Retour
Explorez tous les épisodes du podcast Samstöðin
Plongez dans la liste complète des épisodes de Samstöðin. Chaque épisode est catalogué accompagné de descriptions détaillées, ce qui facilite la recherche et l'exploration de sujets spécifiques. Suivez tous les épisodes de votre podcast préféré et ne manquez aucun contenu pertinent.
| Titre | Date | Durée | |
|---|---|---|---|
| Rauða borðið 18. desember: Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun | 18 Dec 2024 | 05:14:31 | |
Miðvikudagur 18. desember
Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun
Myndlistamaðurinn og Öryrkinn Georg Jónasson ræðir við Maríu Lilju um fátækt frá fyrstu hendi, myndlistina og allt þar á milli. Þá mæta til leiks Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, forstýra Kvennaathvarfsins og ræða um ofbeldi í nánum samböndum. Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir halda áfram með ítarlegt bókaspjall. Fyrstur að borði er Bragi Ólafsson með nýja bók Innanríkið Alexíus. Þar strax í kjölfarið verður staða ljóðsins krufin mtt. Tveggja nýútkominna verka skáldkvennanna Guðrúnar Hannesdóttur, Sigurbjargar Þrastardóttur.
Sigurjón M. fær til sín álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um framhaldið í samfélaginu þetta eru þau Valur Grettisson, Bryndís Haraldsdóttir og Auður Alfa Ólafsdóttir.
Í lokin kemur Svala Jóhannesardóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, og ræðir um velsæld áfengis- og vímuefnasjúklinga.
| |||
| Rauða borðið 17. des - Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókaspjall | 17 Dec 2024 | 04:29:26 | |
Þriðjudagur 17. desember
Þýskaland, neytendur, alþjóðakerfið, dauðinn, börn mæðra sinna og bókarspjall
Ragnar Hjálmarsson, doktor í stjórnarháttum, ræðir um fall stjórnarinnar og nýtt pólitískt landslag í Þýskalandi. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna bíður spenntur eftir því hvort ný ríkisstjórn bæti hag neytenda. Þórdís Ingadóttir prófessor í lögum við Háskólann í Reykjavík ræðir hvernig alþjóðaréttarkerfið er að styrkjast á sama tíma og vettvangur alþjóðastjórnmála veikist. Vigfús Bjarni Albertsson fyrrum sjúkrahússprestur ræðir um lífið, dauðann og lífsglímuna. Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður aðstoðaði móður sína Ágústu Oddsdóttur við bók hennar um listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur og Oddný Eir Ævarsdóttir rtihöfundur skrifaði og ritstýrði bók um ævistarf móður sinnar, Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þau koma öll að Rauða borðinu og ræða bækurnar, listina, tengsl barna við mæður sínar (og öfugt) og hvernig það er að vinna með fjölskyldunni sinni. Í lokin koma rithöfundarnir Valur Gunnarsson og Gunnar Theodór Eggertsson og ræða bækur og samfélag.
| |||
| Rauða borðið 16. des - Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga | 16 Dec 2024 | 03:57:10 | |
Mánudagur 16. desember
Snjóflóð, Seyðisfjörður, ljóðadjamm, Gaza og niðurbrot verkalýðsfélaga
Við hefjum leik á viðtali við Katrínu Oddsdóttur mannréttindalögmann sem berst gegn laxeldi á Seyðisfirði – að því er virðist í andstöðu við íslenskar ríkisstofnanir.
Hjónin Ólöf Þorvaldsdóttir og Logi Kristjánsson hafa skrifað bókina Fjall í fangið, sem fjallar um snjóflóðin í Neskaupstað en líka um samfélagið sem flóðin féllu á, sérstakt samfélag sem var mótað af völdum og áhrifum sósíalista.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður félags atvinnuflugmanna, ræðir tilraunir flugfélaga til niðurbrots á verkalýðsfélögum og félagsleg undirboð og áhrif þess á kjör flugstétta og samfélagið allt. Við ræðum ástandið á Gaza viðMagneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margrétu Guðmundsdóttur, mannfræðing. Þær eru báðar sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda. Að lokum koma ljóðskáldin Anton Helgi Jónsson, Halla Þórðardóttir og Þórunn Valdimarsdóttir og ræða um ljóðlistina, ljóðadjammið og leyfa okkur heyra lljóð úr nýútkomnum bókum sínum.
| |||
| Rauður raunveruleiki - „Woke“ Al-Kaída, áróður, heimsvaldastefna, þjóðarmorð. | 15 Dec 2024 | 00:51:56 | |
Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu.
Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp með það?
Af hverju er CNN og aðrir stórir bandarískir fjölmiðlar að hvítþvo fyrrverandi foringja ISIS og Al-Kaída?
| |||
| Synir Egils 15. des - Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar | 15 Dec 2024 | 02:12:42 | |
Sunnudagurinn 15. desember:
Synir Egils: Stjórnarmyndun, helstu verkefni og Píratar
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi, Oddný Harðardóttir fyrrverandi þingkona og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og ræða stjórnarmyndun, verkefni nýrrar ríkisstjórnar og fréttir vikunnar. Þeir bræður taka stöðunni á pólitíkinni og reyna síðan að átta sig á stöðu Pírata með fólki úr þeirri hreyfingu: Birgitta Jónsdóttir stofnandi Pírata, Lenya Rún Taha Karim formaður Ungra Pírata, Þórólfur Júlían Dagsson sjómaður og Alexandra Briem borgarfulltrúi fara yfir sögu, erindi og framtíð Pírata.
