Explorez tous les épisodes du podcast Einmitt
| Titre | Date | Durée | |
|---|---|---|---|
| 114. Kjartan Már Kjartansson „í lagi í vera ekki hress ef maður verður hress aftur" | 27 Dec 2025 | 01:08:41 | |
Gestur minn í þessum þætti er Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Þeir eru fáir í hans starfi sem hafa ennst jafn lengi í starfi og ekki hafa verkefnin verið auðveld, hvorki í vinnunni eða í hans persónulega lífi. Kjartan ræðir ferilinn af einlægni og veikindin sem hann glímir við af æðruleysi. | |||
| 113. Guðrún Karls Helgudóttir: "Hlutverk kirkjunnar er að þjóna öllum" | 25 Dec 2025 | 00:58:06 | |
Biskup Íslands Guðrún Karls Helgudóttir er gesturinn minn í þessum þætti. Það eru jól þegar hann kemur í loftið og við ræðum kirkuna og trúna og upprisu trúarinnar.
| |||
| 112. Þórdís Kolbrún "Það er dýrt að vera staðfsöst" | 29 Nov 2025 | 01:26:48 | |
Gestur minn í þessum þætti er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir — Ein öflugasti stjórnmálamaður landsins. Hún hefur á sínum ferli haft mikil áhrif á utanríkismál og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Við ræðum valdið og pólitískan kostnað þess að standa með þjóðunum sem standa með Íslandi. | |||
| 111. Gunnar Dan "Sprenging af ljósi" | 29 Nov 2025 | 01:45:08 | |
Gestur minn í þessum þætti af Einmitt er Gunnar Dan, rithöfundur og verslunarstjóri Handverkshússins, sem nýverið gaf út bókina UFO101. Hann hefur í mörg ár sökkt sér ofan óútskýrð fyrirbæri og mögulega heimsóknir utanjarðarvera til jarðar — og Íslands. Við ræðum bókina og hvernig persónuleg andleg upplifun breytti sýn hans á alheiminn og mannkynið. | |||
| 110. Dr. Erla Björns "Vöknum seinna, sofum betur" | 22 Nov 2025 | 00:55:41 | |
Gestur minn í þessum þætti er Dr. Erla Björnsdóttir Sálfræðingur og sérfræðingur í svefnvenjum. Við ræðum áskoranirnar sem felast í því að búa hérna uppi í norðri og stilla klukkuna á móti lífræðilega tímabeltinu okkar | |||
| 109. Björn Berg "Grasið er ekki grænna.." | 17 Nov 2025 | 01:07:38 | |
Gestur minn í þessum þætti er Björn Berg fjármálaráðgjafi – skýrt, hressandi og ótrúlega gagnlegt spjall um hvernig við náum betra svigrúmi og sterkari fjármálum; hlustaðu hér. | |||
| 108. Ólafur Hand "Aldrei farið frá Flateyri" | 05 Nov 2025 | 01:10:37 | |
| |||
| 107. Páll Óskar "Ennþá Gordjöss" | 26 Oct 2025 | 01:46:39 | |
Gestur minn í þessum þætti er hin eini sanni Páll Óskar Hjálmtýrsson poppstjarna. Við tölum um nýjustu plötunni hans og Benna Hemm Hemm, bakslagið, ástin og batann. | |||
| 106 Mikael Kaaber "Fyrsta hlutverkið fimm ára" | 14 Oct 2025 | 01:03:20 | |
Gestur í þessum þætti er ungstjarnan Mikael Kaaber sem er að slá í gegn í söngleiknum Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu þar sem hann fer með annað aðalhlutverkið. | |||
| 105. Elli Egils "Lamaður af ástarsorg í tvo mánuði" | 07 Oct 2025 | 01:28:02 | |
Elli Egils er uppi á vegg hjá Weekend og Hr. Hnetusmjör, hann og konan hans María búa í Las Vegas þar sem þau vinna bæði í sinni list, ættleiða börn og búa til líf sem þeim langar í. | |||
| 104. Margrét Lára "Stórmótin í sumar, EM og Þjóðhátíð" | 04 Jul 2025 | 01:16:33 | |
Margrét Lára Viðarsdóttir er gestur minn í annað sinn, við ræðum um glænýja bók sem hún var að gefa út. Væntingar hennar til EM og næstu Þjóðhátíð | |||
| 103. Einar og Baldur: Allt sem þú vildir vita um hárígræðslur | 30 Jun 2025 | 01:36:33 | |
| |||
| 102 Sonja og Svavar „Við getum ekki annað" | 26 May 2025 | 01:19:28 | |
