Retour

Explorez tous les épisodes du podcast Seinni níu

Plongez dans la liste complète des épisodes de Seinni níu. Chaque épisode est catalogué accompagné de descriptions détaillées, ce qui facilite la recherche et l'exploration de sujets spécifiques. Suivez tous les épisodes de votre podcast préféré et ne manquez aucun contenu pertinent.

Rows per page:

1–50 of 126

TitreDateDurée
#23 - Hlynur Geir á djamminu með Shane Lowry31 Aug 202401:00:08

Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum á Selfossi, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu.

Hann fór yfir frábæran keppnisferil í íslensku golfi, sagði okkur frá uppbyggingu golfsins á Selfossi og sagði okkur einnig magnaða sögu af sjálfum sér á djamminu með Íranum Shane Lowry í Tórínó.

Magnaður þáttur!

Þátturinn er í boði:

ECCO - XPENG - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

#22 - Kári tilkynnir að nýr Urriðavöllur verði hannaður af Robert Trent Jones Jr.20 Aug 202400:54:00

Kári Sölmundarson, formaður hjá Golfklúbbnum Oddi, ræðir við okkur í Seinni Níu um stækkun Urriðavallar í 27 holur.

Kári fer yfir stöðu mála hjá Golfklúbbnum Oddi og þar á bæ eru menn stórhuga. Búið er að ráða Robert Trent Jones Jr. í að hanna Urriðavöll sem 27 holu golfsvæði en sá hefur hannað marga af þekktustu golfvöllum í heimi.

Kári segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi og hvernig hann varð óvænt formaður í einum af stærstu golfklúbbum landsins.

Logi velur fimm erfiðustu par5 holur landsins. Ótrúleg saga af holu í höggi á Kálfatjarnarvelli um helgina.

ECCO - Lindin - Unbroken - Eagle Golfferðir

#13 - Inga Lind: „Ég er ofmetinn nýgræðingur“27 Jun 202400:53:27

Gestur vikunnar í Seinni níu er fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir sem er kylfingur með um 21 í forgjöf. Hún stýrir þættinum Golfarinn sem sýndur er á Stöð2 og hefur algjörlega fallið fyrir golfíþróttinni á síðustu árum.

Hún ræðir um golfið og deilir með okkur nokkrum frábærum heilræðum sem allir kylfingar ættu að tengja við.

Í þætti vikunnar veljum við einnig fimm bestu 9 holu velli á landsbyggðinni og ótrúlegur fróðleikur í spurningu vikunnar.

Seinni níu er í boði:

Ecco - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

#12 - Úlfar hefur ekki farið holu í höggi í 40 ár!20 Jun 202400:55:07

Úlfar Jónsson er gestur vikunnar í Seinni níu. Hann hefur sex sinnum staðið uppi sem Íslandsmeistari í golfi og náði þeim áfanga að vinna Íslandsmeistaratitilinn 6 sinnum á sjö árum.

Í dag vinnur Úlfar sem PGA golfkennari ásamt því að vinna hjá GKG. Úlfar ræðir einnig við okkur um Opna bandaríska meistaramótið sem lauk um síðustu helgi sem hann telur eitt það risamót á síðustu árum.

Powerrank og ýmislegt skemmtilegt til viðbótar.

ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

#11 - Birgir Leifur lærði golf á því að keppa við vinina12 Jun 202400:59:36

Gestur vikunnar í Seinni níu er Birgir Leifur Hafþórsson sem er sigursælasti kylfingur Íslands. Biggi hefur alls sjö sinnum orðið Íslandsmeistari í golfi.

Hann er nú að mestu búin að leggja keppniskylfurnar á hilluna og spilar meira sér til ánægju í dag ásamt því að ráðleggja ungum og efnilegum kylfingum.

Í þættinum fer Birgir Leifur yfir glæsilegan feril, veikleika og styrkleika í golfinu, lífið sem atvinnumaður og rifjar upp skemmtilegar sögur af ferlinum.

Jafnframt hitum við upp fyrir Opna bandaríska meistaramótið sem fram fer um helgina. Þar kom í ljós að uppáhalds kylfingurinn hjá Bigga í dag er hinn sænski Ludvig Åberg.

Þátturinn er í boði:

ECCO - Lindin - Unbroken - Collab - Eagle Golfferðir

#10 - Teitur fékk teighögg í lærið frá Keflvíkingi05 Jun 202400:52:47

Gestur þáttarins er körfuboltagoðsögnin Teitur Örlygsson. Hann hefði viljað byrja fyrr í golfi og er í dag með um 16 í forgjöf.

Teitur elskar að horfa á golf og missir varla af móti á PGA. Hann hefur brotið dræverinn sinn eftir mislukkað högg í Leirunni og fékk dræv frá Keflvíking í lærið af stuttu færi.

Teitur ræddi við okkur um golfið, körfuboltann og margt fleira. Spurning vikunnar og Powerrank.

Þátturinn er í boði:

ECCO - Lindin - Unbroken - Ölgerðin - Eagle Golfferðir

#9 - Kormákur fullnýtti golftrygginguna28 May 202400:50:44

Kormákur Geirharðsson, vertinn á Ölstofunni, tónlistamaður og fatabúðareigandi, er gestur Seinni níu þessa vikuna. Kormákur er fínasti kylfingur með um 15 í forgjöf en forgjöfin var talsvert lægri á árum áður.

Kormákur fékk ungur mikla golfdellu og vann nokkur sumar sem golfvallastarfsmaður á Grafarholtsvelli.