| |||
| Rauða borðið - Helgi-spjall: Linda Vilhjálms | 14 Dec 2024 | 02:26:47 | |
Laugardagur 14. desember
Helgi-spjall: Linda Vilhjálms
Linda Vilhjálmsdóttir skáldkona segir okkur frá áfalli sínu, sjálfsmynd, skáldskap og öllu því sem hefur gert hana að því sem hún er.
| |||
| Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 50 | 13 Dec 2024 | 01:32:44 | |
Föstudagurinn 13. desember
Vikuskammtur: Vika 49
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Björn Halldórsson rithöfundur, Hólmar Hólm verkefnastjóri og ritstjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Ingimar Karl Helgason grunnskólakennari og fyrrverandi fréttamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stjórnarmyndun, átökum, hernaði og von um betri tíð.
| |||
| Grimmi og Snar - #31 ...og ef The Boss sér þig í bíó, þá segir þú: Ég er að vinna í geðheilsunni | 12 Dec 2024 | 01:12:22 | |
Fimmtudagur 12. desember
Grimmi og Snar #31 ...og ef The Boss sér þig í bíó, þá segir þú: Ég er að vinna í geðheilsunni.
Meistari Atli Már kom í jólaþátt 🎅🏾🤶🏼 Grimma og Snar. Jólasögur og fræðsla fyrir þá sem eru með einstakar þarfir og þá sem eru svo óheppnir að hafa engar sérstakar þarfir 🤘🏽🙏🏼👁️
| |||
| Rauða borðið 12. des - Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur | 12 Dec 2024 | 03:20:47 | |
Fimmtudagur 12. desember
Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur
Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands ræðir við okkur um eftirleikinn eftir fall Assads í sýrlandi. Mögulegar hættur vegna uppgangs öfgahópa á svæðinu, innrásir Ísraela á nágranna sína og skýrir áhrif þessa alls á fólkið sem enn situr fast á Gaza í miðju þjóðarmorðs. Til að ræða nýútkomna þýðingu á verðlaunabókinni Þessir helvítis karlmenn mætir þýðandinn sjálfur, Þórdís Gísladóttir rithöfundur og Valgerður Ólafsdóttir, skólasálfræðingur og rithöfundur og ræða bókina. Til að ræða nýjar samtímabókmenntir sem koma nú út í þýðingum mæta Snæfríð Þorsteins, Helga Soffía Einarsdóttir, Einar Kári Jóhannsson og María Rán Guðjónsdóttir og segja okkur frá nýjum þýðingum og stöðu þýðinga í íslenskum samtímabókmenntum. Peter Maté er Íslendingum að góðu kunnur, hann hefur reynt mikill áhrifavaldur í íslensku listalífi og kenndi bæði Laufeyju og Víkingi Heiðari að leika á hljóðfæri. Peter ræðir við Björn Þorláks.
| |||
| Rauða borðið 11. des: Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja | 11 Dec 2024 | 04:28:02 | |
Rauða borðið miðvikudagur 11. desember
Kosningafúsk, fangelsismál, bókaspjall, loftslagsmál, þungarokk og ættarfylgja
Við bjóðum uppá hlaðborð ólíkra mála hér við rauða borðið miðvikudagskvöldið ellefta desember, nú þegar stekkjastaur ætti að vera að skrölta til byggða. Það eru þó engir jólasveinar á meðal gesta okkar í kvöld. Björn Þorláksson ríður á vaðið ásamt umboðsmanni framboðs Samfylkingarinnar sem er ekki sáttur við meðferð atkvæða. Þá koma fulltrúar fanga í Afstöðu til Maríu og ræða brýnar úrbætur á fangelsismálum. Þær Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir taka lifandi og lífrænt spjall um bækur. Þorgerður María, hjá landvernd lítur við og köttar krappið í umræðunni um loftslagsmál. María og Oddný fara svo á hugarflug með hávaðarokkurum í osme og Björn lokar svo þættinum með harmrænni ættarfylgju.
Útsendingu stýrðu Laufey Líndal og Pétur Fjeldsted.
Spenniði eyrun vel það er gott spjall framundan.
| |||
| Rauða borðið 10. desember: Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k. | 10 Dec 2024 | 04:09:24 | |
Þriðjudagur 10. desember
Hervæðing, mannréttindi, listamannalaun, einstaklingurinn og o.k.
Guttormur Þorsteinsson formaður og Soffía Sigurðardóttir ritari miðnefndar Samtaka hernaðarandstæðinga andmæla hernaðaruppbyggingu í Keflavík og breyttum áherslum fráfarandi ríkisstjórnar í öryggis- og varnarmálum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Árni Kristjánsson ungliða- og aðgerðastjóri Amnesty og Edda S. Arhúrsdóttir ungliði segja okkur frá mannréttindabaráttu á tímamótum, bíómynd, svartri skýrslu og helstu áskorunum dagsins í dag. Þórhallur Guðmundsson stjórnsýslufræðingur ræðir ágalla við núverandi kerfi listamannalauna. Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður ræðir samband menningar og stjórnmála. Hann segir áhrif einstaklinga á söguna ofmetin. Í lokin segir séra Sigurður Ægisson frá uppruna og notkun orðsins o.k., en hann hefur skrifað heila bók um efni.