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins EINMITT ræðir Einar Bárðarson við Sonju Magnúsdóttur og Svavar Jóhannsson, fósturforeldra Oscars Florez, 17 ára drengs frá Kólumbíu, sem íslensk yfirvöld hyggjast vísa úr landi í byrjun júní. Í þættinum fara Sonja og Svavar yfir þann tíma sem Oscar hefur verið inn í þeirra lífi. Alveg frá því að hann fór að koma inn á heimilið sem vinur barnanna þeirra, frá þeim degi sem hann fór að búa hjá þeim, brottvísunina og til dagsins í dag. | |||
| 101. Eiríkur Ómar "Vaknaði í bráðauppskurði" | 04 May 2025 | 01:14:49 | |
Eiríkur Ómar Sæland er gestur minn í þessum þætti. Hann vaknaði í bráðauppskurði á Landspítalanum árið 2016 og er ennþá að glíma við eftirkostin af þeim læknamistökum. | |||
| 99. Eliza Reid "Diplómati deyr" | 18 Apr 2025 | 01:01:21 | |
Gestur minn í þessum þætti er Eliza Reid, fyrrverandi forsetafrú. Hún var að gefa frá sér sína fyrstu skáldsögu Diplómati deyr sem kemur út bæði hér og erlendis. Við ræðum ritstörfin, stílista, jafnrétti og lífið eftir Bessastaði í þessum stórskemmtilega þætti. | |||
| 98 Bogi Ágústsson "Átökin um traustið" | 18 Apr 2025 | 01:01:21 | |
Bogi Ágústsson hefur lesið fréttir fyrir okkur í 48 ár. Honum finnst þetta orðið alveg þokkalegt og segist vera á síðustu mánuðunum hjá Ríkissjónvarpinu. Þjóðin elskar Boga og treystir sem er lykilþáttur í fréttaflutningi. í þessum þætti ræðum við Bogi stærstu fréttir síðustu fimm áratuga og heimsmyndina eins og hún blasir við í dag. | |||
| 100. Bríet "Mig langar að ná til þeirra allra" | 18 Apr 2025 | 01:04:36 | |
Bríet er ein skærasta stjarna samtímans og í þessum þætti ræði ég við hana um tónlistina úr öllum þeim áttum sem hún mæti Bríeti. Söngur, flutningur, lagasmíðar, tónleikahald og ferðalög út í heim bæði til að upplifa frelsið, finna fjölskylduna sína og svo nýju verkefnin hennar í Nashville | |||
| 96. „Litlar líkur en afleiðingar slæmar." | 17 Apr 2025 | 01:10:49 | |
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og fyrrv. starfsmaður SÞ og NATO í Afganistan hefur blandast mikið inn í almenna umræðu síðustu vikna í sambandi við breytta ásýnd í heimsmálnum. Ég fékk Erling til mín til að útskýra stöðuna fyrir okkur á mannamáli. | |||
| 97. Jóhanna Guðrún "Shit hvað þetta er leiðinlegt lag!" | 17 Apr 2025 | 00:57:29 | |
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er ein okkar allra besta söngkona og hefur verið frá því að hún var 10 ára. Eins skrítið og það kann að hljóma var eitt stærsta "comeback" íslenskrar tónlistar árið 2009 þegar hún landaði 2. sæti í Eurovision þá aðeins 18 ára. Við ræðum ferilinn hennar, Eurovision, FM957 og hvað Mömmur þurfa bara nauðsynlega að djamma
| |||
| 95. Tolli "En er hægt að fyrirgefa allt?" | 23 Mar 2025 | 01:12:41 | |
Gestur minn í þessum þætti er Tolli vinur minn Morthens. Hann hefur í áratugi beit sér í málefnum fanga bæði í afplánun og eftir. Hann hefur í áratugi farið inn í fangelsin okkar með 12 spora vinnu sem í árana rás hefur þróast í hugleiðslu, jóga og öndunarvinnu. Tolli segir kærleikann og fyrirgefninguna eina sem togar mannin úr myrkrinu í birtuna. En er hægt að fyrirgefa allt? | |||
| 94. Brynja Dan "Alin upp við það að fólk horfir" | 16 Feb 2025 | 00:54:42 | |
Brynja Dan Gunnarsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún eigandi Extraloppunnar í Smáralind, eigandi 1111.is, bæjarfulltrúi og fyrrum varaþingmaður. Hún er fædd á Sri Lanka, en ættleidd hingað til lands aðeins tveggja mánaða gömul. Hún missti bæði föður sinn og móður hér á Íslandi fyrir tvítugt og það hefur sannarlega mótað hana. Við ræðum fjölskyldur, áföll, liti, hringrásina og lífið í þessum skemmtilega þætti. | |||
