Retour

Explorez tous les épisodes du podcast Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Plongez dans la liste complète des épisodes de Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir. Chaque épisode est catalogué accompagné de descriptions détaillées, ce qui facilite la recherche et l'exploration de sujets spécifiques. Suivez tous les épisodes de votre podcast préféré et ne manquez aucun contenu pertinent.

Rows per page:

1–50 of 1,424

TitreDateDurée
Tjáningarfrelsi á útsölu | Harmageddon | S04E4028 Oct 202600:09:35

Hér á Íslandi er til fólk í áhrifastöðum sem vill henda þeim í fangelsi sem tjá sig um áhyggjur sínar af þróun útlendingamála. það er ekkert nýtt að róttæklingar vilji misnota lög í pólitískum tilgangi en það er verra þegar kjörnir fulltrúar á Alþingi eru komnir þangað.


Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Frakkland er fallið | Harmageddon | S04E3923 Oct 202600:06:01

Fjölmiðlar hér á landi sem erlendis reyna enn að selja okkur þá hugmynd að óeirðirnar í Frakklandi séu fyrst og fremst mótmæli framhaldskólanema. Að loftslagsbreytingar séu að gera nemendum svo erfitt fyrir og ekki sé hægt að taka samræmd próf í svo miklum hita. Þess vegna sé verið að brenna niður opinberar byggingar, verslanir og bíla. En nú hefur forseti Frakklands reyndar gefið það út að skemmdarvargarnir séu fyrst og fremst öfgasinnaðir vinstrihópar sem vilja knésetja franska lýðveldið.


Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Jóhannes Loftsson - Þetta gæti verið mun verra en við höldum! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E6221 Oct 202600:19:30

Geta afleiðingar COVID-bólusetninganna verið að koma fram fyrst núna, fimm árum síðar? Og hvers vegna hefur ekki farið fram ítarlegra uppgjör á sóttvarnaraðgerðum og ákvörðunum heilbrigðisyfirvalda?

Jóhannes Loftsson, verkfræðingur og stjórnarmaður í Heilsuvon, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Jóhannes var áberandi í gagnrýni á sóttvarnaraðgerðir á COVID-tímanum og hefur undanfarin ár beitt sér fyrir því að vekja athygli á fólki sem telur sig hafa orðið fyrir alvarlegum aukaverkunum bóluefna.

Í viðtalinu fer Jóhannes yfir niðurstöður könnunar sem Heilsuvon lét Maskínu framkvæma og telur benda til þess að fjöldi Íslendinga hafi orðið fyrir alvarlegum skaða í kjölfar bólusetninga. Hann gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að hafa ekki rannsakað mögulegar langtímaafleiðingar nægilega vel og varar við því að alvarleg heilsufarsvandamál kunni að koma fram mörgum árum eftir bólusetningar.

Rætt er um möguleg áhrif á hjarta- og æðakerfi, blóðtappa, krabbamein, frjósemi og aðrar heilsufarsbreytingar sem Jóhannes telur ástæðu til að rannsaka betur. Hann setur jafnframt fram harða gagnrýni á lyfjaiðnaðinn, eftirlitsstofnanir og það hvernig brugðist var við þeim sem efuðust um öryggi bóluefnanna.

Umræðan berst einnig að ivermektíni og öðrum lyfjum sem Jóhannes telur að hafi verið ýtt til hliðar á COVID-tímanum, mögulegum hagsmunaárekstrum innan heilbrigðiskerfisins og dómsmáli í Hollandi þar sem Bill Gates og fleiri áhrifamenn eru meðal stefndra vegna meintra afleiðinga bólusetninga.

Í síðari hluta þáttarins er sjónum beint að Íslandi, ábyrgð stjórnvalda, mögulegum bótarétti þeirra sem telja sig hafa orðið fyrir bóluefnaskaða og nýjum sóttvarnalögum. Jóhannes lýsir sérstökum áhyggjum af því að löggjöfin veiti stjórnvöldum of víðtækar heimildir til inngripa í næsta heilbrigðisneyðarástandi.

Höfum við lært eitthvað af COVID-tímanum eða er hætta á að sömu mistökin verði endurtekin?

Ítarlegt og gagnrýnið samtal um heilbrigðisyfirvöld, vísindi, hagsmuni lyfjafyrirtækja, einstaklingsfrelsi og þá ábyrgð sem fylgir ákvörðunum sem hafa áhrif á heila þjóð.

Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Ofbeldi og eyðilegging | Harmageddon | S04E3820 Oct 202600:07:19

Óeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stórhættuleg. Vonandi eru einhverjir loksins að vakna. En svo eru auðvitað þeir vinstrimenn sem hafa slíkt horn í síðu vestrænna gilda að þeir virðast helst fagna ástandinu. Og láta sig dreyma um að íslensk ungmenni taki sér óeirðaseggina til fyrirmyndar. Við fjöllum um þetta og miklu meira í Harmageddon þætti dagsins.


Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Reynir Grétarsson - Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E6112 Oct 202600:16:51

Reynir Grétarsson er einn af athyglisverðari frumkvöðlum og fjárfestum Íslands. Hann var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði ásamt félögum sínum fyrirtækið Lánstraust, sem síðar varð Creditinfo, og átti eftir að vaxa langt út fyrir landsteinana.Í þessu viðtali við Frosta Logason fer Reynir yfir ævintýralegt lífshlaup sitt, allt frá fyrstu skrefunum í íslensku viðskiptalífi á tíunda áratugnum til uppbyggingar alþjóðlegs fyrirtækis. Hann segir frá því hvernig þrír ungir menn hófu rekstur með aðeins tvær milljónir króna, mættu tortryggni bankakerfisins og þurftu að sannfæra valdamikla menn um að þeir væru að gera hlutina á rangan hátt.En velgengni í viðskiptum tryggir ekki endilega hamingju. Reynir ræðir af mikilli einlægni um tímabil þar sem hann var afar óhamingjusamur þrátt fyrir mikinn árangur, um samband sitt við metnað, peninga og viðurkenningu annarra og hvernig viðhorf hans til lífsins hafa breyst með árunum.Í lok viðtalsins ræðir Reynir nýútkomna bók sína, Bókasafn gagnslausra hugsana, þar sem hann fjallar um þær neikvæðu og oft tilgangslausu hugsanir sem geta tekið yfir huga okkar. Hann segir frá því hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði, meðal annars í óvenjulegri reynslu af hugvíkkandi efnum, og hvers vegna hann telur mikilvægt að læra að horfa á hugsanir okkar án þess að láta þær stjórna lífinu.Þetta er einlægt og áhugavert samtal um frumkvöðlastarf, áhættu, velgengni, óhamingju, sjálfsþekkingu og leitina að því sem raunverulega skiptir máli í lífinu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E6008 Oct 202600:15:36

Hvað gerist þegar pólitísk hugmyndafræði fær að ráða för í vísindum og fjölmiðlar birta niðurstöður rannsókna án þess að spyrja gagnrýninna spurninga?Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni.Tilefnið er umdeild skýrsla hugveitunnar Equimundo um viðhorf íslenskra karla til jafnréttis, karlmennsku og ofbeldis. Niðurstöðurnar vöktu mikla athygli í íslenskum fjölmiðlum en sættu síðar harðri gagnrýni félagsvísindamanna vegna alvarlegra annmarka á rannsókninni.Kolbeinn gagnrýnir bæði rannsóknina og hvernig fjölmiðlar tóku niðurstöðum hennar. Hann telur málið afhjúpa mun stærra vandamál: Hversu auðvelt sé að koma vafasömum rannsóknum á framfæri ef niðurstöðurnar falla að ríkjandi pólitískri orðræðu.Umræðan víkkar síðan út í gagnrýna skoðun á stöðu félagsvísinda, kynjafræði og pólitískrar hugmyndafræði innan háskólasamfélagsins. Þeir Frosti rifja meðal annars upp hið fræga Grievance Studies Affair, þar sem þrír fræðimenn komu tilbúnum og fáránlegum rannsóknargreinum í gegnum ritrýni fræðitímarita.Kolbeinn ræðir mikilvægi vísindalegrar aðferðafræði, hættuna sem felst í því að pólitískar skoðanir ráði niðurstöðum rannsókna og hvers vegna fræðimenn verði að vera tilbúnir að gagnrýna hver annan, jafnvel þegar það veldur óþægindum.Einnig er rætt um þá neikvæðu mynd sem gjarnan er dregin upp af íslenskum körlum og hvernig sú mynd samræmist öðrum rannsóknum á jafnréttisviðhorfum.Er háskólasamfélagið að sinna hlutverki sínu sem vettvangur frjálsrar þekkingarleitar eða hefur pólitísk hugmyndafræði fengið of mikið vægi?Um þetta og margt fleira í nýjasta þætti Spjallsins með Frosta LogasyniFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

„Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5905 Oct 202600:15:56

Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst frá því hann settist síðast niður með Frosta til að ræða eitt dularfyllsta viðfangsefni samtímans.Undanfarin misseri hafa fyrrverandi starfsmenn bandaríska hersins og leyniþjónustustofnana stigið fram með ótrúlegar frásagnir af óþekktum fljúgandi fyrirbærum, meintum endurheimtum flýgildum og verum sem eiga ekki að vera af mannlegum uppruna. Samhliða hafa málefni UAP-fyrirbæra ratað inn í bandaríska þingið og opinber gögn og myndbönd verið birt.Gunnar hefur sökkt sér ofan í þennan heim og segist í dag hundrað prósent sannfærður um að hér sé eitthvað raunverulegt á ferðinni – þótt stóra spurningin sé hvað það sé í raun.Í þættinum ræða Frosti og Gunnar meðal annars nýjustu vendingar í UFO/UAP-málum, frásagnir David Grusch, meintar verur og flýgildi, dularfull fyrirbæri neðansjávar og möguleikann á að sumar þeirra vera sem menn hafa talið „geimverur“ komi alls ekki utan úr geimnum heldur úr öðrum víddum – eða hafi jafnvel verið hér á jörðinni miklu lengur en mannkynið.Samtalið færist síðan út fyrir hinn hefðbundna UFO-heim og inn á mörk meðvitundar og efnisveruleika. Gunnar segir frá eigin reynslu af DMT og ayahuasca, kynnum sínum af því sem hann upplifði sem verur í öðrum veruleika og þeirri hugmynd að hugvíkkandi reynsla, trúarbrögð, meðvitund og UFO-fyrirbærið kunni að tengjast með einhverjum hætti.Ný bók Gunnars, UFO 202, tekur einmitt meira á þessum andlegu og heimspekilegu spurningum en fyrri bókin: Hvað er meðvitund? Hvað er tími? Hvaðan komum við? Og er mögulegt að veruleikinn sem við upplifum dagsdaglega sé aðeins lítið brot af einhverju miklu stærra?Óvenjulegt, opinskátt og á köflum algjörlega lygilegt samtal um spurningar sem fyrir örfáum árum hefðu varla ratað inn í alvarlega umræðu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E3701 Oct 202600:12:42

Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki þess að ætla ná þeim tökum á efnahagsmálum sem þau voru kosin til að gera. Við ræðum líka um mikinn árangur sem Já-hliðin náði fram í nýlegri þjóðaratkvæðagreiðslu með drjúgri aðstoð úr sjóðum skattgreiðenda og fjöllum um óhóflega notkun Íslendinga á sterkum geðlyfjum, þrátt fyrir að vera ein hamingjusamasta þjóð heims. Allt þetta og miklu meira í Harmageddon þætti dagsins.

Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5829 Sep 202600:13:35

Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni.Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun, en samtalið vindur fljótt upp á sig og verður að víðtæku uppgjöri við íslensk stjórnmál og þróun samfélagsins undanfarna áratugi.Óli Björn ræðir hvers vegna hægrimenn misstu sjálfstraustið og hugmyndafræðilegan kraft, hvernig Sjálfstæðisflokkurinn fjarlægðist hluta af sínum gömlu rótum og hvers vegna hann telur hörð hugmyndafræðileg átök nauðsynleg í heilbrigðu lýðræðissamfélagi.Rætt er um ríkisrekstur og einkaframtak, skattkerfið, heilbrigðisþjónustu, Ríkisútvarpið og þá róttæku hugmynd Óla Björns að gjörbreyta hlutverki þess. Þá er farið ítarlega yfir útlendingamálin, breytingarnar á útlendingalögum árið 2016 og þann pólitíska rétttrúnað sem hann telur hafa haft mikil áhrif á stjórnmál síðustu ára.Undir lokin rifjar Óli Björn upp átökin innan ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna, hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur og ákvörðun sína um að hætta sem formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.Ítarlegt samtal um frelsi einstaklingsins, vald ríkisins, hugmyndafræði og hvað fór úrskeiðis hjá íslenskum hægrimönnum.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E3623 Sep 202600:13:02

Fyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í Evrópusambandinu. Nú hefur náðst farsælt samkomulag um Grænland, allir eru hæstánægðir og stærsta röksemdin fyrir inngöngu Íslands í ESB virðist hafa gufað upp. Við fjöllum um þetta og fleiri mál líðandi stundar í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E5721 Sep 202600:19:16

Jón Helgi Egilsson, doktor í peningamálahagfræði, segir að Ísland geti boðið húsnæðislán með föstum vöxtum til mun lengri tíma en nú tíðkast. Hann tók þátt í vinnu á vegum fyrri ríkisstjórnar sem miðaði meðal annars að því að gera tíu ára vaxtafestingu að raunhæfum valkosti fyrir íslenska lántakendur. Sú vinna hafi hins vegar verið stöðvuð eftir að Daði Már Kristófersson tók við embætti fjármálaráðherra.Í viðtalinu ræðir Jón Helgi hvers vegna eigin gjaldmiðill sé mikilvægt hagstjórnartæki fyrir lítið og opið hagkerfi og segir upptöku evru jafngilda fastgengi sem henti Íslandi illa. Hann telur að eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar eigi stjórnvöld að einbeita sér að því að bæta íslenska peninga- og lánakerfið.Þá útskýrir hann hvernig viðskiptabankar búa til nýja peninga með útlánum, hvers vegna ráðstöfun lánsfjár getur ýtt undir verðbólgu og eignabólur og hvað megi læra af hugmyndum hagfræðingsins Richards Werners.Jón Helgi fjallar einnig um tæknibreytingar sem geti rofið forréttindastöðu bankanna, gert fólki kleift að varðveita rafrænar eignir utan hefðbundins bankakerfis og aukið samkeppni í fjármálaþjónustu. Hann varar jafnframt við þeirri miðstýringu sem geti fylgt fyrirhugaðri stafrænni evru Evrópska seðlabankans og segir hættulegt að byggja kerfi sem stjórnvöld gætu síðar misnotað.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E3516 Sep 202600:05:59

Erlendir ríkisborgarar eru aðeins um fjórðungur vinnuaflsins en tæplega 57% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá fyrstu sjö mánuði ársins. Við ræðum þessar sláandi tölur og spyrjum hvers vegna stjórnvöld virðast hafa meiri áhyggjur af umræðunni en vandanum sjálfum.Við förum einnig yfir hvernig stríð stjórnvalda gegn nikótínpúðum virðist hafa leitt til aukinna sígarettureykinga meðal ungmenna, kynjafræði sem vill nú tala um „typpabörn“ og „píkubörn“ og hvernig sænska hægrið virðist endanlega hafa slátrað framtíð landsins með því að flytja inn hundruð þúsunda erlendra kjósenda á síðasta kjörtímabili.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Sigmundur Davíð: „Við verðum að ná stjórn á landamærunum“ | Spjallið með Frosta | S04E5615 Sep 202600:19:04

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Í viðtalinu ræðir hann niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið og gagnrýnir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við ósigrinum. Hann segir stjórnvöld hafa misst af tækifærinu til að sameina þjóðina og telur fráleitt að halda lífi í gamalli aðildarumsókn eftir að þjóðin hefur sagt nei.Þá fer Sigmundur hörðum orðum um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hann segir skatt- og gjaldahækkanir bitna á venjulegu fólki, ýta undir verðbólgu og sýna að stjórnvöld hafi ekki vilja til að ráðast í raunverulegan niðurskurð ríkisútgjalda.Stór hluti samtalsins snýst um útlendingamál, hælisleitendakerfið og þróunina í Evrópu. Sigmundur segir nauðsynlegt að semja ný útlendingalög frá grunni, koma í veg fyrir misnotkun kerfisins og ná stjórn á landamærum Íslands áður en vandinn verði óviðráðanlegur.Einnig er rætt um uppgang AfD og annarra hægriflokka í Evrópu, áhrif innflytjenda á stjórnmálin, samband Íslands við Bandaríkin og viðbrögð íslenskra stjórnmálamanna við umdeildri kortamynd Donalds Trump. Sigmundur segir Trump hafa gaman af því að leika „nettröll“ og telur íslensk stjórnvöld hafa brugðist við málinu af óþarfa móðursýki.Að lokum ræðir hann framtíð ríkisstjórnarinnar, efnahagsmálin og hvað Miðflokkurinn myndi gera öðruvísi kæmist hann til valda.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra - reikningurinn okkar | Harmageddon | S04E3409 Sep 202600:04:29

Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari bótum og aðgerðum sem gætu aukið verðbólguþrýsting. Við förum yfir það sem leyndist á bak við glansandi kynninguna og spyrjum: Eru fjárlögin raunverulega hallalaus - eða hefur reikningurinn einfaldlega verið færður yfir á almenning?

Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“ | Spjallið með Frosta | S04E5507 Sep 202600:18:38

Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta gagnrýnisröddin gegn nútíma kynvitundarpólitík og þeirri hugmyndafræði sem hún telur hafa tekið yfir umræðuna um transfólk.Í þessu ítarlega viðtali ræðir Debbie við Frosta Logason um eigin æsku, vanlíðanina sem leiddi til kynleiðréttingar og hvers vegna hún hafnar nú hugmyndinni um meðfædda „kynvitund“. Hún segir líffræðilegt kyn vera óbreytanlegan veruleika, transkonur vera líffræðilega karla og að fólk geti breytt líkama sínum og framsetningu án þess að samfélagið þurfi að afneita raunveruleikanum.Debbie fjallar einnig um sjálfskilgreiningu kyns, persónufornöfn, kvennarými og fangelsi, réttindi transfólks, bakslagið gegn transhreyfingunni og þá hörðu gagnrýni sem J.K. Rowling og Graham Linehan hafa sætt.Sérstök áhersla er lögð á börn. Debbie gagnrýnir harðlega notkun kynþroskablokka og hormónameðferða, segir hugmyndina um „transbörn“ geta ýtt undir gamaldags staðalímyndir og telur að börn eigi að fá svigrúm til að vaxa úr grasi áður en þau taka óafturkræfar ákvarðanir um líkama sinn.Að lokum beinir hún orðum sínum sérstaklega til Íslands, þar sem hún telur sömu hugmyndafræði hafa náð fótfestu og í Bretlandi og Bandaríkjunum.„Líffræðilegt kyn skiptir máli. Fólk á að vera frjálst til að tjá sig eins og það vill – en það breytir ekki kyni þess.“Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Við viljum ráða okkur sjálf | Harmageddon | S04E3302 Sep 202600:02:49

Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að sífellt fleiri Evrópubúum hugnast illa sú aukna miðstýring sem sambandið stefnir að. Viðbrögðin hér heima hafa þó verið af öðrum toga. Tapsárir já-sinnar virðast margir haldnir þeirri meinloku að Nei-ið hafi aðeins unnið vegna þess að auðvaldið og svokallaðir sjávargreifar hafi keypt sér niðurstöðuna og heilaþvegið þjóðina með áróðri. En Nei-sinnar komu úr öllum stjórnmálaflokkum og úr ólíkum áttum samfélagsins. Þeir fylgdu einfaldlega þeirri sannfæringu sinni að Ísland ætti ekkert erindi inn í Evrópusambandið.Þjóðin hafnaði því að færa meira vald frá Íslandi og inn í miðstýrt evrópskt kerfi. Hún valdi að standa með sjálfsákvörðunarrétti sínum og þeirri einföldu hugmynd að Íslendingar eigi sjálfir að ráða málum sínum.Í nýjasta þætti Harmageddon förum við yfir úrslitin, viðbrögðin heima og erlendis og þær langsóttu skýringar sem nú eru notaðar til að gera lítið úr upplýstri ákvörðun íslenskra kjósenda.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5401 Sep 202600:19:00

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-viðræður.Bjarni segir niðurstöðuna „hart nei“ og mikið áfall fyrir Evrópusinnuðu stjórnarflokkana. Hann telur ríkisstjórnina vera í brekku eftir að verðbólga og vextir tóku aftur að hækka, atvinnuleysi jókst og þjóðin hafnaði stærsta stefnumáli hennar.Í viðtalinu er farið ítarlega yfir orsakir verðbólgunnar, 8% stýrivexti, forsendubrest kjarasamninga og þær breytingar sem Bjarni telur nauðsynlegar á íslenska vinnumarkaðslíkaninu. Hann segir laun hafa hækkað langt umfram það sem upphaflega var samið um, á meðan framleiðniaukningin sem átti að standa undir hækkununum hafi ekki skilað sér.Bjarni gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að leggja of mikla áherslu á nýja skatta og tekjuöflun í stað þess að draga úr útgjöldum og ráðast í varanlegar kerfisbreytingar. Hann telur mikil tækifæri felast í stafrænni þjónustu, gervigreind og betri nýtingu fjármuna hjá ríki og sveitarfélögum.Þá ræða Frosti og Bjarni meðal annars:- hvort hægt sé að halda lífi í núverandi kjarasamningum- ábyrgð fyrirtækja, stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar- veikleika íslenska vinnumarkaðslíkansins- víðtæka notkun verðtryggingar- stöðuna á húsnæðis- og byggingarmarkaði- hugmyndir Richard Werner um útlán banka og peningamagn- hvort Seðlabankinn hafi átt að hækka vexti í 8%- skattahækkanir og skort á aðhaldi í ríkisrekstri- niðurstöðu ESB-kosninganna og framtíð íslensku krónunnar- stöðu ríkisstjórnarinnar eftir ósigurinn- lífið eftir stjórnmálin og ástæður þess að Bjarni hætti- hótanir, áreiti og vaxandi hörku í garð stjórnmálamanna- Ítarlegt samtal um þá stóru spurningu sem nú blasir við þjóðinni: Hvernig geta Íslendingar náð tökum á verðbólgu, lækkað vexti og tryggt áframhaldandi hagvöxt og sterk lífskjör?Umsjón: Frosti LogasonGestur: Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsinsFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Richard Werner: Why EU Membership Would Be a Grave Mistake for Iceland | S04E5327 Aug 202601:00:39

Professor Richard Werner warns Icelanders against surrendering their monetary sovereignty by joining the European Union and eventually adopting the euro.In this wide-ranging interview, recorded ahead of Iceland’s referendum on reopening EU accession negotiations, Werner argues that joining the euro would be one of the worst economic decisions Iceland could make. By abandoning the Icelandic króna, he says, the country would give up control over monetary policy, lose its ability to respond independently to future crises and place crucial economic decisions in the hands of the European Central Bank.Werner also discusses the ECB’s plans for a digital euro. He describes central bank digital currency as a powerful instrument of centralised control that could eventually allow the ECB to deal directly with the public, undermine commercial and community banks and radically transform the European financial system.But Werner does not defend Iceland’s current economic policies. He strongly criticises the Central Bank of Iceland for relying on interest-rate increases while failing to control the quantity and allocation of bank credit. In his view, inflation, high mortgage rates and economic instability are not unavoidable consequences of having a small independent currency—they are the result of poor monetary and banking policies.He proposes a fundamentally different path for Iceland: retain the króna, make the Central Bank meaningfully accountable, encourage the creation of numerous small local and community banks, and direct newly created bank credit towards productive business investment rather than consumption, property speculation and financial assets.Werner also addresses Iceland’s unusual system of inflation-indexed mortgages and argues that indexation treats the symptoms rather than the underlying disease. If Iceland tackles inflation at its source, he says, the country could gradually eliminate the need for indexation while achieving lower interest rates, stronger economic growth, a more stable currency and greater prosperity.Topics discussed include:• Why Werner believes Iceland should reject EU membership• What Iceland would surrender by adopting the euro• The ECB’s record on inflation, asset bubbles and banking crises• The digital euro and the future of central bank digital currencies• What the Central Bank of Iceland is doing wrong• Why raising interest rates may not solve inflation• Iceland’s inflation-indexed mortgages• How bank credit creates money, inflation and asset bubbles• Why Iceland needs more local and community banks• How Iceland could achieve stability while retaining the krónaProfessor Richard Werner is an internationally recognised economist and banking expert, best known for his research into credit creation, monetary policy and the role of banks in economic development.Hosted by Frosti Logason.