| |||
| Rauða borðið 9. des: Brottvísanir, gul verkalýðsfélög, Sýrland, kosningar, goðsagnir og ópera | 09 Dec 2024 | 04:14:27 | |
Mánudagur 9. desember
Brottvísanir, gul verkalýðsfélög, Sýrland, kosningar, goðsagnir og ópera
Sigurður Pétursson sagnfræðingur segir okkur frá gulum verkalýðsfélögum og Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari um áhrif brottvísana flóttafólks á þau sem hafa kynnst þessum einstaklingum. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði segir okkur frá valdaskiptum í Sýrland og Tómas Ellert Tómasson fyrrum bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg efast um að kosningalög og umbúnaður kosninga á Íslandi sér lýðræðislegur. Ingunn Ásdísardóttir um norrænar goðsagnir í nýju ljósi en hún fjallar um þetta í nýrri bók: Jötnar hundvísir. Þær Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur og Katrín Harðardóttir, þýðandi og glimmermótmælandi koma og ræða stríð, mótmæli og byltingu í radio gaza. Ragnar Pétur Jóhannsson bassi, Sólveig Sigurðardóttir sópran, Áslákur Ingvarsson baríton og Þórhallur Auður Helgason tenór segja okkur frá Rakaranum í Sevilla og erindi óperunnar til okkar tíma.
| |||
| Synir Egils 8. desember: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda | 08 Dec 2024 | 02:10:14 | |
Sunnudagurinn 8. desember:
Synir Egils: Fréttir og verkefni nýs þings og stjórnvalda
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og ræða fréttir og pólitík dagsins. Þeir bræður fara líka yfir sviðið í stjórnmálunum og fá líka til liðs tvo nýja þingmenn flokka sem standa í ríkisstjórnarmyndun. Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingar ræða hvaða verkefni bíða endurskipuðu þingi.
| |||
| Rauða borðið - Helgi-spjall: Jón Ársæll | 07 Dec 2024 | 02:52:00 | |
Laugardagur 7. desember
Helgi-spjall: Jón Ársæll
Jón Ársæll Þórðarson segir okkur frá æsku sinni og ævintýrum, söknuði eftir móðurbrjóstinu, barnaþrælkun, fjölskyldu, störfum, draumum og raunum.
| |||
| Rauður raunveruleiki - Kosningar gerðar upp, framhald baráttunnar. | 06 Dec 2024 | 00:44:57 | |
Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum.
Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson,
Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og
Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna.
| |||
| Vikuskammtur: Föstudagurinn 6. desember | 06 Dec 2024 | 01:39:33 | |
Föstudagurinn 6. desember
Vikuskammtur: Vika 49
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndaleikstjóri, Atli Bollason myndlistarmaður, Natalie G. Gunnarsdóttir plötusnúður og Hye Joung Park myndlistarkona og kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kosningum og mati hverju þær breyta, hvalveiðileyfi, þjóðarmorði og átökum í heimsmálum.
| |||
| Rauða borðið: Sósíalismi, verkalýðsfélög, stjórnarmyndun, stjórnmál, listamannalaun, veðrið og konur | 05 Dec 2024 | 05:05:44 | |
Fimmtudagur 5. desember
Sósíalismi, gul verkalýðsfélög, stjórnarmyndun, ung stjórnmál, listamannalaun, veðrið og konur í sögunni
Við ræðum við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur leiðtoga Sósíalista um kosningarnar og stöðuna að þeim loknum. Viðar Þorsteinsson, fræðslu- og félagsmálastjóri Eflingar, segir okkur frá gulum verkalýðsfélögum. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur fjallar um starfsstjórnir og stjórnarmyndun og Jósúa Gabríel Davíðsson formaður Ung vinstri grænna og Lenya Rún Taha Karim formaður Ungra Pírata ræða kosningar og stöðu sinna hreyfinga. Hulda Rós Guðnadóttir, myndlistarkona og Hermann Stefánsson, rithöfundur ræða um úthlutun listamannalauna og Trausti Jónsson veðurfræðingur talar um veðrið. Í lokin segir Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur okkur frá Sigríði Pálsdóttur, nítjándu aldar konu og stöðu kvenna á þeim tíma.
| |||
| Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 33 - Ráð til nýrrar ríkisstjórnar | 05 Dec 2024 | 01:05:27 | |
Fimmtudagur 5. desember
Sjávarútvegsspjallið - þáttur 33
Gestir Grétars eru þeir Ólafur Jónsson, Magnús Guðbergsson og Atli Hermannsson
| |||
| Rauða borðið 4. des - Strafsstjórn, brottnám, börn, róttækni og hamborgarhryggir | 04 Dec 2024 | 03:33:01 | |
Miðvikudagur 4. desember
Strafsstjórn, brottnám, börn, róttækni og hamborgarhryggir
Við ræðum starfsstjórnir og stjórnarmyndun við Gísla Tryggvason lögmann og Vilhjálm Egilsson gamalreyndar stjórnmálamann. Viktoría Þórunn, rússnesk kona sem hér hefur dvalið árum saman, var handtekin og flutt nauðug til síns heimalands. Alma Gunnlaugsdóttir segir okkur frá örlögum vinkonu sinnar. Davíð Kristinsson heimspekingur og aðjúnkt á menntavísindasviði HÍ ræði róttækt hægri og róttækt vinstri á okkar tímum og Guðjón Friðriksson segir okkur frá börnum í Reykjavík síðustu eina og hálfa öldina, hvernig staða þeirra og veröld hefur breyst. Í lokin ræða feðginin Rósa Líf Darradóttir og Darri Gunnarsson um dýravelferðarátak fyrir jólin, segja okkur frá hryggum svínahryggum á jólum.
| |||
| Rauða borðið 3. desember: Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge | 03 Dec 2024 | 03:53:31 | |
Þriðjudagur 3. desember
Kosningar, spilling, kosningakerfi, vinstrið, fangar og bridge
Var nógu mikið rætt um spillingu fyrir kosningarnar? Veltur á því hvaða flokkar skipa stjórn hve mikið aðhald verður gegn spillingu? Þau Marínó G. Njálsson kerfisfræðingur, Jasmina Vajzovic ráðgjafi og Atli Þór Fanndal ráðgjafi, ræða úrslit kosninganna og framtíðina. Það gera líka Þorvaldur Gylfason prófessor, einkum brotið kosningakerfi, og Andrés Ingi Jónsson fyrrum þingmaður Vg og Pírata, einkum um stöðu vinstrisins. Sindri Freysson hefur skrifað bók um íslenska fanga Breta á hernámsárunum og segir okkur sá sögu. Í lokin segir Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambandsins hvers vegna hugaríþróttir efla rökhyggju ungmenna.
