt skeið hefur Gerða starfað sem einka- og hópaþjálfari, bæði í World Class og Mjölni og hefur haldið námskeið fyrir konur á meðgöngu og nýbakaðar mæður.

Einnig er hún hönnuður INSHAPE vörumerkisins sem er meðal annars sérhannað æfingarkerfi fyrir konur og heilsutengda viðburði og vörur. Gerða ræðir um margt áhugavert í þessu spjalli um heilsu og líkamsrækt en einnig fer hún yfir tímann sem hún nýtti á þessu ári til þess að taka sjálfa sig í gegn andlega og líkamlega eftir aðgerð.

Gerða er einstaklega hlý og með góða nærveru en hún leggur mikla áherslu á að hugsa um heilsuna til lengri tíma og muna að hafa vegferðina skemmtilega. Hér er á ferðinni ákaflega gott spjall við dásamlega konu sem hefur ákveðið að líta jákvæðum augum á tilveruna þar sem heilsutengt mál eru algjörlega hennar ástríða. 

39. Gunni Hilmarsson - „Tíska, tónlist og fótbolti var lífið"03 juin 202401:03:51

Gunni Hilmarsson er heillandi maður og mörgum kunnur sem mikill tískufrömuður. Hann byrjaði aðeins 16 ára í tískubransanum og hefur síðan þá unnið að ýmsum stórum hönnunarverkefnum í gegnum tíðina. Hann er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni og ræðir um líf sitt af mikilli einlægni. Þegar hann var unglingur var hann í tónlist en það var ekki fyrr en í kringum fertugsafmælið að hann ákvað að fara lengra með tónlistina. Úr varð tvíeykið, Sycamore Tree ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur söngkonu. Gunni er ótrúlega skemmtilegur listamaður og framundan eru spennandi verkefni á döfinni - en einnig ný plata sem hann segir að eigi eftir að koma skemmtilega á óvart. 

38. Unnar Már Unnarsson Osteópati - „Við erum að sjá fólk með inngjöfina í botni alla daga"23 mai 202400:50:28

Unnur Már Unnarsson Osteópati er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Unnar Már rekur Sigma heilsumiðstöðina en hann vinnur með manneskjunni á heildrænan hátt og leitast við að finna orsakavaldi sársaukans í stað þess að meðhöndla einungis einkennin. Unnar hefur ákveðnar skoðanir þegar kemur að því að hlúa að heilsunni en sjálfur hefur hann alltaf haft mikinn áhuga á líkamanum. Hann telur hraðann í samfélaginu mikið áhyggjuefni þar sem fólk er farið að venjast því að vera verkjað. Hann var lengi í fótbolta og þegar hann sjálfur slasaðist fékk hann meðferð hjá Osteópata sem breytti lífi hans. 

 

# Þátturinn er í boði Netgíró sem er þægileg og örugg greiðslulausn. 

37. Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti - Góð ráð til að komast í fitubrennsluform og koma lagi á blóðsykurinn16 mai 202401:01:04

Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur sérhæft sig í að leiðbeina fólki varðandi blóðsykurstjórnun og sykurlöngun, með það að markmiði að bæta líðan og heilsu fólks  - til að koma í veg fyrir bólgusjúkdóma. Hún deilir reglulega hinum ýmsu fróðleiksmolum  á samfélagsmiðlunum og heldur í dag netnámskeið fyrir fólk sem vill huga betur að heilsunni sinni, sigrast á sykrinum og jafnvel komast í fitubrennsluform. Hér er á ferðinni ákaflega skemmtileg kona sem brennir fyrir því að láta gott af sér leiða og fræða fólk um blóðsykurójafnvægi sem hún telur vera einn helsti heilsufaraldur þessarar aldar.  

36. Aníta Rún Guðnýjardóttir - „80% kvenna eru í rangri brjóstahaldara stærð"02 mai 202400:56:20

Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Aníta Rún Guðnýjardóttir eigandi verslunarinnar Sassy sem selur nærfatnað, aðfaldsfatnað og aðgerðarfatnað. Aníta er með ótrúlega gott úrval af vörum fyrir konur sem eru með eitt, tvö eða engin brjóst og leggur mikið upp úr því að fræða konur um hvernig þær eiga að klæðast brjóstahöldurum í réttri stærð. Saga Anítu er áhugaverð en hún eignaðist 3 börn á þremur árum og hefur farið í gegnum allskonar breytingar á líkama og sál í gegnum lífið. Hér er á ferðinni skemmtileg kona sem hvetur aðrar konur til þess að setja sjálfar sig í fyrsta sæti til þess að líða betur í eigin skinni. 