Athygli ríkisstjórnarinnar á að vera á efnhagsmálum | Harmageddon | S04E3227 Aug 202600:07:06

Á baráttufundi já-hliðarinnar í vikunni talaði Kristrún á þann veg að helst mætti skilja að hún væri búin að gefast upp á verkefninu, sem ríkisstjórnin hefur varla byrjað á, og væri nú sannfærð um að aðeins kommissararnir í Brussel gætu kveðið niður verðbólguna á Íslandi. En ríkisstjórnin gæti byrjað á því að efna sinn hlut í síðustu kjarasamningum. Hún gæti afturkallað gjaldahækkanir sem hafa þrýst verðlagi upp. Hún gæti hætt að láta hið opinbera vera leiðandi í launaþróun. Og þau gætu dregið úr ríkisútgjöldum í stað þess að auka þau. En í staðinn ætla þau að bjóða okkur í rándýra óvissuferð til Brussel.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Egill Almar: Ísland hefur nær ekkert vaxið í tíu ár | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5225 Aug 202600:15:44

Egill Almar Ágústsson hefur á síðustu misserum vakið athygli fyrir skrif sín um íslenska krónu, verðtryggingu, vexti og hagvöxt. Hann telur að Ísland standi frammi fyrir miklu stærra efnahagsvandamáli en flestir geri sér grein fyrir: Hagvöxtur á mann hafi verið sáralítill síðasta áratuginn og íslenskt atvinnulíf búi ekki til nægilega mörg ný og vel launuð störf.Egill vill að Ísland fari í sókn, opni hagkerfið betur fyrir erlendri fjárfestingu og tengist evrópsku efnahagslífi með mun dýpri hætti. Hann telur smæð krónunnar, háa vexti og verðtryggingu skapa óstöðugt og óhagkvæmt viðskiptaumhverfi - og sér aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru sem mikilvægan hluta lausnarinnar.Frosti er ósammála. Hann bendir á sterka stöðu þjóðarbúsins, mikinn vöxt hugverkaiðnaðar, árangur íslenskra útflutningsfyrirtækja og þau mikilvægu stjórntæki sem fylgja eigin gjaldmiðli. Hann telur Ísland geta ráðist gegn verðbólgu, eflt nýsköpun og skapað verðmæt störf án þess að ganga inn í Evrópusambandið.Úr verður löng og hreinskilin rökræða um ESB og evruna, kosti og galla krónunnar, stöðu íslenska hagkerfisins, erlenda fjárfestingu, háa vexti og fullyrðingar Egils um að bankar og fasteignafélög geti hagnast á verðbólgunni.Er Ísland í raun að dragast aftur úr umheiminum - eða hefur íslenska hagkerfið sýnt að þjóðin stendur betur utan Evrópusambandsins?Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hilmar Veigar Pétursson - Allt viðtalið | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5125 Aug 202601:32:21

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris og maðurinn á bak við CCP og EVE Online, studdi áður inngöngu Íslands í Evrópusambandið og upptöku evru. Nú hefur honum snúist hugur og ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum.Í þessu ítarlega viðtali útskýrir Hilmar hvað varð til þess að hann skipti um skoðun. Hann ræðir reynslu sína af Brexit, hnignandi samkeppnishæfni Evrópu, sívaxandi regluverk ESB og hvers vegna hann telur EES-samninginn þjóna íslenskum hagsmunum betur en full aðild.Hilmar segir að tekist hafi að skapa mun traustari grundvöll undir íslensku krónuna en flestir áttu von á. Hugverkaiðnaðurinn sé orðinn stærri en sjávarútvegurinn og geti orðið stærsta útflutningsstoð Íslands árið 2030. Í stað þess að verja næstu árum í aðildarviðræður eigi stjórnvöld að beina athyglinni að verðbólgu, vöxtum, menntakerfinu, nýsköpun og áframhaldandi uppbyggingu íslenskra útflutningsgreina.Einnig er rætt um uppbyggingu CCP, ævintýrið í kringum EVE Online, nýja leiki fyrirtækisins, reynslu Hilmars af Kína og þau gríðarlegu viðskiptatækifæri sem hann sér utan Evrópu.Í lok viðtalsins lýsir Hilmar einstöku samstarfi Fenris og Google DeepMind. Þar er heimur EVE notaður sem eins konar sandkassi til að rannsaka hegðun sjálfstæðra gervigreindarerindreka og kanna hvort þeir starfi með mannkyninu - eða fari sínar eigin leiðir.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Snærós Sindradóttir - Allt viðtalið | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5024 Aug 202601:01:30

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, mætir í ítarlegt og beinskeytt samtal um Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Byggjum á árangri Íslands - Hilmar Veigar segir ESB trufla rétta forgangsröðun | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E5024 Aug 202600:16:11

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris og maðurinn á bak við CCP og EVE Online, studdi áður inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru. Nú hefur honum snúist hugur og ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum.Í þessu ítarlega viðtali útskýrir Hilmar hvað varð til þess að hann skipti um skoðun. Hann ræðir reynslu sína af Brexit, hnignandi samkeppnishæfni Evrópu, sívaxandi regluverk ESB og hvers vegna hann telur EES-samninginn þjóna íslenskum hagsmunum betur en full aðild.Hilmar segir að tekist hafi að skapa mun traustari grundvöll undir íslensku krónuna en flestir áttu von á. Hugverkaiðnaðurinn sé orðinn stærri en sjávarútvegurinn og geti orðið stærsta útflutningsstoð Íslands árið 2030. Í stað þess að verja næstu árum í aðildarviðræður eigi stjórnvöld að beina athyglinni að verðbólgu, vöxtum, menntakerfinu, nýsköpun og áframhaldandi uppbyggingu íslenskra útflutningsgreina.Einnig er rætt um uppbyggingu CCP, ævintýrið í kringum EVE Online, nýja leiki fyrirtækisins, reynslu Hilmars af Kína og þau gríðarlegu viðskiptatækifæri sem hann sér utan Evrópu.Í lok viðtalsins lýsir Hilmar einstöku samstarfi Fenris og Google DeepMind. Þar er heimur EVE notaður sem eins konar sandkassi til að rannsaka hegðun sjálfstæðra gervigreindarerindreka og kanna hvort þeir starfi með mannkyninu — eða fari sínar eigin leiðir.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Ólafur Ragnar Grímsson | Kjarni málsins með Helga Bjarna | S01E01 | Þátturinn í heild sinni24 Aug 202601:52:51

Við byrjum á því hvernig heimsmyndin er að breytast og færum okkur þaðan að norðurslóðum, stöðu Íslands og alþjóðlegum viðskipta- og öryggishagsmunum. Síðan ræðum við nýjar atvinnugreinar og tæknibreytingar, meðal annars gervigreind, áður en við endum á Evrópusambandinu og komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hinn raunverulegi kostnaður við aðildarviðræður við ESB | Harmageddon | S04E3119 Aug 202600:09:12

Því er gjarnan haldið fram að aðildarviðræður við Evrópusambandið séu aðeins saklaus leið til að „kíkja í pakkann“. En viðræðurnar eru hvorki hlutlaus könnunarferð né ókeypis. Þær eru umfangsmikið pólitískt og stjórnsýslulegt ferli sem hefur eitt skýrt lokamarkmið: fulla aðild Íslands að ESB.Í Harmageddon förum við yfir kostnaðinn við slíkt ferli, skortinn á skýru pólitísku umboði og þá hagsmuni sem gætu verið undir. Er skynsamlegt að verja árum, fjármunum og pólitísku bolmagni í aðildarviðræður þegar meirihluti þjóðarinnar virðist ekki vilja sjálfa aðildina?Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Snærós Sindradóttir „Við myndum finna betur fyrir því að vera rík þjóð í ESB“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E4919 Aug 202600:18:37

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, mætir í ítarlegt og beinskeytt samtal um Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.Snærós telur að Íslendingar eigi að segja já við áframhaldandi aðildarviðræðum. Með því sé ekki verið að samþykkja inngöngu í Evrópusambandið heldur kaupa þjóðinni tíma til að fá skýrari svör, sjá mögulegan aðildarsamning og taka síðan upplýsta ákvörðun.Í þættinum ræða Frosti og Snærós meðal annars um:- Hvort þjóðin sé í reynd að kjósa um aðild eða aðeins áframhaldandi viðræður.- Fullyrðingar og auglýsingar já- og nei-hreyfinganna.- Fullveldisframsal, lýðræðishalla og áhrif smáríkja innan ESB.- Málskotsrétt forseta Íslands og vægi þjóðaratkvæðagreiðslna.- Sjávarútveginn, erlenda fjárfestingu og mögulegar undanþágur.- Landbúnað og innflutning lifandi dýra.- Krónuna, evruna, verðbólgu og háa vexti.- Lífskjör á Íslandi og hvort ESB-aðild myndi raunverulega bæta þau.- Samkeppni, vöruverð og regluverk Evrópusambandsins.Snærós gagnrýnir harðlega málflutning hluta nei-hreyfingarinnar og segir rangfærslur í baráttunni vera „að tæra sig upp“. Frosti spyr á móti hvort kostir aðildar séu nægilega miklir til að réttlæta valdaframsalið - sérstaklega þegar Ísland stendur nú þegar í fremstu röð á alþjóðlegum mælikvörðum um hagsæld, öryggi, jafnrétti og lífsánægju.Líflegt og hreinskilið samtal tveggja einstaklinga sem nálgast Evrópusambandið frá ólíkum sjónarhornum - en eru sammála um að umræðan eigi að vera efnisleg, upplýst og laus við óþarfa heift.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Geir H. Haarde: „ESB-viðræðurnar eru áhættuspil“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E49 | Þátturinn í heild sinni17 Aug 202601:19:59