Í spjalli sínu við Jón & Loga segir Kormákur meðal annars frá því þegar hann fór holu í höggi í Kúala Lúmpur en var svo heppinn að geta fullnýtt golftryggingu á barnum að leik loknum.

Í þættinum kemur Coca-Cola endurunninn fatnaður meðal annars við sögu, pönk & golf, og erfiðleikar á púttflötinni.

Þátturinn er í boði:

Ecco - Eagle Golfferðir - Unbroken - Lindin - Ölgerðin

#8 - Steini Hallgríms fór með titilinn á þjóðhátíð22 May 202401:01:35

Gestur vikunnar í Seinni níu er enginn annar en Eyjapeyjinn Þorsteinn Hallgrímsson. Steini varð Norðurlandameistari árið 1992 og svo Íslandsmeistari árið 1993. Vinnuslys gerði svo út um atvinnumannaferil og tilraunir með hestasterasprautur dugðu ekki til.

Þorsteinn er íslenskum golfáhugamönnum að góðu kunnur enda hefur hann helgað lífi sínu golfi undanfarna áratugi sem keppniskylfingur, eigandi á golfverslun, golflýsandi og fararstjóri.

Nú glímir Steini við nýtt verkefni en hann er að jafna sig eftir að hafa veikst alvarlega af Covid fyrir nokkrum árum og ætlar sér aftur út á golfvöllinn.

Einnig förum við aðeins yfir PGA Meistaramótið og auðvitað er Powerrank á sínum stað!

Unbroken - ECCO - Lindin

#7 - Gunnar Birgis opinn fyrir samstarfi15 May 202400:57:10

Sjónvarpsmaðurinn Gunnar Birgisson er nýjasti gestur okkar í Seinni níu. Þátturinn átti upphaflega að vera einhvers konar upphitunarþáttur fyrir PGA Meistaramótið en endaði í umræðu um Eurovison, golf í Ásbyrgi, leit af samstarfsaðilum og meiri fyrirgefningu á golfvellinum.

Njótið vel!

ECCO - Ölgerðin - Unbroken - Lindin

#6 - Glæpsamlega gott golf með Jakobi Bjarnar14 May 202400:56:24

Fjölmiðlamaðurinn Jakob Bjarnar er nýjasti gestur okkar í Seinni níu. Jakob er kylfingur með um 16,6 í forgjöf og er virkur þátttakandi í golfíþróttinni á Íslandi.

Meðal umræðuefna eru:

- Íslenskar golflýsingar

- Bakmeiðsli

- Glæpsamlega gott golfmót á Spáni

- Kátir piltar

- Sóli Hólm sem Jakob Bjarnar

ECCO - Unbroken - Lindin

#5 - Þorgerður Katrín07 May 202400:45:44

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Seinni níu þessa vikuna. Þorgerður er kylfingur með um 11 í forgjöf og fór holu í höggi árið 2014.

Við tókum mjög skemmtilegt spjall um golfið, smá um pólitík og svo var powerrank á topp5 klúbbhúsin á Íslandi.

ECCO - Unbroken - Lindin bílaþvottastöð

#4 - Kröfuganga með Villa Birgis01 May 202400:45:27

Vilhjálmur Birgisson er gestur Seinni níu þessa vikuna. Verkalýðsleiðtogi frá Akranesi sem þolir ekki óréttlæti.

  • Óttast mest í golfi að sjanka.
  • Spilar 9 holur á 50 mínútum upp á Skaga eldsnemma á morgnanna.
  • Kjarabarátta er eins og erfið par5 hola.
  • Golf er besta lyfið við andlegum kvillum.

ECCO - Unbroken - Lindin

#21 - Theodór Hervarsson fer yfir golfveðrið15 Aug 202400:47:48

Í nýjasta þætti af Seinni níu kemur til okkar stjörnuveðurfræðingurinn Theodór Freyr Hervarsson. Hann er fínn kylfingur með um 13 í forgjöf.

Teddi svarar áleitnum spurningum golfáhugamanna um íslenska veðrið en sjálfur segist hann geta spila golf í nánast í hvaða veðri sem er.

Teddi er fyrrum Íslandsmeistari í fótbolta með liði ÍA en veðurfræðin á hug hans allan í dag og starfar hann hjá Veðurstofu Íslands ásamt því að fara með veðurfréttir á RÚV.

Logi er í beinni frá Washington DC og segir okkur frá fyrsta golfhringnum vestanhafs.

Seinni níu er í boði:

ECCO - Unbroken - Eagle Golfferðir - Lindin

#3 - Halli Melló um golf á lyfjum18 Apr 202400:43:59

Seinni níu fékk í heimsókn að þessu sinni leikarann Hallgrím Ólafsson eða Halla Melló eins og hann er jafnan kallaður.

Halli Melló er leikari í Þjóðleikhúsinu en einnig kylfingur með um 10 í forgjöf. Hann er stöðugur á drævernum og hefur fengið albatross.

ECCO - Lindin - Unbroken


#2 - Sigur endurskoðandans15 Apr 202400:46:38

Uppgjör á sigri Scottie Scheffler á Masters. Logi Bergmann & Jón Júlíus fara yfir stóru sögulínurnar á Masters mótinu í ár. Shawarmahlíð kemur við sögu.


- Er Scottie Scheffler nægilega skemmtilegur?

- Er Tiger búinn?