35. Hekla Guðmundsdóttir - „Bandvefslosun bjargaði mér eftir ítrekuð áföll"23 avr. 202400:55:42

Hin dásamlega Hekla Guðmundsdóttir er viðmælandi í Spegilmyndinni að þessu sinni. Hekla hefur gengið í gegnum röð áfalla á sinni lífstíð en hefur tekist á við þau verkefni af mikilli þrautseigju og jákvæðni. Hún var frá vinnumarkaði í um 14 ár vegna veikinda en hefur í dag fundið sína köllun. Bandvefslosun er hennar hugarfóstur en það kennir hún í Dans og jóga ásamt því að halda pop up viðburði reglulega. Hekla deilir sögu sinni af mikilli einlægni í þessum þætti og lýsir því hvernig Bandvefslosun bjargaði henni eftir röð áfalla. 

 

* Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró sem er örugg og einföld greiðsluleið. 

34. Helga Ólafsdóttir - „Stundum finnst mér ég geta sigrað heiminn"17 avr. 202400:31:43

Helga Ólafsdóttir er nýjasti viðmælandinn í Spegilmyndinni. Hún starfar í dag sem stjórnandi Hönnunarmars sem er hátíð hönnunar og arkitektúrs. Helga er með gríðarlega víðtæka reynslu í heimi hönnunar, þróunar skapandi verkefna, í stjórnun og rekstri. Hún er með BA gráðu í fata­hönn­un og vöruþróun frá Hell­erup Textile Col­l­e­ge í Kaup­manna­höfn og fata­hönn­un frá Kent Institu­te of Art and Design á Englandi. Í 11 ár rak hún hönnunarfyrirtækið sitt Ígló og Indí með barnaföt og hefur starfað sem hönnuður hjá All Saints á Englandi, yf­ir­hönnuður hjá Ilse Jac­ob­sen og vöruþró­un­ar­stjóri hjá Nikita. Í þessum þætti ræðir hún Hönnunarmars og margt annað sem tengist ástríðunni að hanna og skapa. 

 

* Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró sem er örugg greiðsluleið. 

33. Judith Jóhannsdóttir -„Nefið stjórnaði of miklu í lífinu mínu“08 avr. 202400:49:51

Í þessum þætti ræðir Marín Manda við Judith Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðinema, en hún ferðaðist til Tyrklands fyrir nokkrum vikum síðan og lagðist undir hnífinn til þess að fá nefið sem hana hafði dreymt um. Síðan hún man eftir sér átti hún erfitt með að sætta sig við nefið sitt, þrátt fyrir að hafa ekki skort sjálfstraust. Hún var staðráðin í því að breyta nefinu og lét til skarar skríða fyrir nokkrum vikum. Hún er himinlifandi með útkomuna þó hún sé enn að venjast nýrri útgáfu af sjálfri sér. Hér er á ferðinni ákaflega skemmtileg ung kona sem deilir sögu sinni á skondin en einlægan hátt 

 

** Þessi þáttur er í boði Neostrata og Netgíró

32. Lilja Sigurgeirsdóttir - „Ég brenn fyrir því að hjálpa fólki að eldast vel"31 mars 202400:49:54

Lilja Sigurgeirsdóttir er eins og ferskur andblær þegar hún kemur inn í upptökuverið, en hún er nýjasti viðmælandinn í Spegilmyndinni. Hún hefur aldrei verið þessi týpíska liðuga fimleikastelpa en starfar sjálfstætt í dag sem liðleika og hreyfanleika þjálfari. Lilja hefur verið með vinsæl námskeið sem heita Stirðir strákar og Flex Fit og segir alltof marga vera að eiga við stoðkerfisvandamál í dag. Nútimasamfélagið hafi gert það að verkum að fólk hafi hætt að hreyfa eins og áður þegar við vorum veiðimenn og því þurfi að bæta úr.  Áhugavert og skemmtilegt spjall við Lilju sem segist brenna fyrir því að hjálpa fólki að eldast vel í eigin líkama. 