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, sest niður með Frosta Logasyni og ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.Geir telur rangt að stilla kosningunum upp sem áhættulausri leið til að „kíkja í pakkann“. Verði niðurstaðan já sé ekki aðeins verið að kanna hvað ESB hafi fram að færa heldur þurfi Ísland að sækja formlega um aðild. Hann segir viðræðurnar geta kostað stórfé, tekið mikinn tíma frá íslenska stjórnkerfinu og stefnt framtíð EES-samningsins í óvissu.Í viðtalinu varar Geir við því að Norðmenn kunni að fara sínar eigin leiðir ef Ísland beinir kröftum sínum að ESB-aðild. Í verstu sviðsmynd gæti Ísland staðið eitt eftir utan núverandi EES-fyrirkomulags—án þess að aðildarsamningur við ESB hafi náðst.Geir telur jafnframt sáralitlar líkur á að Ísland fái varanlegar undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu ESB. Yfirráð Íslands yfir sjávarauðlindinni séu ekki aðeins venjulegt hagsmunamál heldur tilvistarspurning fyrir þjóðina.Þá ræða Frosti og Geir um evruna, íslensku krónuna, verðbólgu, vexti og verðtryggingu. Geir hafnar því að hægt sé að fullyrða að ESB-aðild og upptaka evru færi íslenskum heimilum sjálfkrafa lægri vexti. Ísland þyrfti fyrst sjálft að ná tökum á verðbólgunni og uppfylla ströng skilyrði áður en evran kæmi yfirleitt til greina.Geir rifjar einnig upp reynsluna af bankahruninu, neyðarlögunum og veikleikum evrópska fjármálaregluverksins. Hann telur að Ísland hafi náð sér hraðar eftir hrunið vegna þess að þjóðin hafði eigin gjaldmiðil og svigrúm til sjálfstæðra aðgerða.Meðal þess sem rætt er um:- Áhættuna sem Geir telur fylgja aðildarviðræðum- Framtíð EES-samningsins og viðbrögð Noregs- Sjávarútveg, landbúnað og fullveldi Íslands- Líkur á varanlegum undanþágum frá reglum ESB- Beinan kostnað Íslands af aðild- Evru, krónu, verðbólgu og húsnæðisvexti- Verðtryggingu og íslenska lánakerfið- Bankahrunið, neyðarlögin og Icesave- Öryggissamband Íslands og Bandaríkjanna- Trump, Grænland og breytt alþjóðlegt ástand- Hvort dollarinn kæmi jafnvel frekar til greina en evranGeir segir mikla þjóðarhagsmuni í húfi og ætlar sjálfur að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum 29. ágúst.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hryðjuverkamálið, Quang Le og baráttan um ESB | Sveinn Andri Sveinsson | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E4813 Aug 202600:19:17

Sveinn Andri Sveinsson lögmaður er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu.Í fyrri hluta viðtalsins ræða þeir svokallaða hryðjuverkamálið en Sveinn Andri var verjandi annars mannanna sem sakaðir voru um að hafa undirbúið hryðjuverk hér á landi. Málið endaði með sýknu af hryðjuverkaákærunum eftir langt og umdeilt dómsferli.Sveinn Andri fer yfir upphaf rannsóknarinnar, blaðamannafund ríkislögreglustjóra og þá ákvörðun að lýsa því yfir að Íslendingum hefði verið bjargað frá hryðjuverki. Að hans mati einkenndist framhald málsins af tilraunum lögreglu og ákæruvalds til að réttlæta harkalegar aðgerðir í upphafi. Hann telur að lögreglan verði að draga lærdóm af málinu og hætta að boða til stórra blaðamannafunda áður en rannsókn liggur fyrir.Þá er rætt ítarlega um mál víetnamska athafnamannsins Quang Le, sem hefur meðal annars verið rannsakaður vegna gruns um mansal, peningaþvætti og brot á útlendingalögum. Sveinn Andri gagnrýnir hversu lengi rannsóknin hefur staðið, lokun fyrirtækja og bankareikninga, frystingu eigna og langvarandi farbann. Hann spyr hvort gengið hefði verið jafnlangt hefði íslenskur fyrirtækjaeigandi átt í hlut og lýsir áhyggjum af þeim þrýstingi sem erlendir starfsmenn kunni að hafa orðið fyrir við rannsókn málsins.Í síðasta og lengsta hluta viðtalsins takast Frosti og Sveinn Andri síðan á um Evrópusambandið, evruna og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.Sveinn Andri hefur lengi verið eindreginn stuðningsmaður ESB-aðildar. Hann telur EES-samninginn fela í sér meira raunverulegt fullveldisframsal en full aðild og segir Íslendinga hafa greitt gríðarlegt verð fyrir krónuna í formi hárra vaxta. Frosti dregur þær forsendur í efa og spyr meðal annars hvort upptaka evru myndi leiða til lægra launastigs, hvort Ísland gæti tryggt full yfirráð yfir sjávarauðlindinni og hversu mikið vald færðist til stofnana og dómstóla Evrópusambandsins.Úr verður löng, lífleg og hreinskilin rökræða um vexti, kaupmátt, fullveldi, sjávarútveg, orkumál og það hvort Íslendingar eigi að segja „já til að sjá“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

„Ef ég væri Íslendingur myndi ég kjósa nei“ | Carl Baudenbacher um ESB | Spjallið | S04E47 | Þátturinn í heild sinni12 Aug 202600:50:45

Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins og einn helsti sérfræðingur Evrópu í EES-rétti, ræðir hér þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og hvað hann telur að raunverulega sé undir.Baudenbacher hafnar þeirri framsetningu að fyrri þjóðaratkvæðagreiðslan snúist aðeins um að „sjá hvað sé í boði“. Jákvæð niðurstaða myndi að hans mati skapa sterkan pólitískan meðbyr í átt að aðild og gera Íslendingum mun erfiðara fyrir að hafna samningi síðar. Hann telur sönnunarbyrðina hvíla á þeim sem vilja yfirgefa núverandi fyrirkomulag og leggja af stað í það sem hann kallar „ævintýri“ Evrópusambandsaðildar.Í viðtalinu útskýrir Baudenbacher mikilvægi sjálfstæðrar EFTA-stoðar EES-samningsins, þar sem Ísland hefur eigin eftirlitsstofnun og dómstól sem Evrópudómstóllinn getur ekki ógilt dóma hjá. Hann segir Íslendinga hafa mun meira vægi innan þessara stofnana en þeir myndu hafa innan framkvæmdastjórnar ESB og Evrópudómstólsins.Icesave-málið er sérstaklega rætt. Baudenbacher segir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa lagt mikla áherslu á að Ísland tapaði málinu, en EFTA-dómstóllinn hafi staðist þrýstinginn og komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu bæri ekki að ábyrgjast skuldbindingar einkabanka. Að hans mati sýnir málið hvers vegna sjálfstæði EFTA-stoðarinnar getur haft úrslitaþýðingu fyrir lítið ríki.Þá ræðir hann hvort Ísland gæti raunverulega fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB. Jafnvel þótt skrifleg undanþága fengist yrði umfang hennar, að sögn Baudenbachers, síðar túlkað af framkvæmdastjórninni og Evrópudómstólnum. Hann telur jafnframt ólíklegt að aðildarsamningur Íslands gæti byggst á undanþágum á öllum þeim sviðum sem skipta þjóðina mestu, meðal annars í sjávarútvegi, landbúnaði og orkumálum.Í samtalinu er einnig fjallað um:– Hvers vegna Baudenbacher telur að „fyrra jáið“ skipti mestu máli– Lýðræðishalla EES annars vegar og Evrópusambandsins hins vegar– Lissabon-sáttmálann og þróun ESB í átt að aukinni miðstýringu– Hlutverk framkvæmdastjórnarinnar og Evrópudómstólsins– Möguleg áhrif sæstrengs á íslenskt raforkuverð– Krónuna, evruna og reynslu Sviss af veikingu evrunnar– Trump, Grænland og hvort ESB geti veitt Íslandi raunverulegar öryggistryggingar– Samningspakka Sviss við ESB, sem Baudenbacher kallar ójafnan samning– Hvers vegna hann telur Evrópu þurfa sjálfstæða EFTA-stoð– Ákvörðun Háskóla Íslands um að heimila honum ekki að flytja fyrirlestur í Hátíðarsal skólansBaudenbacher segist hafa mikla aðdáun á sjálfstrausti Íslendinga, sem þrátt fyrir smæð þjóðarinnar hegði sér eins og stórt og sjálfstætt ríki. Hann óttast að eitthvað af því myndi glatast við inngöngu í Evrópusambandið.„Ef ég væri Íslendingur og hefði kosningarétt myndi ég kjósa nei 29. ágúst,“ segir Baudenbacher.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