- Powerrank á helstu ósiðum á golfvellinum


ECCO - Lindin - Unbroken

#1 - Upphitun fyrir Masters10 Apr 202400:54:54

Fyrsti þáttur af Seinni níu GolfPodcast er kominn í loftið. Logi Bergmann og Jón Júlíus fara yfir allt það helsta í golfinu.

- Farið yfir Masters

- Powerrank

- Viltu kaupa pútter af Silfurdreng?

ECCO - UNBROKEN - LINDIN

#20 - Áfengið dró Rúnar Frey í golf09 Aug 202400:52:33

Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er listamaðurinn Rúnar Freyr Gíslason. Hann er þokkalegur kylfingur sem fór holu höggi á mjög áhorfendavænni golfholu.

Rúnar er þeim hæfileika gæddur að hann fer alltaf að hlægja þegar hann meiðir sig. Hann er með 19 í forgjöf, meðlimur í Nesklúbbnum, og spilar helst með Loga Bergmann.

Frábært spjall sem er óhætt að mæla með!

Þátturinn er í boði:

ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

#19 - Hjörvar bindur ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir31 Jul 202401:04:54

Hlaðvarpskóngur Íslands, Hjörvar Hafliðason, mætti til okkar í Seinni níu og ræddi um golf. Þrátt fyrir frekar stuttan golfferil þá hefur Hjörvar leikið golf víða um heim og vill helst spila golf í og við Sóvetríkin sálugu. Hann hefur t.d. farið í golfferð til Litháen og er á leiðinni til Eistlands.

Við fórum yfir golfferilinn hjá Hjörvari, hvaða kylfur hann notar og hvern hann styður í atvinnumannagolfinu.

Líflegt og skemmtilegt spjall eins og við er að búast þegar Hjörvar er annars vegar.


ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

#18 - Helgi Dan myndi ekki byrja í golfi í dag22 Jul 202400:57:13

Helgi Dan Steinsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Hann er öflugur kylfingur með um +2 í forgjöf.

Helgi er framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Grindavíkur og ræðir aðeins við okkur um stöðuna á Húsatóftavelli.

Farið er yfir Opna breska og Íslandsmótið í golfi. Farið yfir ótrúlegt atvik þegar Helgi "sló" Steina Hallgríms úr keppni. Helgi segir okkur einnig frá því þegar hann fór holu í höggi á par4 braut.

Þátturinn er í boði:

ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Collab

#17 - Upphitun fyrir Íslandsmót og Opna breska með Palla Ketils17 Jul 202401:07:08

Framundan er ein stærsta helgi ársins í golfinu. Af þeim sökum hlóðum við í upphitunarþátt fyrir Íslandsmótið í golfi og Opna breska meistaramótið sem hefst á morgun, fimmtudag.

Páll Ketilsson, ristjóri Kylfings.is, kom til okkar í spjall og ræddi einnig við okkur um sinn heimavöll, Hólmsvöll í Leiru, þar sem Íslandsmótið fer fram.

Við spáðum í spilin fyrir mótin og fórum líka yfir hvernig best væri að veðja á mótin.

ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir

#16 - Golfsálfræði með Hafrúnu Kristjáns15 Jul 202400:53:06

Gestur vikunnar hjá okkur í Seinni níu er Dr. Hafrún Kristjánsdóttir sem er prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hafrún hefur starfað sem íþróttasálfræðingur um árabil og er á leið á sína fjórðu ólympíuleika þar sem hún aðstoðar okkar fremsta íþróttafólk.

Hafrún er kylfingur með um 20 í forgjöf en var áður landsliðskona í handbolta. Hún viðurkennir að kasta stundum kylfum í bræðiskasti.

Í þættinum ræðir hún við okkur um golfið og golfsálfræði. Einnig segir hún okkur frá íslenskri sálfræðirannsókn sem HR og GSÍ ætla að ráðast í.

Þátturinn er í boði:

ECCO - Unbroken - Eagle Golfferðir - Lindin

#15 - Ragga Sig: „Fékkstu fugl elskan?“09 Jul 202400:52:24

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni Níu er hún Ragnhildur Sigurðardóttir sem er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi.

Hún hefur gert golfið að sínu aðalstarfi og starfar sem bæði golfkennari og fararstjóri.

Í skemmtilegu spjalli fer hún aðeins yfir golfferilinn, gefur góð ráð fyrir meistaramótin og segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á par4 braut.

Logi er með powerrank og velur fimm furðulegustu holur landsins.

ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Ölgerðin

#14 - Finnur sem allt vinnur02 Jul 202400:48:45

Finnur Freyr Stefánsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Hann vann í vor Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í sjöunda sinn sem þjálfari sem er magnað afrek.

Finnur stundar golf af miklu kappi og er með um 18 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum í Mosfellsbæ en 5. holan á Hlíðavelli er Finni ekki að skapi.

Powerrank, spáð í holu höggi fyrir Loga og sérstaklega krassandi spurning vikunnar.

ECCO - Unbroken - Lindin - Eagle Golfferðir - Collab

#24 - Eyfi spilar ekki í rigningu05 Sep 202400:49:37

Tónlistamaðurinn ástsæli Eyjólfur Kristjánsson er næsti gestur okkar í Seinni níu. Eyfi byrjaði í golfi um aldamótin og fékk mikla golfbakteríu. Hann hefur hins vegar sjaldan spilað eins lítið golf og hann hefur gert í ár og eru nokkrar ástæður fyrir því.

Eyfi segir okkur frá því þegar hann fór holu í höggi á Korpúlfstaðavelli, við fáum magnað Powerrank yfir fimm bestu lögin hjá Eyfa, og svo kemur í ljós að uppáhaldskylfingar eru nokkuð óvæntir kappar á PGA-mótaröðinni.

