Explorez tous les épisodes du podcast HLAÐLIST.
| Titre | Date | Durée | |
|---|---|---|---|
| 11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands | 18 mai 2026 | 01:02:53 | |
Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en um er að ræða 31 bindi um friðaðar kirkjur landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir íslenska kirkjubyggingarsögu, allt frá torf- og timburkirkjum til steinhlaðinna og steinsteyptra kirkna. | |||
| 10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið | 14 mai 2026 | 00:39:42 | |
Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru. | |||
| 9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir | 09 mai 2026 | 00:48:33 | |
Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins. Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju: https://timarit.is/page/7360713#page/n5/mode/2up | |||
| 8. Vigfús Þór Hróbjartsson - Selfoss og skipulag | 06 mai 2026 | 00:46:08 | |
Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum. | |||
| 7. Magnús Skúlason - Þétting byggðar og fagurfræðin | 10 avr. 2026 | 00:50:59 | |
Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari. | |||
| 6. Ríkharður Kristjánsson - Verkfræði og bygginarrannsóknir | 26 mars 2026 | 01:12:37 | |
Ríkharður Kristjánsson, oft kallaður verkfræðingur Íslands, kom til okkar og fór yfir þætti úr sínum goðsagnakennda starfsferil. Við ræðum hlutverk verkfræðinga, ráðhúsið og Hörpu, selinn og sauðkindina. | |||
| 5. Andri Snær Magnason - Jötunsteinn og ljótleiki | 18 mars 2026 | 01:00:38 | |
Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr. | |||
| 4. Hlökk Theodórsdóttir - Um Græna Gímaldið | 24 févr. 2026 | 00:58:07 | |
Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni "„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og Stjórnsýsla undir lok árs 2025. Hlökk er meðal fremstu skipulagsfræðinga landsins og fer með okkur yfir sögu þessarar alræmdu byggingar ásamt öðrum málum. | |||