„Fyrra já-ið er úrslitaatkvæðið“ - Carl Baudenbacher um ESB ferlið | Spjallið með Frosta | S04E4711 Aug 202600:19:25

Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, segir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst ekki aðeins snúast um að „sjá hvað sé í boði“. Jákvæð niðurstaða myndi setja öflugt pólitískt ferli af stað og gera erfiðara að hafna aðild síðar.Í klippunni ræðir hann sjálfstæði EFTA-stoðarinnar, mikilvægi Icesave-dómsins, óvissuna um varanlega undanþágu í sjávarútvegsmálum og geopólitísku rökin fyrir ESB-aðild. Baudenbacher segir sönnunarbyrðina hvíla á þeim sem vilja yfirgefa núverandi EES-fyrirkomulag og leggja af stað í „ævintýri“ ESB-aðildar.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Engin trygging | Harmageddon | S04E3006 Aug 202600:12:00

Allt varð vitlaust þegar Ólafur Ragnar Grímsson benti á í viðtali við Brotkast að engin trygging væri fyrir því að sérstök þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin um lokasamning við Evrópusambandið. Honum var umsvifalaust gefið að sök að ljúga, blekkja og fara rangt með staðreyndir. En þegar hlustað er á það sem Ólafur Ragnar sagði í raun er málflutningurinn töluvert skýrari. Hann sagði beinlínis að það yrði „mjög skrýtið“ ef lokasamningur yrði ekki borinn undir þjóðina, en benti jafnframt á að loforð um slíka atkvæðagreiðslu væri ekki það sama og trygging fyrir henni. Við förum yfir orð Ólafs Ragnars, viðbrögðin við þeim og þessa áhugaverðu tilhneigingu íslenskrar stjórnmálaumræðu til að ráðast á sendiboðann þegar skilaboðin falla mönnum illa í geð.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Ólafur Ragnar: „Það má ekki blekkja þjóðina“ | Spjallið með Frosta | S04E46 | Allur þátturinn06 Aug 202602:15:13

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sest hér niður með Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og þær afleiðingar sem samþykki hennar gæti haft fyrir framtíðarstöðu Íslands.Ólafur Ragnar hafnar því alfarið að Íslendingar geti einfaldlega sagt „já til að sjá“ og farið í hlutlausar könnunarviðræður við Evrópusambandið. Slíkt ferli sé ekki til innan kerfis sambandsins. Samþykki þjóðarinnar yrði túlkað í Brussel og umheiminum sem endurvakin umsókn Íslands um aðild.Hann segir erlenda sérfræðinga sem þekkja vel til Evrópusambandsins hafa hlegið þegar hann útskýrði fyrir þeim málflutninginn um að Íslendingar ætluðu aðeins að „kíkja í pakkann“. Að hans mati gæti íslenskur ráðherra því lent í þeirri stöðu að þurfa annaðhvort að hefja raunverulegt aðildarferli eða mæta í Brussel með málflutning sem yrði ekki tekinn alvarlega.Í viðtalinu ræðir Ólafur Ragnar meðal annars:- Lissabon-sáttmálann og valdakerfi Evrópusambandsins.- Hvers vegna sæti Íslands við borðið hefði að hans sögn aðeins 0,1% vægi í mikilvægum ákvörðunum.- Um evru, atvinnuleysi og efnahagslega stöðu Finnlands, Svíþjóðar, Danmerkur, Noregs, Sviss og Póllands.- Áhrif aðildarferlis á fríverslunarsamninga, íslensk fyrirtæki og samskipti við ríki utan Evrópu.- Sjávarútveg, fiskveiðistjórnun og mögulegar undanþágur.- Trump, Grænland og þau öryggisrök sem færð hafa verið fyrir nánari tengslum við Evrópusambandið.- Samband Íslands við Bandaríkin, Bretland, Kanada og Noreg.- Icesave-deiluna og þátt Evrópusambandsins í málaferlunum gegn Íslandi.- Hvers vegna engin lagaleg trygging sé fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um lokasamning.- Hugsanleg áhrif niðurstöðunnar á ríkisstjórnina, Samfylkinguna og Viðreisn.Ólafur Ragnar segir að viðræðurnar gætu dregist árum saman og tekið gríðarlegt súrefni úr íslenska stjórnkerfinu án þess að nokkur lokasamningur líti dagsins ljós. Á meðan gæti Ísland lent í óvissustöðu gagnvart viðskiptaþjóðum sínum og mögulegum samstarfsaðilum um allan heim.Í lok viðtalsins lítur Ólafur Ragnar yfir tuttugu ára forsetatíð sína, þjóðaratkvæðagreiðslurnar um Icesave og þann persónulega kostnað sem fylgdi ákvörðun hans um að standa gegn ríkisstjórn fyrrverandi samherja sinna. Hann segir suma gamla vini sína hafa hætt að heilsa sér og lýsir því hvers vegna hann ákvað, þrátt fyrir fyrirsjáanlega gagnrýni, að stíga aftur inn á hinn pólitíska umræðuvöll:„Mér er ekki sama um lýðveldið. Mér er ekki sama um árangurinn af baráttu fyrri kynslóða.“Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Ólafur Ragnar: „Engin trygging fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E4605 Aug 202600:18:59

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir hugmyndina um „Já til að sjá“ ekki standast þegar eðli aðildarferlis Evrópusambandsins er skoðað.Í viðtalinu segir hann frá nýlegum samtölum sínum í París við fyrrverandi háttsettan embættismann Evrópusambandsins og sérfræðing í málefnum sambandsins. Þegar Ólafur Ragnar útskýrði fyrir þeim hugmyndina um að Íslendingar gætu farið í viðræður án þess að hafa tekið afstöðu með aðild hafi viðbrögð þeirra verið einföld: „Þeir hlógu.“Ólafur Ragnar varar jafnframt við því að já-niðurstaða 29. ágúst verði túlkuð erlendis sem endurvakin umsókn Íslands um aðild að ESB. Það geti haft áhrif á viðskiptahagsmuni Íslands strax, jafnvel þótt aðild verði síðar hafnað.Þá vekur hann sérstaka athygli á því að engin formleg trygging sé fyrir því að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram að loknum viðræðum.„Þeir sem ætla að segja já á grundvelli þess að það komi samningur og þá geti þeir hugsað málið [...] eru bara að veðja á óvissu,“ segir Ólafur Ragnar.Klippan er úr ítarlegu viðtali Frosta Logasonar við Ólaf Ragnar Grímsson í Spjallinu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Oflof verður háð | Harmageddon | S04E2930 Jul 202600:19:20

Viðtal Rest is Politics hlaðvarpsins við Kristrúnu Frostadóttur hefur vakið mikla von í brjósti Já-sinna á Íslandi sem eru orðnir mjög örvæntingafullir eftir einhverri manneskju sem getur mögulega fært einhver sannfærandi rök fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu. En því miður fyrir þetta sama fólk, þá hefur Kristrún ekkert nýtt eða sannfærandi að segja um málið, þrátt fyrir glæsilega framkomu og leiftrandi bandarískan hreim.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

„Því meira sem menn kynna sér ESB, því meira afhuga verða þeir“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E4529 Jul 202600:16:01