Frábær þáttur í alla staði!

Þátturinn er í boði:

XPENG - ECCO - Unbroken - Eagle Golfferðir - Bríó


#25 - Einar Örn hefur tvisvar farið holu í höggi12 Sep 202400:56:15

Einar Örn Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Play, er nýjasti gestur okkar í Seinni níu. Hann er kylfingur með um 15 í forgjöf en náði lítið að spila golf í sumar eftir að hafa tekið við sem forstjóri hjá Play í vor.

Einar Örn hefur mikið spilað erlendis og hefur tvívegis farið holu í höggi á erlendri grundu.

Við erum með Powerrank á fimm bestu golfvöllunum á Alicante svæðinu og hvaða velli á að forðast á þeim slóðum.

Hvar er algengast að kylfingar fari holu í höggi? Við komumst að því í þættinum.

Hlustendur Seinni níu fá 20% afslátt hjá Unbroken með að nota kóðann Seinni9 á unbroken.is

Seinni Níu er í boði:

ECCO - XPENG - Unbroken - Lindin - Bríó - Eagle Golfferðir

#26 - Hermann í Kemi elskar 60 gráðu fleygjárnið20 Sep 202400:55:45

Nýjasti gestur okkar í Seinni níu er Hermann Guðmundsson sem rekur fyrirtækið Kemi.

Hermann er duglegur kylfingur sem hefur lægst verið með um 10 í forgjöf. Hann spilar mikið golf í Bandaríkjunum og uppáhaldskylfan hans er 60° fleygjárnið.

Logi velur fimm fallegstu par-3 holur landsins.

Seinni Níu er í boði:

✈️ - PLAY

💊 - Unbroken

👟 - ECCO

⛳ - Eagle Golfferðir

🚗 - XPENG

✨ - Lindin bílaþvottastöð

Seinni Níu Masterclass - Það afþakkar enginn auka 20-30 metra23 Sep 202400:35:00

Seinni Níu Masterclass er þáttur fyrir kylfinga sem vilja kafa aðeins dýpra. Í þessum þætti fáum við í heimsókn hann Bjarna Má Ólafsson frá Golfstöðinni sem sérhæfir sig í styrktarþjálfun fyrir kylfinga.

Bjarni Már fræðir okkur um kosti þess að stunda styrktarþjálfun samhliða því að spila golf. Styrktarþjálfun getur verið góð leið til að ná í auka lengd af teig og fyrirbyggja meiðsli.

Við fáum að heyra skemmtilegar dæmisögur af kylfingum sem hafa óvænt lengt sig hressilega af teig eftir að hafa byrjað í styrktarþjálfun.

Mjög fróðlegur þáttur sem ætti að vera öllum kylfingum hvatning til að styrkja sig.

✈️- PLAY

🚗- XPENG

💊- UNBROKEN

👟- ECCO

✨- LINDIN

⛳- EAGLE GOLFFERÐIR



#27 - Frímann Gunnarsson spilar Oxford golf27 Sep 202401:01:18

Leikarinn Gunnar Hansson mætti til okkar í Seinni níu. Gunnar er mjög öflugur kylfingur og var lægst með um 3,5 í forgjöf. Hann spilaði mikið golf á sínum yngri árum og hefur tvívegis farið holu í höggi.

Jafnframt fórum við aðeins yfir golfáhuga eins þekktasta karakters Gunnars, sem er hann Frímann Gunnarsson. Sá þykir margt bogið við hefðbundnar golfreglur og hefur því tekið upp sínar eigin reglur.

PLAY - XPENG - UNBROKEN - ECCO- LINDIN- EAGLE GOLFFERÐIR


#28 - Freyr Gígja lét Eurovision-stjörnu heyra það á Kiðjabergsvelli03 Oct 202400:50:30

Þó golfsumarið sé að líða undir lok þá höldum við ótrauðir áfram í hlaðvarpinu Seinni níu. Að þessu sinni kemur til okkar fréttamaðurinn Freyr Gígja Gunnarsson en margir ættu að kannast við röddina í fréttatímum RÚV.

Freyr Gígja leikur aðallega golf á Hvaleyrarvelli og er fínn kylfingur með 9,9 í forgjöf. Freyr er mjög stöðugur kylfingur en þarf að eigin sögn að bæta púttin. Þáttastjórnendur hvöttu Frey til að brjóta bensínstöðvarpútterinn og kaupa nýjan pútter.

Freyr segir frá því þegar hann missti sig við Eurovision-stjörnu á Kiðjabergsvelli.

Seinni Níu er í boði:

✈️ - PLAY

💊 - Unbroken

👟 - ECCO

⛳ - Eagle Golfferðir

🚗 - XPENG

✨ - Lindin bílaþvottastöð

#29 - Ólafía Þórunn gerir upp magnaðan feril10 Oct 202400:57:40

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fyrrverandi atvinnukylfingur.

Ólafía lagði keppniskylfurnar á hilluna fyrir tveimur árum en hún er eini íslenski kylfingurinn til að leika á öllum fimm risamótunum í keppnisgolfi kvenna. Ólafía var valin íþróttamaður ársins árið 2017.

Í þættinum fer Ólafía yfir ferilinn og segir okkur frá því nýju fyrirtæki sem hún er að stofna.

Ólafía kemur með Powerrank yfir fimm bestu kylfinganna sem hún hefur leikið með. Nelly Korda, Charley Hull og Arnold Palmer koma þar við sögu.