| |||
| Rauða borðið 2. des - Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið | 02 Dec 2024 | 03:13:24 | |
Mánudagur 2. desember
Nýir þingmenn, vinstrið, Píratar og ástandið
Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín nýja þingmenn og ræðir við þá um pólitíkina: Ólafur Adólfsson frá Sjálfstæðisflokki, Jón Gnarr frá Viðreisn, Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingu og Halla Hrund Logadóttir frá Framsókn. Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra VG fer yfir stöðu vinstrisins og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata metur hvað fór úrskeiðis hjá þeim flokki. Guðrún Jónína Magnúsdóttir segir okkur svo frá því stúlkur máttu þola á ástandsárunum.
| |||
| Synir Egils 1. des - Uppgjör kosninga | 01 Dec 2024 | 02:16:05 | |
Sunnudagurinn 1. desember:
Synir Egils: Uppgjör kosninga
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Karen Kjartansdóttir ráðgjafi og gera upp kosningarnar og pólitíkina.
| |||
| Rauða borðið - Helgi-spjall: Júlíus K Valdimarsson | 30 Nov 2024 | 01:46:37 | |
Laugardagur 30. nóvember
Helgi-spjall: Júlíus K Valdimarsson
Júlíus K Valdimarsson segir okkur frá lífi sínu í tónlist og baráttu fyrir betra lífi. Hann lýsir samvinnuhugsjóninni og eins tímanum þegar samfélag okkar var mulið niður innan frá í nýfrjálshyggju og ræðir mikilvægi þess að fara að raunverulegri rót vandans til að byggja upp frjálst samfélag samkenndar og mennsku.
| |||
| Rauða borðið: Vikuskammtur föstudagur 29. nóvember | 29 Nov 2024 | 01:14:15 | |
Það er líf og fjör á endaspretti kosningabaráttunnar og við upphaf aðventu. Við rennum yfir fréttir vikunnar með frambjóðendum sósíalista þeim Maríu Péturs og Guðmundi Auðuns. Þau njóta liðsinnis tveggja gjörningalistamanna, pólitísku mannréttinda-trúðanna Margots og Plongs. Þar sem Plong er hljóðlátur trúður verður Margrét Baldursdóttir, túlkur einnig með í för en hún ku túlka hugsanir.
| |||
| Rauða borðið 28. nóvember: Kosningar, leigjendur, saga í austri og skynfinning | 29 Nov 2024 | 03:16:55 | |
Fimmtudagur 28. nóvember
Kosningar, leigjendur, saga í austri og skynfinning
Ritstjórn Samstöðvarinnar fer yfir kappræður dagsins og stöðuna í kosningabaráttunni: Oddný Eir Ævarsdóttir, Sigurjón Magnús Egilsson, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp, Björn Þorláksson og Gunnar Smári Egilsson. Við förum út á götu og ræðum við almenning sem virðist að mestu leyti búinn að gera upp hug sinn, þó ekki allir. Við flökkuðum um bæinn í leit af svörum um hvað skuli kjósa. Starfandi formaður Leigjendasamtakanna, Yngvi Ómar Sighvatsson segir okkur frá niðurstöðum könnunar um lausn stjórnmálaflokkanna á húsnæðiskrísunni. Sósíalistar reyndust vera með bestu lausnina. Saga Unnsteinsdóttir, listahöfundur sem skipar 3. sæti á lista Sósíalista í Norðaustur kjördæmi segir okkur frá kosningabaráttunni fyrir austan, frá friðarbaráttunni og öðrum kosningamálum sem brenna á fólki og hvetur ungt fólk til að taka þátt í pólitík
Hvað er skynfinning? Dr. Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur ræðir málin og veltir því fyrir sér hvort sé mikilvægt að ræða heimspeki í aðdraganda kosninganna.
| |||
| Grimmi og Snar - #30 Þetta er allt gott og blessað, munið bara að borða vel 😱🥶🥵 | 28 Nov 2024 | 00:50:23 | |
Fimmtudagur 28. nóvember
Grimmi og Snar - #30 Þetta er allt gott og blessað, munið bara að borða vel 😱🥶🥵
Í þætti dagsins kemur Alexandra Briem Pírati 💜 til Grimma og Snar, hún kemur kannski úr geimriki en Grimmi sjálfur og Snar telur sig vera samsettann úr við og bergi. Þær keppa um hvor þeirra hafi fleiri greiningarnar. Grimmi vinnur þann meting enda alveg Snar eins og venjulega.
Hasaþattur, leggið við hlustir, eyru og jafnvel rass. Sumir hlusta á allt með rassgatinu. Gaman að vera opinn og heyra skoðanir allra.
Luv 😘♥️🥰🤪
| |||
| Sjávarútvegsspjallið - 32. þáttur: Strandveiðar | 28 Nov 2024 | 01:02:58 | |
Fimmtudagur 28. nóvember
Sjávarútvegsspjallið - 32. þáttur: Strandveiðar
Gestir Grétars að þessu sinni eru þeir Kjartan Sveinsson og Magnús Jónsson
| |||
| Rauða borðið 27. nóv - Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza | 27 Nov 2024 | 05:13:44 | |
Miðvikudagur 27. Nóvember.