Þór Ludwig Stiefel er markaðshagfræðingur með sérmenntun í innri markaði Evrópusambandsins. Undanfarna mánuði hefur hann rannsakað stjórnkerfi, löggjöf og efnahagslega uppbyggingu sambandsins og skrifað um það ítarlega bók sem nú er í undirbúningi.Í viðtalinu ræðir Þór meðal annars um það sem hann telur alvarlegan lýðræðishalla innan Evrópusambandsins. Hann útskýrir hvers vegna Evrópuþingið getur ekki sjálft lagt fram lagafrumvörp, hvernig framkvæmdastjórn sambandsins verður til og hvers vegna áhrif smáríkja fari minnkandi samhliða aukinni notkun meirihlutaatkvæðagreiðslna.Þór fjallar einnig um áform Evrópusambandsins um stafrænt auðkenni, stafræna evru og aukið eftirlit með samskiptum almennings. Hann varar við því að tæknin geti skapað áður óþekkt vald yfir fjármálum, samskiptum og daglegu lífi borgaranna.Þá eru efnahagslegu rökin fyrir aðild Íslands tekin til ítarlegrar skoðunar. Þór segir rangt að upptaka evru tryggi sjálfkrafa lága vexti eða litla verðbólgu og bendir á mikinn mun milli ríkja evrusvæðisins. Vandamál Íslands, meðal annars verðtrygging og háir vextir, verði að stórum hluta leyst hér heima óháð gjaldmiðli.Í viðtalinu er jafnframt rætt um sjávarútveg, mögulegt erlent eignarhald íslenskra útgerðarfyrirtækja, landbúnað, viðskiptasamninga EFTA, sameiginlegar skuldbindingar ESB-ríkjanna og hversu erfitt geti reynst að yfirgefa sambandið eftir inngöngu.Að mati Þórs er slagorðið „já til að sjá“ villandi. Atkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist í reynd um að hefja nýtt aðildarferli sem geti haft verulegar og varanlegar afleiðingar fyrir fullveldi og sjálfstæði Íslands.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Elítu samtrygging | Harmageddon | S04E2823 Jul 202600:11:22

Það stenst enga skoðun að læknir sem ákærður var fyrir manndráp af ásetningi þurfi ekki að fara fyrri dóm vegna þess að hann hafði verið sviptur lækningaleyfi fyrir sömu sök. Það er í raun ekki hægt að skýra þetta öðruvísi en að um einhverskonar elítu samtryggingu sé að ræða. Ef málinu verður ekki snúið í Landsrétti er ljóst að dómstólar á Íslandi eru algjörlega ónýtir. Við fjöllum málið og margt fleira í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

„Við þurfum ekki að láta bjarga okkur“ | Hermann um ESB og efnahagsmálin | Spjallið | S04E4422 Jul 202600:19:50

Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Kemi ehf., hefur starfað í eigin rekstri í 32 ár og tekist á við gengisfellingar, bankahrun, verðbólgu og fjölmargar efnahagskreppur. Í þessu viðtali ræðir hann stöðu Íslands og Evrópusambandsins frá sjónarhóli reynslumikils atvinnurekanda.Hermann hafnar þeirri hugmynd að aðild að ESB og upptaka evru séu einföld lausn á verðbólgu, háum vöxtum og háu verðlagi hér á landi. Hann segir eigin gjaldmiðil hafa reynst Íslandi mikilvægur á áföllum og telur að vandinn liggi fyrst og fremst í agaleysi í ríkisfjármálum, sívaxandi opinberum útgjöldum og skorti á pólitískum vilja til að taka erfiðar ákvarðanir.Hann telur að Ísland standi frammi fyrir mun meiri tækifærum en flestar Evrópuþjóðir vegna náttúruauðlinda, menntunar, dugnaðar og frumkvæðis þjóðarinnar. Að hans mati væri það undarleg ákvörðun að ganga nú inn í ríkjasamband sem glímir við miklar skuldir, lýðfræðileg vandamál, félagsleg átök og minnkandi samkeppnishæfni.Í þættinum er meðal annars rætt um:* hvort evran myndi raunverulega lækka verðlag á Íslandi* kosti og galla íslensku krónunnar* hvernig mætti afnema verðtryggingu á nokkrum árum* skuldavanda Evrópuríkja og framtíð evrusvæðisins* lýðræðishallann innan Evrópusambandsins* sjávarútveginn og yfirráð yfir íslensku efnahagslögsögunni* ríkisútgjöld, opinberar stofnanir og þörfina fyrir niðurskurð* há laun stjórnenda ríkisstofnana* skattfrelsi fyrir ungt fólk sem er að eignast sína fyrstu fasteign* ábyrgð einstaklingsins og misnotkun velferðarkerfisins* áhrif þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst á ríkisstjórninaHermann segir að aðildarviðræður við ESB snúist í raun ekki um að semja um sérlausnir fyrir Ísland heldur um aðlögun landsins að þegar fullmótuðu sambandi: „Þeir eru ekki að bjóða neitt. Þeir eru bara að bjóða aðild.“Að hans mati ættu íslensk stjórnvöld að beina kröftum sínum að því að ná niður verðbólgu og vöxtum, skapa aga í ríkisfjármálum og gera fólki kleift að bjarga sér sjálft. Takist það telur hann að ekkert land í heiminum geti boðið betri lífskjör en Ísland.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Bakslagið #43 Upphitun fyrir HM20 Jul 202602:09:20

Sverrir Helgason, Jón Þormar, Helgi Bjarnason ræða málin.

Narsissískir ofbeldismenn og lögmenn þeirra | Harmageddon | S04E2520 Jul 202600:07:01

Í þætti dagsins fjöllum við meðal annars um hvernig ofbeldismenn eru í raun lítill hluti karla og hvernig enn minni hluti þeirra getur komist upp með að fremja meira en helming af öllum þeim ofbeldisglæpum sem framdir eru. Þá ræðum við einnig um siðleysi lögmanna sem stundum geta framlengt í ofbeldinu með því að ganga erinda narsissískra skjólstæðinga sinna.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Kobeinn um menningarstríðið: „Þetta er pólitík dulbúin sem fræði“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E4217 Jul 202600:19:20

Í þessum þætti ræðir Frosti Logason við Kolbein Stefánsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, um hugmyndafræðileg átök sem hafa mótað samfélagsumræðuna á Vesturlöndum á undanförnum árum.Kolbeinn fer yfir hvernig gagnrýnar kenningar (critical theory), póststrúktúralismi og identity politics hafa þróast innan félags- og hugvísinda og hvaða áhrif hann telur þær hafa haft á háskóla, stjórnsýslu og samfélagsumræðuna almennt. Hann lýsir einnig hvernig eigin viðhorf tóku breytingum eftir að hafa kynnt sér deilurnar um kynjahugmyndafræði, tjáningarfrelsi og viðbrögð akademíunnar við óþægilegum skoðunum. Í seinni hluta viðtalsins ræða þeir meðal annars: • þróun menningarstríðsins á Vesturlöndum, • hatursorðræðu og hatursglæpi, • tjáningarfrelsi og sjálfsritskoðun, • hvort háskólar séu orðnir hugmyndafræðilega einsleitir, • innflytjendamál og samþættingu, • „high trust“ og „low trust“ samfélög, • og hvers vegna opnari og heiðarlegri umræða sé nauðsynleg ef takast á að leysa erfið samfélagsmál. Viðtalið er ítarlegt, gagnrýnið og tekur fyrir mörg umdeildustu álitaefni samtímans þar sem ólík sjónarmið um samfélag, stjórnmál og fræðastarf mætast.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

„Þegar næsta kreppa kemur vil ég að Ísland ráði sér sjálft“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E4214 Jul 202600:17:09

Í þessum þætti ræðir Frosti Logason við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.Sólveig Anna útskýrir hvers vegna hún telur að Ísland eigi að segja nei og hafna því að halda viðræðunum áfram. Hún segir afstöðu sína byggja bæði á reynslu sinni af evrukreppunni eftir bankahrunið 2008 og þeirri niðurstöðu að smáríki eins og Ísland þurfi að halda í eigið efnahagslegt og lýðræðislegt sjálfræði.Í viðtalinu ræðir hún meðal annars:• Hvers vegna hún telur að Grikkland hafi verið varnaðarorð fyrir önnur ríki.• Hvað Ísland myndi missa með því að afsala sér eigin gjaldmiðli.• Hvernig hún lítur á verðbólgu, vexti og húsnæðisvandann.• Hvort Evrópusambandið sé raunverulegt öryggisskjól.• NATO, Rússland og breytta stöðu alþjóðamála.• Gagnrýni sína á ríkisstjórnina og ákvörðunina um að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni.• Icesave-deiluna og hvað hún telur að Íslendingar geti lært af henni.• Hvers vegna hún hafnar því að andstaða við ESB sé „auðvaldsskoðun“.• Hvernig hún telur að hagsmunir verkafólks séu best tryggðir.Þetta er ítarlegt og hreinskilið viðtal þar sem Sólveig Anna svarar gagnrýni, útskýrir hugsun sína og ræðir eitt stærsta pólitíska álitamál sem Íslendingar standa frammi fyrir fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.Brotkast birtir reglulega ítarleg viðtöl um stjórnmál, efnahagsmál og samfélagsmál.🔔 Vertu áskrifandi að rásinni og smelltu á bjölluna til að fá tilkynningar um ný viðtöl.#Brotkast #SólveigAnna #ESB #Evrópusambandið #Þjóðaratkvæðagreiðsla #Ísland #Stjórnmál #Efnahagsmál #Fullveldi #VerkalýðsmálFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Bakslagið #42 - Stefán Einar Stefánsson 13 Jul 202602:37:21

Sverrir Helgason, Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Stefán Einar Stefánsson ræða málin.