Frábær þáttur sem á erindi við alla kylfinga og íþróttáhugafólk.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

#30 - Margeir bíður enn eftir ásnum18 Oct 202400:56:37

Margeir Vilhjálmsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Hann er frábær kylfingur að eigin sögn með um 1 í forgjöf. Hann segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi en í kjölfarið hefur Margeir orðið mjög áberandi karakter í íslensku golfi.

Margeir var um tíma framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og tók virkan þátt í uppbyggingu á Korpúlfsstaðavelli og Básum.

Við fórum yfir atvikið á Akureyri árið 2022 sem varð þess valdandi að Margeir var dæmdur í keppnisbann. Einnig kom í ljós að hann hefur ekki farið holu í höggi þrátt fyrir að hafa spilað golf í 39 ár.

Ýmislegt fleira bar á góma. Margeir segir okkur frá golfkennarastarfinu og sömuleiðis frá Black Sands verkefninu sem því miður varð hruninu að bráð en sá golfvöllur hefði orðið einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Powerrank og spurning vikunnar.

Frábær þáttur sem við getum óhikað mælt með.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan

#31 - Fiskikóngurinn bauð öllum í Bíldudal í golf25 Oct 202400:51:01

Við fengum frábæran gest núna á dögunum þegar sjálfur Fiskikóngurinn, Kristján Berg Ásgeirsson, kom í heimsókn til okkar í hlaðvarpið Seinni níu.

Kristján segir okkur í þættinum frá sínum frábæru og einstöku auglýsingum sem hafa farið sigurför um íslenskan auglýsingamarkað.

Einnig segir Kristján frá þátttöku sinni í hinu vinsæla Costa Blanca golfmóti sem yfir hundrað Íslendingar tóku þátt í núna í haust.

Kristján segir okkur einnig frá því þegar hann varð fyrir því óláni að fá golfbolta í hausinn í sumar. Ekki missa af sögunni þegar söluferð með heita potta endaði í golfmóti aldarinnar í Bíldudal þar sem öllum kylfingum á sunnanverðum Vestfjörðum var boðið í golf. Ótrúleg saga!

#32 - Tómas Þór náð mögnuðum tökum á golfíþróttinni á skömmum tíma31 Oct 202401:01:18

Næsti gestur okkar í Seinni níu er fjölmiðlamaðurinn Tómas Þór Þórðarson sem hefur undanfarin ár verið umsjónamaður enska boltans hjá Símanum.

Hann sagði okkur frá því hvernig það væri að vera frambjóðandi til Alþingis og hvernig hann hefur þróað með sér mikla golfdellu.

Þrátt fyrir stuttan golfferil er Tómas nú kominn með ca 13 í forgjöf og og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni á skömmum tíma.

Hann segir okkur einnig frá fjölmiðaferlinum, þyngarmissi, póltíkinni, og aðdáun sinni á Scottie Scheffler. Við fáum einnig glæsilegt Powerrank yfir bestu vellina til að spila í golfhermi.

Seinni Níu er í boði: - PLAY - Unbroken - ECCO - Eagle Golfferðir - XPENG - Lindin bílaþvottastöð - Betri stofan

#33 - Edwin afþakkaði bolta frá Seve Ballesteros07 Nov 202401:23:58

Golfvallarhönnuðurinn Edwin Roald Rögnvaldsson kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Golfvallahönnun fær sviðið í þessum þætti ásamt skemmtilegri umræðu um golf á mannlegum nótum.

Edwin segir okkur frá því hvernig hann varð að golfvallarhönnuði. Sömuleiðis segir hann okkur ótrúlega sögu af því þegar hann afþakkaði pent golfbolta sem Seve Ballesteros ætlaði að gefa honum.

Jafnframt kom í ljós að Edwin er að hanna golfvöll í Færeyjum. Jafnframt kemur Powerrank með fimm bestu golfsvæðunum sem eru í eigu Donald J. Trump.

Seinni Níu er í boði: - PLAY - Unbroken - ECCO - Eagle Golfferðir - XPENG - Lindin bílaþvottastöð - Betri stofan fasteignasala- Golfhöllin

#34 - Arnar Gunnlaugsson er með hátt xG á golfvellinum15 Nov 202401:00:05

Knattspyrnuþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Arnar er fínn kylfingur með um 10 í forgjöf en að eigin sögn kemst hann ekki neðar sökum æfingaleysis í stutta spilinu.

Arnar hefur verið mjög sigursæll þjálfari á síðstu árum og í þættinum flökkum við á milli þess að spjalla um golf og fótbolta.

Arnar hefur spilað golf víða um heim og á mörgum heimsþekktum golfvöllum. Í ljós kom að Arnar hefur ekki farið holu í höggi og var velt upp þeim möguleika hvort bölvun ríki á Bergmann-mönnum í þeim efnum.

Einn þáttur í undirbúningi Arnars fyrir leiki hjá Víkingum er að fara á æfingasvæðið og slá nokkra golfbolta.

Í þættinum fengum við félagar líklega sex viðskiptahugmyndir.

Seinni Níu er í boði: - PLAY - Unbroken - ECCO - Eagle Golfferðir - XPENG - Lindin bílaþvottastöð - Betri stofan fasteignasala - Golfhöllin - Auto Park

#35 – Forsetinn í heimsókn – 27 nýjar golfholur á höfuðborgarsvæðinu22 Nov 202400:58:19

Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hulda hefur verið í forystu hjá GSÍ undanfarin ár og var komið víða við í skemmtilegu spjalli.