Kosningar, sósíalísk barátta, efnahagurinn, lax, mengun og Gaza
Í beinni bjóðum við til borðs þeim Margréti Pétursdóttur, verkakonu, Höllu Gunnarsdóttur, varaformanni VR, Sverri Björnssyni, hönnuði og eftirlaunamanni ásamt Páli Val Björnssyni fyrrverandi alþingismanni. Þau ræða pólitík dagsins við Sigurjón M. Egilsson: Kosningarnar, hverjir sigra og hverjur tapa. Gestir með reynslu og þekkingu. Fólkið á skrifstofu sósíalista svarar spurningu dagsins. Þá ræðast við bræðurnir Egilssynir en í þetta sinn fær Gunnar Smári að sitja fyrir svörum um framboðið. Af efnahagspólitíkinni segir Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur og ritstjóri okkur frá sárlegri vöntun á því sem hann kallar einfaldlega alvöru umræðu um hagstjórn og stefnumörkun fyrir kosningar. Hann útskýrir fyrir okkur strauma og stefnur og tengsl við djúpríki, Trump, Hrunið og framtíðina. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur í mengunarmálum hjá Umhverfisstofnun ræðir við okkur um vágest á höfuðborgarsvæðinu, loftmengun; útblástur og gosmóðu. Er þetta hættulegt heilsu og hvað er til ráða? Svo heimsækir Jón Kristjánsson fiskifræðingur Rauða borðið en Jón segir skaðlegt fyrir lífríki laxa og nytjar af þeim þegar veiðimenn í ám hérlendis sleppa þeim aftur í árnar. Við kíkjum svo að lokum til Gaza með fulltrúm no borders og solaris. Ræðum brott- og frávísanir af landamærum Íslands og fleira tengt.
| |||
| Rauða borðið 26. nóv - Kosningar, ungir norðlenskir sósíalistar, Sanna, Díegó, Kúba og Perú | 27 Nov 2024 | 04:34:21 | |
Þriðjudagur 26. nóvember
Kosningar, ungir norðlenskir sósíalistar, Sanna, Díegó, Kúba og Perú
Við byrjum á beinni útsendingu, þau Birgitta Jónsdóttir, Marínó G. Njálsson, Kristín Erna Arnardóttir og Einar Már Guðmundsson hefja leik og ræða stjórnmálin og samfélagið með Birni Þorláks. Þá heyrum við í pólitískum ungliðum fyrir norðan. Rætt verður við Ara Orrason sem skiptar 2. sætið í Norðausturkjördæmi hjá sósíalistum og Elvar Fossdal í 15. sæti listans. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa sem samkvæmt könnunum gæti orðið þingmaður sósíalista. Kötturinn Diegó verður til umræðu, en fulltrúi Dýrfinnu kemur og segir frá björgun hans. Elba Núnez Altuna kemur ræðir pólitíkina í Perú. Og við endum dagskrána á vináttufélags Íslands og Kúbu, en Eyjólfur Eyvindsson og Niuvis Sago SuZeta fóru nýlega utan á vegum félagsins. Þau ræða hindranir Kúbana, kúgun vestursins og mikilvægi þess að eiga sér samfélag.
| |||
| Rauða borðið 25.nóv - Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus | 26 Nov 2024 | 04:37:39 | |
Mánudagurinn 25. nóvember
Kosningar, umhverfi, ungir kjósendur, sósíalismi, strandeldi og sirkus
Esther Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Kristjana Guðbrandsdóttir fjölmiðlakona og Borgar Magnússon tónskáld fara yfir stöðuna í pólitíkinni, nú þegar kosningabaráttan er komin á yfirsnúning. Fjórir nemendur úr MR sem eru að fara að kjósa í fyrsta sinn, þau Uni Níls Gunnlaugsson, Freyja Rúnarsdóttir, Björn Diljan Hálfdánarson og Herdís Sigurðardóttir Busson, ræða um misheppnaðar tilraunir stjórnmálaflokkanna til að ná til unga fólksins. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og Árni Finnsson formaður stjórnar Náttúruverndarsamtaka Íslands segja okkur fréttir frá nýjustu alþjóðaráðstefnum á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þorsteinn Bergsson oddviti Sósíalista í Norðaustri segir frá sér og sósíalismanum. Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir og Ida Karólína Harris eru ungir umhverfissinnar sem hyggjast beita verkfallsaðgerðum og ganga úr tíma á föstudaginn til að mótmæla laxeldi í sjó. Birta Benónýsdóttir sirkuskona segir okkur frá sirkuslífinu.
| |||
| Synir Egils: Pólitík, kosningar, sviptingar og umturnun | 24 Nov 2024 | 02:35:33 | |
Sunnudagurinn 24. nóvember:
Synir Egils: Pólitík, kosningar, sviptingar og umturnun
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður fara líka yfir stjórnmálin og fá síðan Boga Ágústsson fréttamann og Ólaf Þ. Harðarson prófessor til að fara yfir liðnar og komandi kosningar.
| |||
| Rauða borðið - AUKAÞÁTTUR - Oddvitar Sósíalista | 23 Nov 2024 | 01:04:39 | |
Laugardagurinn 23. nóvember
Aukaþáttur: Oddvitar Sósíalista
Oddvitar Sósíalistaflokksins ræða kosningabaráttuna og þau má sem brenna á almenningi. Þorsteinn Bergsson oddviti í Norðausturkjördæmi, Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti í Reykjavík suður, Guðmundur Hrafn Arngrímsson oddviti í Norðvesturkjördæmi, Davíð Þór Jónsson oddviti í Suðvestri, Unnur Rán Reynisdóttir oddviti í Suðurkjördæmi og Gunnar Smári Egilsson oddviti í Reykjavík norður ræða kosningamálin og erindi Sósíalista.
| |||
| Rauða borðið - Helgi-spjall: Ævar Kjartansson | 23 Nov 2024 | 01:56:12 | |
Laugardagurinn 23. nóvember
Helgi-spjall: Ævar Kjartansson
Ævar Kjartansson útvarpsmaður segir okkur frá æsku á fjöllum, uppvexti og uppgötvunum, guði og kommúnisma, ástinni og átökum.
| |||
| Rauður raunveruleiki - Fangelsin, öryrkjar og velferð. Sósíalistar ræða málin. | 23 Nov 2024 | 00:49:38 | |
Karl Héðinn og Anita Da Silva tala við tvo félaga sína í Sósíalistaflokknum, þær Guðrúnu Ósk Þórudóttur og Maríu Pétursdóttur.