31. Jara Gian Tara stjörnuspekingur - „Ég get hjálpað þér að tengjast þínum innri töfrum"21 mars 202400:56:26

Jarþrúður eða Jara Gian Tara er viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún er mögnuð kona. Hún er listakona, jógakennari og stjörnuspekingur sem semur tónlist og lærði heimspeki við Háskóla Íslands. Jara trúir á stjörnurnar og Human design. Hún aðhyllist stjörnuspeki og dulspeki og segir að það skipti máli hvenær og hvar við fæðumst. Jara vill meina að við höfum öll tilgang en oft þurfum við að komast í dýpri tengingu við okkur sjálf til þess að lífið verði magískt. Marín Manda ræddi við hana um alla þessa hluti og fékk hana örlítið til að skyggnast inn í stjörnukortið hennar. 

 

Þessi þáttur eru í boði Neostrata og Netgíró. 

30. Björn Þór Sigurbjörnsson - Stóralvarlegt að nota megrunarlyf til að komast í betra form fyrir Tene15 mars 202401:08:36

Björn Þór Sigurbjörnsson eða Bjöddi þjálfari er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Björn er einnig Ostopatíu nemandi og starfar í World Class. Hann er með yfir 20 ára reynslu af heilsu -og líkamsræktargeiranum og margir skjólstæðingar hans í dag eru konur á breytingaskeiðinu. Hér er á ferðinni ansi fræðandi og skemmtilegt spjall við Björn sem hefur sterkar skoðanir á matarkúrum, markaðsöflunum og hugarfari. Samkvæmt honum þarftu að hafa hugann í lagi til þess að þjóna líkamanum sem allra best, bæði á æfingum og í lífinu. 

 

*Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró - örugg og þægileg greiðslulausn. 

 

29. Berglind Guðmundsdóttir - „Ég þurfti að kveðja hver ég var og uppgötva sjálfa mig á ný"07 mars 202400:55:54

Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og markþjálfi er nýjasti gestur Spegilmyndarinnar. Hún er mikill matgæðingur, hefur gefið út matreiðslubækur og rak Gulur rauður grænn og salt, eitt vinsælasta matarblogg um langt skeið. Fyrir ekki svo löngu síðan stóð hún á tímamótum þegar hún þurfti að kveðja vörumerkið sitt og það tók virkilega á. Berglind er dásamlega skemmtileg og einlæg kona sem í dag heldur úti Instagram miðlinum Lífsgleðin og vefmiðlinum Salina.  Einnig sér hún um fararstjórn í skemmtiferðum fyrir konur til Ischia á Ítalíu. Mögnuð kona hér á ferð sem í dag segist einungis gera það sem gleður sig og þráir að lyfta öðrum konum upp. 

* Gleðiferð fyrir konur til Ischia: Hér

 

Þessi þáttur í boði Neostrata sem eru frábærar húðvörur sem vinna gegn ýmsum húðvandamálum og öldrun húðarinnar. Vörurnar fást hjá Hverslun. 

28. Ásdís grasalæknir - Heilbrigður lífstíll er lykilþáttur fyrir hormónaheilsu kvenna01 mars 202400:36:15

Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur rekið sína eigin stofu um árabil en hún útskrifaðist með BSc í grasalækningum frá University of East London árið 2005. Í dag hefur hún sérhæft sig í kvenheilsu og þótti því viðeigandi að ræða breytingarskeið kvenna, mataræði og ýmis náttúruleg bætiefni sem konur geta stuðst við á þessu tímabili. Ásdís starfar einnig í dag með GreenFit og hefur sjálf prófað allt undir sólinni í mataræði. Ásdís er skemmtileg og yndisleg kona sem þið getið fundið á Instagram: asdisgrasa

 

* Þessi þáttur er í boði NEOSTRATA sem eru húðvörur sem fást í öllum helstu apótekum en einnig Hverlsun.  

 

 

 

27. Hilmir P. Hjálmarsson öndunarþjálfari - Reis upp úr þunglyndi og lærði að anda rétt19 févr. 202401:00:29

Hilmir Petersen Hjálmarsson starfaði  áður sem bakari en starfar í dag sem öndunarþjálfari og gengur undir nafninu Breatheviking á samfélagsmiðlum. Hann er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hann ræðir á mjög einlægan hátt hvernig hann upplifði mikið þunglyndi í fjölda ára og var búin að ákveða hvenær, hvernig og hvar hann ætlaði að taka eigið líf. Í dag er hann nýr og breyttur maður og deilir með hlustendum hvernig hann náði að vinna sig út úr þessum erfiðleikum. Í dag aðstoðar hann fólk við að læra rétta öndun til þess að brjótast út úr stressi og vanlíðan til að verða heil. Mögnuð vegferð hjá áhugaverðum manni sem segir að rétt öndun getur raunverulega breytt hugarfari og lífi fólks. 

