Explorez tous les épisodes du podcast Bragðheimar
| Titre | Date | Durée | |
|---|---|---|---|
| Sólrún Diego - drottning heimilishaldsins! | 26 Aug 2024 | 01:30:25 | |
Við fengum loksins að kynnast drottningu heimilishaldsins, Sólrúnu Diego. Hvernig viðhelduru vikumatseðli, signature eftirréttur Sólrúnar, heimilismatur æskunnar, endalaust af Haxmundum og svo margt fleira. Skemmtilegt og einlægt spjall með þessari góðu geit. | |||
| Anna Fríða Gísladóttir - sax, sull & stemning! | 18 Aug 2024 | 01:27:21 | |
Sax, sull og stemning með Haxmundi Tæknitæfudóttur. Anna Fríða Gísladóttir, kom sá og saxaði. Endurmörkun sólþurrkaða tómatsins, framandi mömmumatur og endalaus stemning. | |||
| Woltemon völtun í Vesturbæ | 07 Aug 2024 | 00:43:51 | |
Loksins er siðferðislega samþykkt að versla við Melabúðina á ný. Smakkland á Laugavegi 55, endurmörkun svínsins og ný gildi Bragðheima á haustönnn 2024. | |||
| Season all - leiðin norður | 20 Jun 2024 | 01:05:55 | |
Bragðheimabínurnar Eva & Solla líta yfir farinn veg og þræða leiðina norður yfir alvöru mauli. Hvar er best að stoppa á leiðinni norður, er gott að dæna á Akureyri og afhverju er enginn veitingastaður búinn að bjóða okkur út að borða? Standard, takk! | |||
| Með þráhyggju fyrir Þránni á Sumac & Óx - hvernig viðheldur maður Michelin stjörnu? | 05 Jun 2024 | 01:00:57 | |
Þráinn Freyr Vigfússon, stjörnukokkur og Michelin stjörnugrís mætti til Bragðheima brussanna og upplýsti um eitt og annað í heimi veitingageirans. | |||
| Maul & baul með Bessastaðabeljunum - Oddur Þórðarson & Ólöf Skaftadóttir | 28 May 2024 | 01:19:09 | |
Maul & baul með samfélagsrýnunum Oddi & Lollu sem sitja ekki á skoðunum sínum þegar kemur að matargerð og trendum í veitingageiranum í Reykjavík. Hvað borða forsetaframbjóðendur ársins 2024 og hvern eigum við eiginlega að kjósa? | |||
| Gott í gogginn með Hjörvari Hafliða aka Dr. Football | 22 May 2024 | 01:10:35 | |
Slatti af lauk, mikið af cabaret og dass af skinku fyrir doktorinn. Hvert fer hann út að borða, hvað finnst honum best og hvað verður hann að eiga heima hjá sér? Fáránlega skemmtilegt spjall við hlaðvarpskónginn Hjörvar Hafliða. | |||
| Vinkonugrill: sætabrauðsdrengurinn Rakel Sif og fjöllistafreakið Lóa Björk | 07 May 2024 | 01:42:53 | |
Afhverju er svona vondur matur í Finnlandi og Noregi og hvar er langbest að dæna í París? Hvers vegna er bekkurinn alltaf betri en sætið á veitingastöðum og hvernig er að vera grænmetisæta á tímum kjötætunnar?
| |||
| Réttur er settur - stóri djúpsteikingarpotturinn á Ingólfstorgi! | 24 Apr 2024 | 01:01:03 | |
Særingarmenn dusta rykið af skikkjunum og kíkja í áhrifavaldaboð, kryfja brunch leikinn, hylla tiktok eldamennsku og fara á bólakaf í stóra djúpsteikingarpottinn við Ingólfstorg. | |||
| Asíureisa - Addi Intr0beatz | 10 Apr 2024 | 01:50:56 | |
Matgæðingurinn og átvaglið Ársæll (Addi Intr0Beatz) mætti með kennslugleraugun í stúdíó Bragðheima. Tælensk matargerð, leynimatseðill á Fönix, Haxmundur Axel: þrýstipotturinn og svo margt fleira. | |||
| Tæknitæfan sem eyðilagði matarbloggið! | 27 Mar 2024 | 01:25:00 | |
Er úti um framtíð matarbloggsins? Uppskrift af besta lasagna sem þú munt smakka, hvert er leyndarmál svörtu ólífunnar, Víkingur Heiðar bjórsali og svo margt fleira á vínargalsa Bragðheima! | |||
| Þegar góða veislu gjöra skal - Ólöf Örvars | 13 Mar 2024 | 01:14:31 | |
Hvernig er best að undirbúa, framkvæma og njóta góðrar veislu? Veisluvélin og arkitektinn Ólöf Örvarsdóttir svarar spurningum okkar og gefur okkur í leiðinni innsýn í sinn töfrandi matarheim. | |||
| Stútfullur ristill nei við meinum þáttur með Karen Björgu! | 28 Feb 2024 | 01:34:44 | |
Meltingarfræðsla, nammitips, æskan á Grenivík og svo margt SKEMMTILEGT með handritshöfundinum og séntildrollunni Karen Björgu.
| |||
| Væn, dæn og góð ráð - Óli Hall | 21 Feb 2024 | 01:39:09 | |
Food and Fun, þorskhnakkar til þerris, eðlu-varnargarðar og margt fleira rætt við nepo-barn kokkasamfélagsins, Óla Hall! | |||
| Ost í oss | 14 Feb 2024 | 01:02:30 | |
Matarmannfræði, Tommi Tómatur, camembert í útrýmingarhættu og margt fleira á kósíkvöldi Bragðheima. | |||
| Heimilismatur sælkerans með Nadine Guðrúnu Yaghi | 06 Feb 2024 | 01:17:26 | |
Gestastælar, sparnaðarráð & sælkeraspjall á tímum mikillar verðbólgu og hárra stýrivaxta. Nautnaseggurinn og hlaðvarpsdrottningin Nadine Guðrún Yaghi deilir góðum sögum og ráðum með okkur. | |||
| Fyrsti þáttur - Brauði sé lof | 01 Feb 2024 | 01:24:08 | |
Fyrsti þáttur af Bragðheimum er tileinkaður heilögum hleifnum, brauðinu sjálfu - það lá beinast við að faðir kolvetnisins yrði tekinn og étinn. Farið verður um víðan völl, hlustendur fá að skyggnast inn í heim tveggja svangra mjólkandi kvenna. Hvar er besta hleifinn að finna? hvaða rækjusamloka er best og þar fram eftir götunum. | |||