Hulda greindi frá því að nýlega hefði verið samþykkt deiliskipulag um nýjan 27 holu golfvöll í landi Hafnarfjarðar sem verður staðsettur nærri Hvaleyrarvatni.

Við fórum einnig yfir mikla fjölgun kylfinga á Íslandi. Golfhermar og aukin þátttaka yngri kylfinga eiga þar stóran þátt.

Í ljós kom að Hulda hefur ekki farið holu í höggi en er dugleg að spila. Sjálf er hún með um 15 í forgjöf og reynir að leika golf víða um land.

Seinni Níu er í boði:

PLAY - Unbroken - ECCO - Eagle Golfferðir - XPENG - Lindin bílaþvottastöð - Betri stofan fasteignasala - Golfhöllin

#36 - Andra Ólafssyni var slaufað á miðjum golfhring27 Nov 202401:15:52

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er Andri Ólafsson sem starfar sem samskiptastjóri hjá Landspítala Íslands Andri var á árum áður öflugur fjölmiðlamaður og tengist enn fjölmiðlum með því að halda úti þáttum á Stöð 2 Sport um NFL. Hann stendur einnig að nýrri sjónvarpsþáttaröð um Kanann.

Andri byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum. Hann leggur mikið upp út því að líta vel út á golfvellinum og að vera snyrtilegur til fara. Það vegur vel upp á móti því að vera með um 20 í forgjöf.

Andri tók sér reyndar frí frá golfi í sumar vegna framkvæmda en stefnir á að komast niður í 18 í forgjöf á næsta tímabili. Við fáum að heyra magnaða frásögn þegar Andra var slaufað á miðjum golfhring. Svo ræðir Andri aðeins við okkur um komandi Alþingiskosningar.

Frábært spjall þar sem farið er um víðan völl einum lengsta þætti okkar til þessa. Logi var óvænt mættur aftur til Íslands sem gerði spjallið þeim mun skemmtilegra.

Seinni Níu er í boði:

PLAY - Unbroken - ECCO - Eagle Golfferðir - XPENG - Lindin bílaþvottastöð - Betri stofan fasteignasala- Golfhöllin

#37 – Elsa beið í sjö ár á biðlista Nesklúbbsins05 Dec 202400:49:07

Gestur okkar þessa vikuna er heimsmeistarinn Elsa Nielsen sem er líklega þekktari fyrir afrek sín í badminton en golfi Hún varð heimsmeistari fyrir nokkrum árum í tvíliðaleik og hefur í tvígang keppt á Ólympíuleikunum.

Elsa byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum og hefur náð virkilega góðum tökum íþróttinni. Hún er núna með um 7 í forgjöf, er mikil keppnismanneskja og er varaformaður Nesklúbbsins. Elsa segir okkur aðeins frá golfinu sínu, þeirri uppbyggingu sem er framundan hjá Nesklúbbnum og biðlistanum fræga hjá klúbbnum en sjálf beið hún í sjö ár eftir að komast inn í klúbbinn.

Logi valdi 5 auðveldustu par-3 holur landsins og ríkti ekki beint mikil samstaða um þann lista.

Seinni Níu er í boði:

PLAY - Unbroken - ECCO - Eagle Golfferðir - XPENG - Lindin bílaþvottastöð - Betri stofan fasteignasala - Golfhöllin

#39 – Venni kastaði kylfu og sló í meðspilara á sömu holu20 Dec 202400:58:52

Síðasti gestur okkar í Seinni níu á þessu ári er Vernharð Þorleifsson sem flestir þekkja fyrir afrek sín í júdó á sínum tíma. Hann keppti á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996 í júdó en á þeim tíma þótti það mikið afrek að vinna sér inn þátttökurétt á leikunum.

Eftir júdóferilinn skapaðist tómarúm í lífi Venna sem fór meðal annars að gera leikna sjónvarpsþætti sem um einkaþjálfarann Venna Páer. Þeir þættir lifa góðu lífi á Youtube. Sömuleiðis hóf hann að leika golf og hefur árangur hans á golfvellinum verið misjafn. Venni komst best í ca 12 í forgjöf en hefur farið aftur í íþróttinni á síðasta ári. Hann hefur lent í allskyns vandræðum í golfi á síðustu árum en líklega náði það hámarki þegar hann sló út fyrir vallarmörk, henti kylfunni í meðspilara og sló svo boltanum í lærið á honum, allt á sömu golfholu.

Við völdum svo fimm bestu golfjólagjafirnar sem kosta undir 15 þúsund krónur.

Frábær þáttur sem ætti ekki að fara framhjá kylfingum og íþróttaáhugafólki.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#38 – Golf hjálpaði Blikum að verða Íslandsmeistarar12 Dec 202400:51:04

Við fáum góða gesti í þátt vikunnar í Seinni níu. Blikarnir Damir Muminovic og Höskuldur Gunnlaugsson urðu Íslandsmeistarar með liði Breiðabliks í haust. Þeir eru hins vegar báðir forfallnir golfáhugamenn og vilja spila golf eins mikið og kostur er.

Damir byrjaði í golfi fyrir rúmu ári síðan og búinn að ná ótrúlegum tökum á golfíþróttinni. Hann er í dag með um 10 í forgjöf og spilaði ekki nema um 80 hringi í ár. Höskuldur er með um 15 í forgjöf og býr svo vel að vera með golfhermi á skrifstofunni þar sem hann starfar.