| 93. Gunni Hilmars "Vona að gleymi ekki að þetta er fólk" | 11 Feb 2025 | 01:30:44 | |
| |||
| 92. Elín Hall "Ég er búin að læra að hlusta á líkamann" | 02 Feb 2025 | 01:15:22 | |
Elín Hall er gestur Einars Bárðarsonar í þessum þætti. Hún var bara 16 ára þegar hún tók þátt í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins. Síðan tóku við hvert stórhlutverkið af öðru, Bubbi og Vigdís og Lof mér að falla og ofan í það tvær frábærar plötur. Nú eru 10 ár frá Söngvakeppninni og nú vita allir hver Elín Hall er, eða er það ? | |||
| 91. Hannes Þór "Mamma grátbað mig að fara ekki" | 28 Jan 2025 | 01:31:10 | |
Hannes Þór Halldórsson er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum smá fótbolta en við ræðum þó mest hina hliðina á Hannesi sem er framleiðandi en nú er væntanleg í Sjónvarp Símans þriðja þáttaröðin af Iceguys en fyrsta myndbandið sem Hannes gerði var fyrir Nylon flokkinn árið 2024 fyrir rúmlega 20 árum. | |||
| 90 Rakel Garðars: Það er Vigdísar æði | 12 Jan 2025 | 00:59:54 | |
Rakel Garðarsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún er framleiðandi og frumkvöðull í umhverfismálum. Þessa daganna litur þjóðin límd fyrir framan sjónvarpið og fylgist með þáttaröðinni um Vígdísi forseta og þar áður var það Verbúðin. Við ræðum þessar þáttaraðir og allt milli himins og jarðar. | |||
| 89. Linda P "Ég er landsbyggðartútta" | 04 Jan 2025 | 01:08:27 | |
| |||
| 88. Richard Scobie "80's tímabilinu var bara hent" | 04 Jan 2025 | 01:13:37 | |
Richard Scobie er gestur minn í þessum þætti. Hann sló í gegn með hljómsveitinni Rikshaw á níunda áratug 20. aldar og ég var bæði aðdáandi hans og síðar vinur. Við ræðum um tónlistina þessi næstum 40 ár og allt sem henni fylgdi og síðast en ekki síst nýjustu plötuna hans Carnival of Souls sem kom út í haust. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: Mamma veit best, Dalbrekku 30 í Kópavogi Fylgifiskar, Nýbýlavegi 4, Kópavogi | |||
| 87. Bergrún Ólafs "Mig langaði að gera meira" | 29 Dec 2024 | 01:20:50 | |
Bergrún Ólafsdóttir er gestur minn í þessum þætti hún er verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum og við ræðum baráttuna við ræðum matarsóun í þessum þætti.
| |||
| 86. Patrik Atlason, Skýrður í höfuðið á ömmu | 28 Dec 2024 | 01:18:08 | |
| |||
| 85. "Ég hef staðið við mína sýn" | 02 Nov 2024 | 01:03:47 | |
| |||
| 84. "Andlát bræðranna má ekki vera til einskis" | 02 Nov 2024 | 00:58:53 | |
Sigmar Guðmundsson er gestur minn í þessum þætti og við ræðum um fíknisjúkdóminn og allar hans skelfilegu hliðar og hvað við erum máttvana andspænis honum. Sigmar vill að við gerum betur sem samfélag í málaflokknum og á sér skoðanabræður víða. | |||
| 83. "Stöðnun er upptakur að falli" | 04 Oct 2024 | 01:17:35 | |
| |||
| 82. "Þetta eru bara jólin mín" | 04 Oct 2024 | 01:31:25 | |
Elísabet Margeirsdóttir drottning utanvegahlaupana á Íslandi og brautryðjandi í svo mörgum þáttum þeirrar íþróttarar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum þessa íþrótt í sínum víðasta skilningi og þá sérstaklega þetta nýja afbrigði íþróttarinnar sem eru þessi svonefndu bakgarðshlaup | |||
| 81. Lilja Alfreðs "Ég er mjög góður DJ" | 23 Sep 2024 | 01:40:50 | |
Lilja Dögg Alfreðsdóttir Menningar- og viðskiptaráðherra er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum allt milli himins og jarðar, Evruna, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Millet úlpurnar og diskóbúrið í Fellahelli. Stórkemmtilegt samtal sem ég mæli með að þið hlustið á.