 

26. Kristín Edda & Sigríður hjá Spjöru - Leigja "boost" fyrir sjálfstraustið á sjálfbæran hátt12 févr. 202400:54:56

Að þessu sinni eru það Kristín Edda Óskarsdóttir og Sigríður Guðjónsdóttir  sem komu í spjall í Spegilmyndina, en þær eru eigendur fataleigunnar og umboðssölunnar Spjöru. Þessar frábæru konur sem eru fullar af eldmóð, ákváðu að opna fataleigu fyrir sparilegri tilefni og leigja út fallega merkjavöru með sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi. Þær fengu þessa hugmynd til þess að sporna við textílvandanum með von um það að fá fólk til þess að hugsa tísku upp á nýtt. 

25. Íris Björk hjá Beautybox - „Vítahringur að börn og unglingar noti virkar húðvörur"31 janv. 202400:44:45

Í þessum þætti ræðir Marín Manda við Írisi Björk Reynisdóttur förðunarfræðing, ljósmyndara og eiganda Beautybox verslunarinnar en Íris ræðir meðal annars um hversu varhugavert það er orðið að börn og unglingar séu að sækjast í virkar húðvörur. Hún telur að þessi þróun sé mikið áhyggjuefni í þessum heimi samfélagsmiðla þar sem skilaboðin herja á börn og unglinga (og fullorðna) að það eigi allir að vera með fullkomna húð. Þessi þáttur er stútfullur af fróðleik fyrir foreldra sem og aðra sem vilja kynna sér þessa þörfu umræðu. 

24. Áslaug Kristjáns kynfræðingur - „Netflix er í samkeppni við kynlíf"18 janv. 202400:50:16

Í þessum fyrsta þætti ársins fékk Marín Manda hana Áslaugu Kristjánsdóttur kynfræðing í spjall til þess að ræða kynlíf, samskipti, kynhegðun og sambönd, en hún gaf út bókina; LÍFIÐ ER KYNLÍF, á síðasta ári. Áslaug er einnig hjúkrunarfræðingur að mennt og segist hafa vitað snemma hvað hana langaði að starfa við. Áhugavert samtal við skemmtilega konu sem hvetur fólk í langtímasamböndum til þess að sinna nándinni og kynlífinu betur með allskonar góðum ráðum. 

23. Aldís Arna Tryggvadóttir streituráðgjafi - „Sært fólk, særir fólk”.05 déc. 202300:57:39

Viðmælandi Marín Möndu að þessu sinni er Aldís Arna Tryggvadóttir en hún starfar sem PCC vottaður markþjálfi, streituráðgjafi, klínískur dáleiðari, heilari og fyrirlesari hjá Heilsuvernd. Í þessum skemmtilega þætti ræðir hún um sína persónulega vegferð í gegnum streitu og áföll, upprisuna eftir leit að lífsins svörum, dáleiðslu og undirmeðvitundina. Aldís Arna var einstaklega áhugaverður viðmælandi sem virkilega fær mann til að doka við og hugsa líf sitt í þaula.

 

22. Þóra Hrund Guðbrandsdóttir - „Fjölskyldan er eins og fyrirtæki”.21 nov. 202300:50:49

Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Þóra Hrund sem er markaðsspekúlant, mannræktarmógull, markþjálfi og upplifunarhönnuður. Hennar nýjasta hugarfóstur er verkefnið „fjölskyldanmínehf" sem er einskonar leiðirvísir að betra skipulagi, samvinnu og samskiptum innan fjölskyldunnar. Ákaflega skemmtilegt spjall við hugmyndaríka og áhugaverða konu sem veit ekkert betra en að efla fólk í kringum sig með jákvæðri sálfræði. 

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar hér: thorahrund.com og Fjölskyldanmínehf

21. Fanney Magnúsdóttir - „Karlmenn vilja ekkert heyra um einhvern þvagleka”31 oct. 202300:48:13

Fanney Magnúsdóttir sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá TÁP er viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún hefur sérhæft sig í grindarbotninum og kvenheilsu en heldur einnig úti Instagram miðlinum Móðurmáttur ásamt samstarfskonu sinni. Í þessum þætti ræðir hún mikilvægi þess að vinna betur með grindarbotninn sem getur verið lykillinn að allskyns vandamálum sem konur eru sérstaklega að eiga við, hvort sem það er tengt spennu í líkamanum, þvagleka eða verkjum við samfarir. Áhugavert og fræðandi spjall við konu sem finnur lausnir fyrir aðrar konur. 