Við ræddum um stöðu fangelsanna, öryrkja og almennrar velferðar og um alvarlega stöðu og þróun í þessum málaflokkum.
Kíkið á stefnu Sósíalistaflokksins í velferðarmálum og ríkisfjármálum á Sosialistaflokkurinn.is
| |||
| Grimmi og Snar - #29 Blár og rauður eru fjólublár samkvæmt Panton ♥️💙=💜 | 22 Nov 2024 | 01:19:13 | |
Föstudagur 22. nóvember
Grimmi og Snar - #29 Blár og rauður eru fjólublár samkvæmt Panton ♥️💙=💜
Hvort er betra: Heit sár reiði sem getur gosið? Hana finnur þú i kalda pottinum 🥵 henni er alltaf heitt. Eða bæld og frosin reiði, finnur hana í saunu, henni er alltaf kalt, enda þolir engan kulda 🥶 Er kannski bæði gott í hófi? Hefur Gunnar Smári svar við þessum spurningum?
Grimmi og Snar vita hvorki upp né niður, enda bandbrjálaðir báðir tveir 😱🤩😎 varist að hlusta á þá tvo.
| |||
| Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 47 | 22 Nov 2024 | 01:19:57 | |
Föstudagur 22. nóvember
Vikuskammtur: Vika 47
Kosningabaráttan, lög sem brjóta stjórnarskrá, framferði formanns Miðflokksins fyrir norðan og margt fleira skemmtilegt og óskemmtilegt verður til umræðu í Vikuskammti. Fréttir vikunnar og tíðandi líðandi stundar verður krufinn. Til þess mæta í beina útsendingu til Björns Þ:orlákssonar þau Kári Jónsson, Hjörtur Hjartarson, Magnea Marínós og Atli Fanndal.
| |||
| Rauða borðið 21. nóv - Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza | 21 Nov 2024 | 06:26:13 | |
Fimmtudagur 21. nóvember
Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza
Í beina útsendingu í kvöld mæta vaskir frambjóðendur og talsmenn, þau Karl Héðinn Kristjánsson, Sósíalisti, Gísli Rafn Ólafsson, Pírati, Mörður Árnason, Samfylkingu og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd til að ræða um sjókvíeldi, eldgos og önnur eldheit kosningamál. Þau Haraldur Ólafsson hjá Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir hjá Evrópuvaktinni eru á öndverðum meiði um hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Við heyrum rökræðu þeirra á millum. Við höldum síðan áfram að ræða húsnæðiskrísuna á markvissan máta með fulltrúa Leigjendsamtakanna, Yngva Ómari Sighvatssyni sem tekur frambjóðendur nokkura flokka í próf og í dag mæta þeir Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, Grímur Grímsson, frambjóðandi Viðreisnar og Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins.
Spurning dagsins er hvernig líður almenningi í samfélaginu, við spyrjum fólk á förnum vegi. Síðan segir Sigmar Vilhjálmsson, formaður Atvinnufélagsins okkur frá hvernig skattaumhverfi fyrirtækja hyglir hinum stóru á kostnað smáfyrirtækja og Benjamín Julian, verkefnastjóri Verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fræðir okkur um samkeppnina á dagvörumarkaði. Illugi Jökulsson, rithöfundur segir okkur frá allri fegurðinni sem finna má í hversdeginum en hann hefur í nokkur ár fangað lítil augnablik, glefsur úr lífum fólks og gefið út í bókinni "Rétt áðan".
Í Radió Gaza koma þau saman Gígja Sara Björnsson, Valgeir Skorri Vernharðsson, Hjálmtýr Heiðdal og Snæbjörn Brynjarsson sem öll standa fyrir viðburðum á næstu vikum. Áherslurnar og aðferðirnar eru kannski ólíkar en meginstefið er það sama, mannréttindi. Að lokum heyrum við í oddvita Sósíalista í Norðvesturkjördæmi, Guðmundi Hrafni sem spjallar við Sigurjón Magnús Egilsson í Oddvitaspjalli Rauða borðsins.
| |||
| Sjávarútvegsspjallið - 31. þáttur - Grásleppa og handfæraveiðar | 21 Nov 2024 | 00:58:23 | |
Fimmtudagur 21. nóvember
Sjávarútvegsspjallið - 31. þáttur
Grásleppa og handfæraveiðar
Gestir Grétars að þessu sinni eru þeir Þórólfur Júlían Dagsson, Jens Guðbjörnsson og Ólafur Jónsson.
| |||
| Rauða borðið 20. nóv - Kosningar, almenningur, húsnæði og Davíð Þór | 21 Nov 2024 | 03:08:00 | |
Miðvikudagurinn 20. nóvember
Kosningar, almenningur, húsnæði og Davíð Þór
Gísli Tryggvason lögmaður, Atli Þór Fanndal almannatengill, Kristín Eiríksdóttir skáld og Sunna Sæmundsdóttir fréttakona koma að Rauða borðinu og greina kosningabaráttu sem er uppfull af hneykslum. Almenningur verður spurður og Oddný Eir Ævarsdóttir fær Yngva Ómar Sighvatsson frá Leigjendasamtökunum til að yfirheyra frambjóðendur um húsnæðismál og athuga hvað flokkarnir bjóða upp á sem alvöru lausn í húsnæðiskrísunni miklu. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata, Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson frambjóðandi Sósíalistaríða á vaðið og takast á við vandann. Í lokin ræðir Sigurjón Magnús Egilsson við Davíð Þór Jónsson prest og oddvita Sósíalista í Suðvesturkjördæmi.
| |||
| Rauða borðið 19. nóv. - Kosningar, verkföll, hvalveiðar og Gunnar blaðasali | 19 Nov 2024 | 04:11:06 | |
Þriðjudagur 19. nóvember
Kosningar, verkföll, hvalveiðar og Gunnar blaðasali.