Kristján Ingi: „Sönnunarbyrðin er hjá já-liðinu“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E4008 Jul 202600:17:31

Þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands að ESB nálgast hratt. En hvað er raunverulega undir? Er Ísland að taka óþarfa áhættu eða mikilvægt skref til framtíðar?Í þessum þætti ræðir Frosti Logason við Kristján Inga Mikaelsson, fjárfesti, annan eiganda MGMT Ventures og einn af stofnendum Visku.Kristján fer yfir hvers vegna hann telur að rökin gegn aðild Íslands að ESB vegi þyngra en rökin með henni. Hann ræðir meðal annars:• Hvort evran myndi raunverulega lækka vexti og húsnæðiskostnað

• Hvers vegna Ísland býr við há laun, hátt verðlag og mikla velsæld

• Orkumál Evrópu og áhrif pólitískra ákvarðana á samkeppnishæfni álfunnar

• Hvernig hann telur umræðuna um ESB einkennast af ófullnægjandi upplýsingagjöf

• Hvað hann myndi gera í ríkisfjármálum ef þjóðin hafnaði áframhaldandi aðildarviðræðum

Einnig ræða þeir stöðu Íslands innan EES-samningsins, fullveldi landsins, verðbólgu, ríkisútgjöld, gervigreind, opinbera stjórnsýslu og framtíð íslensks efnahags.

Hvað finnst þér? Ætti Ísland að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið eða hafna þeim?Skrifaðu þína skoðun í athugasemdirnar.#ESB #Ísland #Stjórnmál #Hagfræði #Evran #BrotkastFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Evrópusambandið ekki lýðræðislegt | Harmageddon | S04E2707 Jul 202600:07:58

Lýðræðishalli Evrópusambandsins er gríðarlegur. Í Evrópuþinginu, þar sem Ísland fengi 6 þingmenn af 720, er engin löggjöf samin. Hún er samin í ráðherraráðinu þar sem atkvæðavægi hvers ráðherra fer eftir íbúafjölda ríkisins á bak við hann. Ísland væri þar með 0,1% atkvæðavægi. Hægt er að ná málum þar í gegn með auknum meirihluta. Ursula Von Der Leyen er ekki kjörinn framkvæmdarstjóri heldur var hún ráðin af leiðtogum Þýskalands og Frakklands. Kaja Kallas, utanríkisráðherra Evrópusambandsins, var heldur ekki kjörin, heldur ráðin af Von Der Leyen.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Bakslagið #41 - Guðlaugur Þór Þórðarson06 Jul 202601:35:17

Sverrir Helgason, Helgi Bjarnason og Guðlaugur Þór Þórðarson ræða málin. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum í upphafi þáttarins.

1200 kindur fyrir eina langreið | Harmageddon | S04E2601 Jul 202600:08:28

Aðgerðarsinninn Paul Watson hefur þjappað Íslendingum saman í að standa vörð um rétt Íslendinga til að stunda hvalveiðar. Starfsmaður Hvals í Hvalfirði sem fíflaðist með hræ einnar skepnunnar var þó ekki að gera málstaðnum neinn greiða enda veiðimenn almennt sammála um að bráðinni skuli sýnd full virðing sem þar var ekki gert. En útfrá dýraverndunarsjónarmiðum er rétt að benda á að slátra þarf 1200 kindum til þess að ná sama magni af kjöti og kemur af einni langreið. Áfram Ísland.


Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Snorri Másson: Fullveldi, fjölmiðlar, transbörn og framtíð Íslands | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E4029 Jun 202600:16:15

Í þessu ítarlega viðtali ræðir Frosti við Snorra Másson um stærstu hitamál samtímans - allt frá fullveldi Íslands yfir í transumræðuna, fjölmiðla, menningarstríð og stöðu stjórnmálanna á Íslandi.Snorri fer ítarlega yfir hvers vegna hann telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB sé meira en bara „viðræður“, hvers vegna hann telur fullveldi skipta grundvallarmáli og hvaða áhrif innganga gæti haft á íslenskt samfélag.Í seinni hluta viðtalsins færist umræðan yfir í mun umdeildari svið - þar sem Snorri svarar gagnrýni sem hann hefur sætt fyrir ummæli sín um regnboga- og transfána í skólum, ræðir stöðu barna í kynáttunarvanda, hormónameðferðir, hlutverk Samtakanna '78 og hvort samfélagsumræðan leyfi raunverulega opna umræðu um þessi mál.Þeir ræða meðal annars:• ESB-aðild, fullveldi og valdheimildir Íslands• Evruumræðuna, vexti og húsnæðismarkaðinn• Regnboga- og transfána í skólum• Kynáttunarvanda barna og nálgun heilbrigðiskerfisins• Hormónabælandi meðferðir og þróun í Finnlandi og Bretlandi• Hlutverk Samtakanna '78 í ráðgjöf til barna• Menningarstríð, pólitíska jaðarsetningu og tjáningarfrelsi• Fjölmiðla, pólitíska aktívisma og trúverðugleika fréttamiðla• Innflytjendamál, þjóðernisvitund og pólitíska skautunBeinskeytt, umdeilt og djúpt samtal um Ísland á tímamótum — þar sem tekist er á um framtíð þjóðarinnar, gildi samfélagsins og mörk opinberrar umræðu. #Spjallið #SnorriMásson #Tjáningarfrelsi #Transumræða #Samfélagsmál #StjórnmálFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Bakslagið #40 - Davíð Bergmann 29 Jun 202602:41:21

Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Davíð Bergmann ræða málin.

Sjálfseyðandi samkennd | Harmageddon | S04E2524 Jun 202600:08:31

Í þætti dagsins fjöllum við um lifandi dæmi þess þegar umburðarlyndið ber okkur ofurliði. Borgin Hamtramck í Michigan lagði nefnilega á árum áður mikla áherslu á fjölbreytileika og inngildingu, og samþykkti meðal annars lög sem leyfðu múslimum að útvarpa bænakalli um borginna 5 sinnum á dag. Nokkrum árum síðar tók við meirihluti í borgarstjórn Hamtramck sem hafði á að skipa múslimum eingöngu og þeir tóku sig til og bönnuðu GayPride fánann á opinberum stöðum í borginni. Frjálslyndir inngildingarsinnar telja sig að einhverju leyti svikna af þessari atburðarrás en dæmið þykir sýna hvert stefna fjölmargra Evrópulanda muni leiða okkur ef ekki verður tekið í taumana.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Sósíalisti vs Álhattur - geta þeir verið sammála um eitthvað? | ESB, Epstein, vók og New World Order | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E3923 Jun 202600:16:54

Í þessum nýjasta þætti af Spjallinu fær Frosti Logason til sín tvo ólíka gesti: Guðjón Heiðar Valgarðsson, þáttastjórnanda Álhattsins og kunnan greinanda samsæriskenninga, og Tjörva Schiöth, doktorsnema í sagnfræði og yfirlýstan sósíalista.Þrátt fyrir að standa á sitthvorum enda hins pólitíska rófs kemur fljótt í ljós að þeir eru sammála um ýmislegt — sérstaklega þegar kemur að Evrópusambandinu, fullveldi Íslands og gagnrýni á vaxandi miðstýringu valds.Í þættinum ræða þeir meðal annars:• ESB-aðild Íslands og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst• Evru, fullveldi og auðlindir• Vók-hugmyndafræði og sjálfsmyndapólitík• MeToo, Jeffrey Epstein og valdakerfin• Fjölmiðla, narratíf og „Liberal World Order“• Samsæriskenningar og mörkin milli tortryggni og sannleiksleitarGeta menn sem eru svona ósammála um svo margt fundið sameiginlegan flöt? Og hvað segir það um samtímann?#Spjallið #ESB #Epstein #Vók #Samsæri #StjórnmálFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

© My Podcast Data · Projet indépendant · Données issues d'Apple & Spotify