20. Harpa Káradóttir förðunarfræðingur - „Hugsaðu snyrtibudduna þína eins og krydd”.18 oct. 202301:15:34

Viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni er förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir. Hún er móðir, frumkvöðull, förðunarfræðingur og förðunarkennari en hún rekur Makeup studio Hörpu Kára. Hún ræðir meðal annars um öfgana í förðunarheiminum á samfélagsmiðlum við Marín Möndu, um vinsælu námskeiðin sem hún heldur fyrir fólk á öllum aldri og ástríðuna að hvetja áfram upprennandi förðunarfræðinga á Íslandi. Skemmtilegt spjall við dásamlega konu. 

19. Sirrý og Rakel hjá Venju: „Taktu inn þessa töflu og fáðu flatari maga“28 sept. 202300:36:15

Í þættinum ræðir Marín Manda við Sigríði Svöludóttur og Rakel Guðmundsdóttur eigendur Venju, sem er sérhönnuð fæðubótalína fyrir konur á ólíkum lífsskeiðum. Sigríður eða Sirrý hefur starfað í bætiefnabransanum í rúmlega 10 ár og var með þá hugmynd í maganum að leysa þetta flækjustig sem fólk upplifir þegar það kaupir fæðubótaefni og þannig hjálpa konum að gera upplýst kaup. Hugmyndin að Venju fékk að blómstra þegar hún hitti Rakel sem var þá að stýra Gló. Þær ræða mikilvægi þess að nota gagnrýna hugsun á allar þessar markaðherferðir sem dynja á okkur til að taka meðvitaða ákvörðun hvað hentar hverjum og einum. Með Venju hafa þær einfaldað þetta fyrir konur sem þurfa mismunandi bætiefni á mismunandi lífsskeiðum. Áhugavert spjall við frábærar konur. 

18. Hannes Sigurjónsson - „Versta er þegar að fylliefni er sprautað inn í slagæð“.17 sept. 202300:29:53

Hannes Sigurjónsson lýtalæknir er gestur Marín Möndu í hlaðvarpi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Sem ungur læknanemi fékk hann að vera með í aðgerðum sem faðir hann gerði sem er andlits-og kjálkaskurðlæknir - þannig fékk hann áhugann á lýtalækningum. Í þessum þætti ræðir hann ýmislegt sem við kemur fegrunarinngripum og aðgerðum og varar við áhættunum að leita til ófaglærðra innan þessa bransa. Áhugavert og fræðandi spjall við hann Hannes sem greinilega hefur upplifað ýmislegt á sínum ferli. 

17. Rakel Pálmadóttir hjá Harklinikken: „Oft byrjar hárlos eða hárþynning út af áföllum“.30 août 202300:34:09

Rakel Pálmadóttir framkvæmdastjóri hjá Harklinikken kom í skemmtilegt spjall til Marín Möndu. Rakel ræddi meðal annars um mikilvægi þess að hársvörðurinn sé í jafnvægi til að viðhalda heilbrigðu hári. Hjá Harklinikken fær hún til sín allskonar fólk sem kemur í einstaklingsmiðaða meðferð vegna hárþynningar. Hún ræðir einnig um það hvernig stress og allt álag á líkamann getur haft áhrif á hárið. Sérstaklega geta hornmónasveiflur sem konur ganga í gegnum getur haft mjög mikil áhrif á hárið. 

 

Þessi þáttur er í boði Neostata en húðvörurnar fást hjá Hverslun hér

16. Lukka Pálsdóttir - „Hálftíma göngutúr eftir síðustu máltíð er leikbreytir”21 août 202300:47:43

Lukka Pálsdóttir stofnandi Greenfit er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Lukka hefur aðstoðað fólk um áraraðir í heilsutengdum efnum tengt mataræði og heilsu, en fyrir um þremur árum varð Greenfit að veruleika. Þeirra yfirlýsta markmið með Greenfit er að reyna fjölga heilbrigðum æviárum hjá fólki með heilsufarsmælingum - því um leið og fólk getur mælt heilsuna sína þá fær það betri yfirsýn. Við áttum skemmtilegt spjall um allskonar heilsutengd efni og mikilvægi þess að fá upplýsingar um eigin heilsu því heilsa er ekki bara heppni. 

© My Podcast Data · Projet indépendant · Données issues d'Apple & Spotify