| |||
| 80 Arna Magnea "Spurning um hjarta en ekki parta" | 16 Sep 2024 | 01:47:31 | |
| |||
| 79. Rjómaterturnar eru í frjálsu falli | 08 Sep 2024 | 01:14:23 | |
Friðrik Ómar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum verkefni hans sem tónleikahaldara í sínu víðasta samhengi og sameiginlegt áhugamál okkar beggja, Söngvakeppni Sjónvarpsins og Eurovision í framtíð, fortíð og nútíð. | |||
| 78. Björn Jörundur "Má ekki vera einhver vaxmyndasýning" | 27 Aug 2024 | 00:52:23 | |
| |||
| 77. Birgir Steinn "Þetta er bara hluti af mér" | 18 Aug 2024 | 01:15:54 | |
| |||
| 76 Jón Gunnar Þórðarson "Bara tala og bara hlusta" | 11 Aug 2024 | 01:04:16 | |
Gestur minn í þessum þætti er Jón Gunnar Þórðarson frumkvöðull og eigandi "Bara tala". Hann er lærður í listum og viðskiptum og var á tímabili farsæll leikstjóri en nú stýrir hann Bara tala sem unnið hefur til verðlauna fyrir gagnsemi sína í atvinnulífinu. Við tölum og "Bara tala" og margt fleira áhugavert. | |||
| 75 Þórunn Reynis "Íslendingar gera kröfur" | 04 Aug 2024 | 01:06:00 | |
| |||
| 74 Emilíana Torrini "Var hún njósnari?" | 28 Jul 2024 | 01:21:24 | |
| |||
| 73. Guðrún Hafsteins "Við þurfum að gera betur" | 18 Jul 2024 | 01:30:01 | |
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum um feril hennar fram að framboði, þau þrjú ár sem hún hefur setið á þingi og árið hennar í Dómsmálaráðuneytinu. Við ræðum líka gengi Sjálfstæðisflokksins, hvernig hún sér flokkinn vinna upp fylgið og hvort hún sækist eftir áframhaldandi veru í oddvitasæti flokksins á Suðurlandi. | |||
| 72 Helga Þóris "Erindið á Bessastaði" | 13 May 2024 | 00:56:30 | |
| |||
| 71. Una Torfa "Þetta er sagan mín til dagsins í dag" | 04 May 2024 | 01:01:49 | |
| |||
| 70. Bergur Vilhjálmsson "Baráttan við hausinn" | 01 May 2024 | 01:01:24 | |
| |||
| 69 Hver er Halla Hrund? | 25 Apr 2024 | 01:12:48 | |
| |||
| 68. Tommi Knúts "29 ár í rusli" | 08 Apr 2024 | 01:38:19 | |
Tómas J. Knútsson, maðurinn á bak við Bláa herinn, hefur starfað við hreinsun umhverfisins síðustu 29 ár. Hann hefur lengi verið mér og öðrum innblástur í umhverfissmálum. Hann fékk fálkaorðu forseta Íslands fyrir þau störf en er ennþá á fullu. Núna þegar styttist í Stóra plokkdaginn fannst mér tilvalið að fá hann til mín til að ræða þetta magnaða áhugamál okkar félaganna, rusl. | |||
| 67 Siggi Arnars "Tik Tok ætlar að taka yfir tónlistarheiminn" | 08 Apr 2024 | 01:28:23 | |
Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri OverTune sem setti allt á hliðina í byrjun árs eftir að hafa endurlífgað Hemma Gunn við í Áramótaskaupinu. Hann fullyrðir að Tik Tok ætli sér að taka yfir tónlistarheiminn en Tik Tok stendur núna í deilum við Universal, stærsta útgáfufyrirtæki í heiminum. Við Siggi ræðum tæknina og framtíðina í þessum magnaða þætti. | |||
| 66.Hera Björk "Hjartað stækkar og heimurinn minnkar" | 26 Mar 2024 | 01:20:42 | |
Hera Björk er á leiðinni til Malmö að syngja framlag okkar í Eurovison þetta árið. Valið fór ekki fram hjá neinum. Árið 2019 heimsótti hún SOS barnaþorp bæði í Ísrael og Palestínu en hún er velgjörðasendiherra Barnaþorpanna. Við tölum um hlutverk hennar sem hennar sem velgjörðar sendiherra, hrópin sem gerð hafa verið að henni síðustu vikur og mömmu hennar sem var sveitaballa drottning suðurlands | |||
| 65.Júlí Heiðar "Eineltið eflir mann" | 26 Mar 2024 | 01:08:00 | |
| |||