Pólitík, verkföll, hvalveiðar eða ekki, bókmenntir og Gunnar Valur Gunnarsson Jensen blaðasali eru á dagskrá Rauða borðsins í kvöld. Doktor Kristín Vala Ragnarsdóttir, Starkaður Björnsson MR-nemi í verkfalli, Tómas Ellert Tómasson byggingaverkfræðingur og Jasmína Vajzovic baráttukona sem flutti til hins fyrirheitna Íslands verða gestir Björns Þorlákssonar í beinni útsendingu. Þau ræða pólitíkina og samfélagið.
Þau Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforkólfur og Vala Árnadóttir hvalfriðunarsinni koma svo og rökræða hvort veiða eigi hval eða ekki. Meint spilling inni í matvælaráðuneytinu verður sérstaklega til umræðu.
Sigurjón Magnús Egilsson kemur svo og ræðir við frambjóðanda sósíalista.
Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur og Oddný Eir ræða við Kristínu Ómarsdóttur um nýjustu bók hennar Móðurást, Draumþing, um ömmurnar og karlana og lífið í skáldskapnum.
Og við ljúkum þættinum á spjalli Gunnars Smára Egilssonar við Gunnar Val Gunnarsson Jense fyrrum blaðasala, sem segir frá lífi sínu og skoðunum.
| |||
| Rauða borðið 18. nóv - Skandalar, búvöruhneyksli, fiskur og spilling | 18 Nov 2024 | 03:09:32 | |
Mánudagur, 18. nóvember
Skandalar, búvöruhneyksli, fiskur og spilling.
Í beina útsendingu koma til okkar Þórunn Hreggviðsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur og Þórdís Bjarnleifsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrverandi bóndi til að ræða líðandi stund og helstu skandala í pólitíkinni í aðdraganda kosninga. Breki Karlsson og Sigurjón Magnús Egilsson fara síðan yfir störf Alþingis - en í dag var þinginu slitið. Þeir ræða líka um búvöruhneykslið. Jón Kristjánsson fiskifræðingur rekur samband spillingar og fiskiráðgjafar. Hann vill að við veiðum meiri þorsk en lagt er til.
| |||
| Synir Egils 17. nóv - Pólitík, kosningar, öryggismál | 17 Nov 2024 | 03:23:43 | |
Sunnudagurinn 17. nóvember:
Synir Egils: Pólitík, kosningar, öryggismál
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Rakel Þorbergsdóttir samskiptastjóri og fyrrverandi fréttastjóri, Róbert Marshall fjallamaður og fyrrum blaðamaður og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og fyrrum blaðakona og ræða æsispennandi og viðburðaríka viku í upphafi kosningabaráttu. Þeir bræður taka stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi og ræða síðan við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri um öryggismál Evrópu og þar með Íslands í veröld sem tekur hröðum breytingum.
| |||
| Rauða borðið - Helgi-spjall: Sólveig Anna | 16 Nov 2024 | 01:45:09 | |
Laugardagurinn 16. nóvember
Helgi-spjall: Sólveig Anna
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir okkur frá æsku sinni og uppvexti, innra lífi og uppreisn, pólitískum þroska og baráttu.
| |||
| Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 46 | 15 Nov 2024 | 01:18:30 | |
Föstudagur 15. nóvember
Vikuskammtur: Vika 46
Náttúruhamfarir, umhverfishamfarir, framboðshamfarir en líka grín og gleði verður til umræðu í Vikuskammtinum að þessu sinni. Tíðindarík vika að baki og veitir ekki af eldfjallafræðingi til að greina stöðuna! Þau Sigurrós Eggertsdóttir, Helga Sigrún Harðardóttir, Þorvaldur Þórðarson og Páll Valur Gíslason leiða saman hesta sína. Þau ræða fréttir vikunnar og tíðaranda líðandi stundar. Björn Þorláks stýrir umræðunum
| |||
| Rauða borðið 14. nóv: Kosningar, spilling, list, inngilding og fjölmiðlar | 14 Nov 2024 | 04:17:49 | |
Fimmtudagur 14. nóvember
Kosningar, spilling, list, inngilding og fjölmiðlar
Í beina útsendingu við Rauða borðið í kvöld koma þau Henry Alexander Henryson, siðfræðingur, Snorri Ásmundsson, myndlistarmaður, Sigurður Haraldsson, rafvirkjameistari og Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari og plötusnúður til að ræða málefni líðandi stundar í aðdraganda kosninganna. Í málefnaumræðu um mikilvægustu málefni kosninganna ræðum við um spillingu á Íslandi og þau Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, Jón Þórisson, fyrrum aðstoðarmaður Evu Joly, Björn Þorláksson, höfundur og blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands ræða um stöðu og umfang spillingarinnar á Íslandi og velta fyrir sér spillingarvörnum, tjáningarfrelsi og ótta í ljósi nýliðinna atburða og annarra eldri. Til að ræða annað mikilvægt mál sem sumir telja að sé tískuorð forréttindahópa en er í raun réttindabarátta upp á líf og dauða koma þau Margrét M. Norðdahl, Þórir Gunnarsson, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listafólk hjá Listvinnzlunni. Þau ræða um lokaðar dyr sem fatlaðir einstaklingar og listamenn rekast á og um sína eigin sáru reynslu af jaðarsetningu og útilokun frá skólakerfinu og skora á stjórnvöld og samfélagið allt að taka skref og taka þátt í inngildingu, skapandi starfi og samræðu sem opnar dyr. Við heyrum svo í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra á Akureyri sen fer yfir helstu màl norðan heiða, brjàlaða veðurspá og afmæli mikilvægs vefmiðils.