Damir og Höskuldur fara á mjög skemmtilegan hátt yfir það hvernig golfið hefur hjálpað þeim í fótboltanum á síðastliðnu tímabili og deila einnig skemmtilegum sögum af því hvernig þeim hefur tekist að slasa sig í golf. Báðir eru þeir á því að golfið hafi klárlega hjálpað sér að ná meiri árangri á knattspyrnuvellinum.

Þeir félagar völdu einnig fimm bestu kylfinganna sem leika í Bestu-deildinni í knattspyrnu. Frábær þáttur sem ætti ekki að fara framhjá kylfingum og íþróttaáhugafólki.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#40 – Áramótauppgjör Seinni níu30 Dec 202401:50:04

Lokaþáttur ársins í Seinni níu er sannkallaður áramótaþáttur. Í þættinum spilum við brot úr þáttum frá 32 af þeim viðmælendum sem komu í heimsókn til okkar á árinu. Spiluð eru brot úr mörgum af vinsælustu þáttum ársins.

Meðal þeirra brota sem eru spiluð í þættinum:

- Halli Melló segir frá því hvað hann óttast mest

- Þorgerður Katrín fer yfir það sem fer í taugarnar á henni á golfvellinum

- Jakob Bjarnar ræðir um glæpsamlegt golfmót

-  Teitur Örlygs henti golfsettinu sínu inn í bílskúr með látum

-  Úlfar Jóns sló dauðhræddur með dræver sem atvinnumaður

- Inga Lind féll kylliflöt fyrir golfinu

-  Hjörvar Hafliðason er vöðvagolfari

-  Áfengið dró Rúnar Freyr í golf

-  Freyr Gígja missti sig við Eyfa Kristjáns á golfvellinum

-  Ólafía Þórunn ræddi um pressuna sem fylgir því að keppa á bestu mótaröð í heimi

-  Margeir Vilhjálms fór yfir stóra málið á Akureyri sem endaði í keppnisbanni

- Fiskikóngurinn fræddi okkur um hvernig það er að fá bolta í hausinn

- Arnar Gunnlaugsson notar golf sem undirbúning fyrir leiki

- Andri Ólafsson fór yfir það sem byrjendur í golfi ættu að forðast

- Venni Páer lék á 79 höggum en svo fór allt í skrúfuna

Seinni níu er að ljúka sínu fyrsta starfsári og við hlökkum til að mæta á nýju ári með nýja og skemmtilega viðmælendur sem hafa gaman af því að tala um golf. Gleðilegt nýtt ár!

---

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#41 – Brynjar Níelsson nennir ekki að æfa09 Jan 202500:49:44

Fyrsti gestur ársins hjá okkur í Seinni níu er Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður og lögmaður. Brynjar hefur spilað marga af bestu golfvöllum Bretlandseyja þó hann eigi í erfiðleikum með að muna nöfnin á þeim öllum.

Brynjar var mjög góður íþróttamaður á sínum yngri árum og var mjög liðtækur í öllum boltaíþróttum. Það hefur hins vegar ekki skilað sér inn í golfið en líklega á æfingaleysi einhverja sök á máli.

Í stórskemmtilegum þætti er rætt um golf og pólitík en Brynjar er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og sat á þingi fyrir flokkinn á árunum 2013 til 2021. Brynjar velur fimm þingmenn sem hann vill spila golf með og einnig er draumaholl kappans afar athyglisvert. Hjartaáfall á golfvellinum kemur einnig við sögu.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#42 – Pétur í ECCO hefur þrisvar farið á Masters16 Jan 202500:52:04

Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er Pétur Þór Halldórsson sem hefur um árabil verið ECCO umboðið hér á landi. Í þættinum er farið yfir það hvernig Pétur byrjaði í golfi eftir að hafa byrjað að flytja inn golfskó frá Ecco. Í dag selja fyrirtæki hans árlega um 50 þúsund pör af ECCO-skóm til Íslendinga.

Í spjalli okkar við Pétur er komið víða við en í ljós kom að Pétur hefur þrisvar farið og fylgst með Masters mótinu á Augusta National sem áhorfandi. Pétur segir okkur frá draumahollinu sínu og við förum einnig yfir þá velli sem kylfingar fara oftast holu í höggi hér á landi. Stórskemmtilegur þáttur!

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#43 - Sigríður Andersen dæmir hiklaust víti á sjálfan sig24 Jan 202501:03:17

Gestur vikunnar í Seinni níu er Sigríður Andesen sem er nýkjörin aftur á þing fyrir Miðflokkinn. Hún fór að spila golf 2021 eftir að hafa hætt á þingi og fékk í kjölfarið mikla golfdellu.

Komið er víða við í þættinum. Sigríður segir frá nýju Íslandsmeti sem hún setti í bekkpressu á dögunum. Einnig fáum við að heyra frá ótrúlegri golfferð sem Sigga fór ein í til Orlando eftir að hafa kynnst Golf Now appinu.

Förum aðeins yfir kylfurnar sem Sigga er með í pokanum, afskipti ríkisins af uppbyggingu golfvalla og heyrum af ótrúlegum regluáhuga þingmannsins. Hún hikar t.d. ekki við að dæma víti á sig.

Einnig fáum við að heyra hvaða atvinnukylfingur er í sérstöku uppáhaldi hjá Siggu en félagarnir í Seinni níu eru sammála um að það sé einn af huggulegri kylfingunum á PGA-mótaröðinni.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#44 - Siggi Sveins er örvhent stórskytta sem spilar rétthent31 Jan 202500:56:18

Stórskyttan Sigurður Valur Sveinsson er gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna. Siggi Sveins á að baki frábæran handboltaferil þar sem hann lék sem atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni.