| |||
| Rauða borðið 13. nóv - Kosningar, hneyksli, húsnæði og saga úr daglega lífinu | 14 Nov 2024 | 03:33:52 | |
Miðvikudagurinn 13. nóvember
Kosningar, hneyksli, húsnæði og saga úr daglega lífinu
Fjórir listamenn mæta í beina útsendingu í kvöld og svara spurningu um hvort listamenn forðist að opinbera pólitískar skoðanir? Getur það skaðað þá? Og þá hvernig? Þekkjum við dæmi um það? Listamennirnir eru: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Auður Jónsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Hörður Torfason. Rannsóknarblaðamennirnir Helgi Seljan og Aðalsteinn Kjartansson bregða sér í hlutverk viðmælenda í kvöld og fara yfir mál vikunnar; meinta spillingu í sjávarútvegsráðuneytinu og títt umrædda uppljóstrun tengda syni fyrrverandi ráðherra. Jónas Atli Gunnarsson, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sigurður Stefánsson, Aflvaka og Yngvi Ómar Sighvatsson, Leigjendasamtökunum ræða um helstu áskoranir í umbótum í húsnæðisóefni þjóðarinnar. Hafdís Huld Eyfeld Haakansson eftirlaunakona og móðir fjölfatlaðrar konu, Svanhvítar Eddu Johnsen, segir frá baráttu sinni fyrir að dóttirin fái notið arfs sem hún fékk eftir föður sinn.
| |||
| Rauða borðið 12. nóv - Sakamál, fíkn, spilling, bækur og pólitík | 12 Nov 2024 | 04:41:07 | |
Þriðjudagur 12. nóvember
Sakamál, fíkn, spilling, bækur og pólitík
Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður, Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir uppistandari, Halla B. Þorkelsson hjá Heyrnarhjálp og Teitur Atlason kryfja samtímann í beinni útsendingu með Birni Þorláks. Sigrún Sigurðardóttir doktor í hjúkrunarfræði og prófessor við HA, Daðey Albertsdóttir sálfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna, Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og óvirkur alkóhólisti koma og ræða að aldrei hafa fleiri látist úr lyfjaeitrunum en nú er kemur að ungu fólki. Hvað er til ráða? Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur kemur og segir nokkur orð um Jón Gunnarsson og spillingarmál sem nú skekur stjórnsýsluna. Sigþrúður Gunnars, framkvæmdastjóri Forlagsins, kemur og ræðir árekstra bóksölu og kosninganna. Og í lokin kemur Soffía Sigurðardóttir og segir Gunnari Smára Egilssyni frá Geirfinnsmálinu í tilefni af nýrri bók bróður hennar, Sigurðar Björgvins. Var rannsóknin þvæla byggð á sandi?
| |||
| Rauða borðið: Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstrið | 11 Nov 2024 | 03:41:29 | |
Mánudagurinn 11. nóvember
Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstrið
Við byrjum á umræðu um stöðuna í pólitíkinni. Drífa Snædal talskona Stígamóta, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Verður fátækt kosningamál? Ætti fátæk að vera kosningamál? Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, Vilborg Oddsdóttir félagráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Laufey Líndal Ólafsdóttir formaður Pepp samtaka fólks í fátækt ræða stöðuna. Jóhann Hauksson blaðamaður ræðir mál Jóns Gunnarssonar, sem sakar Heimildina um alvarleg óheilindi, er til umræðu. Í lokin kemur Steingrímur J. Sigfússon og ræðir um stöðu Vg og vinstrisins.
| |||
| Synir Egils: Kosningar, umpólun í stjórnmálum og framtíð vinstrisins | 10 Nov 2024 | 02:59:28 | |
Sunnudagurinn 10. nóvember:
Synir Egils: Kosningar, umpólun í stjórnmálum og framtíð vinstrisins
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan blaðamaður, Alma Mjöll Ólafsdóttir starfsmaður þingflokks Vg og Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og ræða fréttir vikunnar og sviptingar í pólitíkinni, hér heiman og vestan hafs. Þeir bræður taka líka stöðuna á pólitíkinni og ræða síðan við vinstra fólk um stöðuna á vinstrinu í okkar heimshluta. Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur, Viðar Þorsteinsson fræðslu og félagsmálastjóri, Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur, Kjartan Valgarðsson framkvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur velta fyrir sér framtíð vinstrisins í stjórnmálunum.
| |||
| Rauða borðið - Helgi-spjall: Rán Reynis | 09 Nov 2024 | 01:55:12 | |
Laugardagurinn 9. nóvember
Helgi-spjall: Rán Reynisdóttir
Unnur Rán Reynisdóttir hársnyrtimeistari og fjögurra barna móðir er komin í framboð. Hún segir okkur frá lífsbaráttu sinni sem varð önnur og harðari en hún bjóst við, ástinni sem svíkur, grimmri fátækt og mikilvægi þess að berjast með samherjum fyrir réttlæti.
| |||
© My Podcast Data · Projet indépendant · Données issues d'Apple & Spotify