Við förum aðeins yfir handboltaferilinn en ræðum líka mikinn golfáhuga Sigga. Hann er með um 17 í forgjöf í dag en var lægst með um 12 í forgjöf. Í ljós kom að þessi örvhenta stórskytta spilar rétthent!

Við ræðum þegar golfbílnum hans var stolið síðasta vetur og ræðum styrkleika hans á golfvellinum. Siggi var að venju mjög léttur og við lofum frábærum þætti!

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#45 - Guðrún Brá fór tvisvar á albatross í sömu viku07 Feb 202501:02:50

Gestur okkar þessa vikuna er atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Hún hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari í golfi ætlar sér að ná þeim fjórða til að jafna við föður sinn Björgvin Sigurbergsson varð fjórum sinnum Íslandsmeistari í höggleik.

Guðrún sagði okkur frá því hvernig það væri að vera atvinnumaður í golfi og þá leið sem hún ætlar að fara í ár til að tryggja sér betri stöðu á Evrópumótaröð kvenna. Hún segir að það sér draumastarfið vera atvinnumaður í golfi en um leið sé þetta mikið hark.

Hún segir okkur frá því hún fór á albatross á móti á Evrópumótaröðinni og einnig þegar hún lenti í deilum við meðspilara á miðjum hring í móti. Guðrún segir okkur einnig frá því að hún ætli sér stóra hluti á næstu árum eftir að hafa misst aðeins dampinn á síðustu árum.

Frábært og einlægt spjall við einn okkar fremsta kylfing í íslensku golfi.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#46 – Gummi Ben er konungur tjaldsins15 Feb 202501:05:59

Það var mikið hlegið þegar Guðmundur Benediktsson mætti íheimsókn til okkar í Seinni níu. Í þættinum var reynt að tala um golf en umræðan leiddist líka út í umræðu um fótbolta og einnig hvernig stendur á því að Gummi Ben sé ber að ofan í nýrri auglýsingaherferð.

Gummi Ben er ekki skráður í golfklúbb en er á biðlista inn í Nesklúbbinn. Hann spilar mikið í golfhermi og þar gengur honum vonum framar. Af meðspilurum er hann kallaður Konungur tjaldsins en sjálfur er hann með 3-4 í Trackman-forgjöf. Það endurspeglar ekki beint forgjöf hans þegar út á golfvöll er komið.

Í þættinum er komið víða við. Farið er yfir feril hans í knattspyrnu og hvernig hnémeiðsli hafa háð honum í golfinu. Gummi velur draumahollið og ýmislegt fleira. Stórskemmtilegur þáttur!

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#47 - Þórður ætlaði að hætta áður en hann fór holu í höggi20 Feb 202500:50:21

Gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu er hagfræðingurinn Þórður Gunnarsson. Hann er reglulegur gestur í hlaðvarpinu Þjóðmál en hefur einnig mjög mikinn áhuga á golfi.

Í þættinum förum við aðeins yfir TGL-golf sem hefur vakið mikla athygli á síðustu vikum. Þórður velur fimm skemmtilegustu golfholur landsins og einnig draumahollið.

Þórður segir okkur einnig frá því þegar hann fór holu í höggi á Nesvellinum í sumar og hvers vegna kylfingar eiga alltaf að leika seinni níu holurnar.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#48 - Rögnvaldur felldi tár þegar hann endurheimti járnasettið28 Feb 202500:54:03

Við fengum glaðasta golfkennara landsins, Rögnvald Magnússon hjá Golfklúbbnum Oddi, til að ljúka með okkur febrúarmánuði. Röggi mætti til okkar nýkominn frá Bandaríkjunum þar sem hann var að leika á Pinehurst golfsvæðinu.

Röggi er frá Bolungarvík og við fengum kappann til að velja fimm bestu golfholurnar á Vestfjarðakjálkanum.

Hann sagði okkur einnig frá því þegar hann felldi tár eftir að hafa endurheimt járnasettið sitt sem hann seldi fyrir mörgum árum. Einnig rifjum við upp kvikmyndina Albatross sem gerist einmitt á Syðridalsvelli í Bolungarvík.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

#49 - Stórkostlegur sigur Árna Helgasonar - í 4. flokki06 Mar 202501:01:40

Gestur okkar þessa vikuna er lögmaðurinn og varaþingmaðurinn Árni Helgason. Má segja að Árni hafi verið ein fyrsta hlaðvarpsstjarna Íslands, en hann stýrði hlaðvarpinu Hismið um árabil við miklar vinsældir.

Árni hóf að stunda golf fyrir nokkrum árum og er með um 22 í forgjöf. Í þættinum er fjallað ítarlega um glæstan sigur hans í 4. flokki á Meistaramóti Nesklúbbsins í sumar.

Hann segir frá heimsókn sinni á Pinehurst-golfsvæðið og þeirri einstöku upplifun að leika með kylfusveini.

Að venju er rætt um ýmislegt fleira en golf, enda er Árni einstaklega léttur og hress kappi.

Seinni Níu er í boði:

✈️- PLAY

💊- Unbroken

👟- ECCO

⛳- Eagle Golfferðir

🚗- XPENG

🧼- Lindin bílaþvottastöð

🏚️ - Betri stofan fasteignasala

🏌️‍♀️- Golfhöllin

© My Podcast Data · Projet indépendant · Données issues d'Apple & Spotify